Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetHelgi Inguson
Valur
Valur
Besta kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
0 - 0
Þór/KA
Þór/​KA
Dómari: Bergrós Lilja Unudóttir
Leik lokið!
Markalaust jafntefli niðurstaðan. Viðtöl og skýrsla á leiðinni
94. mín
Leikurinn að opnast alveg undir restina. Bríet á skot sem fer í varnarmann. Þetta var síðasti séns.
92. mín
Darraðardans í teig Þór/KA. Kimberley á skot sem fer í varnarmann en Bergrós dæmir svo á eitthvað. Gestirnir fá boltann
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
Valur
88. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
87. mín
Margrét Brynja þarf aðhlynningu
84. mín
Birgitta með boltann og finnur Erin í overlappinu en skot/fyrirgjöf hennar fer yfir markið
Þór/KA
84. mín
Gult spjald

Birgitta Rún Finnbogadóttir

81. mín
Liðin búin að gera sitthvora þreföldu skiptinguna. Nú hlýtur eitthvað að gerast
Þór/KA
80. mín
InnBríet Jóhannsdóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
Þór/KA
80. mín
InnEmelía Ósk Kruger
ÚtHildur Anna Birgisdóttir
Þór/KA
80. mín
InnBirgitta Rún Finnbogadóttir
ÚtAmalía Árnadóttir
79. mín
Skotið er frekar laust og beint á Alessöndru
78. mín
Valskonur að fá aukaspyrnu á hættulegum stað. Ísabella Sara mun skjóta
75. mín
Arnfríður með skot á D-boganum sem fer útaf. Ágætis undirbúningur hjá Margréti Brynju
Þór/KA
73. mín
Gult spjald

Erin Flurey

Ýtir aðeins í Málfríði þegar hún stendur upp
Valur
73. mín
Gult spjald

Málfríður Anna Eiríksdóttir

Brýtur á Erin
70. mín
Hildur Anna aðeins of sein að senda boltann í gegn á Erin sem var við það að sleppa ein í gegn. Rangstæða.
Valur
68. mín
InnÁgústa María Valtýsdóttir
ÚtSonja Björg Sigurðardóttir
Valur
68. mín
InnKolbrá Una Kristinsdóttir
ÚtNadía Atladóttir
Valur
68. mín
InnHelga Rut Einarsdóttir
ÚtSóley Edda Ingadóttir
65. mín
Sóley Edda dæmd brotleg. Matti sá þetta vel og er ósáttur með dóminn á meðan gestirnir vilja seinni gula. Sennilega rétt hjá Bergrós
63. mín
Nadía með skot fyrir utan teig sem Alessandra ver
Þór/KA
57. mín
InnErin Flurey
ÚtElísa Bríet Björnsdóttir
56. mín
Hætta
Erin að sleppa í gegn og ætlar að komast framhjá Tinnu Brá sem gerir vel og hendir sér niður í boltann áður en Erin nær skoti
55. mín
Hildur Anna spræk
Hildur Anna keyrir upp vinstri kantinn. Þegar hún er komin nálægt endalínu leikur hún á Málfríði Önnu, sker á hægri fótinn en á svo lélegt skot. Gestirnir hefðu getað komist yfir þarna
53. mín
Þór/KA að mæta grimmar til leiks í seinni
49. mín
Hættuleg fyrirgjöf frá hægri. Hildur Anna nær fyrst til boltans en er í erfiðri stöðu og skot hennar fer yfir
47. mín
Valur fær tvær hornspyrnur í röð. Gestirnir koma boltanum frá
46. mín
Sonja sparkar seinni hálfleik af stað
45. mín
Frekar leiðinlegum fyrri hálfleik lokið. Tökum okkur 15 og vonumst eftir meiri skemmtun í seinni.
Valur
45. mín
Gult spjald

Eiríkur Raphael Elvy

Fær gult spjald fyrir að kasta handklæði
40. mín
Skemmtileg tilraun
Lillý Rut vinnur boltann á vallarhelmingi gestanna. Hún sér að Alessandra er framarlega í markinu og lætur vaða af svona 35 metrum en yfir fer boltinn
39. mín
Valskonur eru að leika ágætlega. Það vantar upp á að skapa færi og klára þau þegar þau koma. Kunnulegt stef.
31. mín
Frábærir taktar
Margaret Brynja keyrir upp hægri kantinn, hún er kominn inn í vítateig og fer framhjá Örnu Sif. Hún nær að táa boltann en Alessandra gerir vel og er fljót niður
30. mín
Þór/KA í fínni skyndisókn sem endar með fyrirgjöf sem Tinna Brá grípur inn í
Valur
25. mín
Gult spjald

Sóley Edda Ingadóttir

Nú fær Sóley gult fyrir peysutog
23. mín
Frekar rólegt til þess að byrja með. Ísabella Sara á fyrsta skotið á markið í leiknum en það er þægilegt fyrir Alessöndru í markinu. Leikurinn fer aðallega fram á vallarhelmingi gestanna
20. mín
Aftur fá Valskonur aukaspyrnu. Ísabella Sara tekur fyrirgjöfina en Arna Sif stangar hann frá
15. mín
Sóley Edda dæmd brotleg fyrir peysutog. Hún fær tiltal frá Bergrós
10. mín
ÍSABELLA SARA
Brotið á Ísabellu Söru. Hún tekur aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu vinstra megin. Hún ákveður hins vegar að skjóta og boltinn endar í stönginni. Frábært langskot!
7. mín
Þór/KA fær sína fyrstu hornspyrnu
3. mín
Þór/KA í vandræðum. Sonja Björg nærri því sloppin í gegn en Alessandra nær fyrr til boltans
1. mín
Ísabella Sara tekur fyrstu hornspyrnu leiksins. Það verður ekkert úr henni fyrir Valskonur
1. mín
Gestirnir sparka þessu af stað
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks í blíðunni
Fyrir leik
Spáin
Fanndís Friðriksdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, spáir í 8. umferðina: Valur 1 - 1 Þór/KA ,,Eitthvað segir mér að Arna Sif skori mark með skalla í þessum leik."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Valur
Valur er í áttunda sæti deildarinnur með sjö stig. Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, er búinn að setja saman ungt lið sem er stútfullt af unglingalandsliðsmönnum. Varnarleikurinn hefur verið góður í síðustu leikjum en nú þarf liðið að fara að skora mörk. Með sigri nær Valur að slíta sig frá botninum en tap þýðir að liðið er komið í fallbaráttu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Þór/KA
Þór/KA er í tíunda og síðasta sæti deildarinnar með tvö stig og freista þess að ná sínum fyrsta sigri á eftir. Liðið hefur fengið á sig 12 mörk í síðustu þremur og leikjum og ljóst að liðið þarf að laga varnarleikinn til þess að halda sér í deild þeirra bestu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarar dagsins
Bergrós Lilja Unudóttir verður á flautunni í dag. Henni til aðstoðar verða Eydís Ragna Einarsdóttir og Tijana Krstic. Bríet Bragadóttir veður fjórði dómari og Skúli Freyr Brynjólfsson eftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin á Hlíðarenda
Góðan daginn kæru lesendur og verið þið velkomnir í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Vals og Þór/KA í 8. umferð Bestu deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.