Fotbolti.net
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjudeild karla
JBÓ Völlurinn
Grátt yfir og mikill vindur
Njarðvík
Njarðvík
5 - 4
Grindavík
Grindavík
0 - 16' Stefán Jón FriðrikssonAron Einarsson 12'1 - 11 - 217' Rúnar Ingi EysteinssonLeandro Fernandes 26'2 - 2Leandro Fernandes 38'3 - 23 - 342' Gunnleifur Orri GunnleifssonArnleifur Hjörleifsson 50'4 - 34 - 463' Gunnleifur Orri GunnleifssonEiður Aron Sigurbjörnsson 76'5 - 4
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Leik lokið!
Ótrúlegum leik er lokið í Njarðvík, 5-4 lokatölur. Svakalegt. Viðtöl detta inn á síðuna seinna í kvöld.
97. mín
Njarðvík fær horn þegar 30 sekúndur eru eftir. Þetta er búið.
96. mín
Njarðvíkingar næstum því búnir að bæta við sjötta markinu. Oumar Diouck í mjög fínu færi. Það er ein mínúta eftir.
94. mín
Christian Bjarmi missir boltann út af. Njarðvíkingar fagna.
92. mín
Sindri Þór með áhugaverða skallatilraun sem fer fram hjá markinu.
91. mín
Sjö mínútum er bætt við. Það er nóg eftir!
91. mín
Christian Bjarmi með góða fyrirgjöf og Damir hoppar upp í þetta en nær ekki að koma boltanum á markið.
90. mín
Uppbótartíminn er hafinn.
Grindavík
89. mín
InnFriðrik Franz Guðmundsson
ÚtStefán Jón Friðriksson
89. mín
Gunnleifur Orri með fyrirgjöf sem fer beint aftur fyrir endamörk.
88. mín
Hótar þrennunni!
Gunnleifur Orri með skot sem fer í hliðarnetið. Munaði ekki miklu þarna.
88. mín
Damir er bara kominn í fremstu víglínu.
87. mín
Grindvíkingar eru farnir að henda fleiri mönnum fram á við. Skilar það sér?
Grindavík
83. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtValur Þór Hákonarson
Grindavík
83. mín
InnAndri Karl Júlíusson Hammer
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
Njarðvík
80. mín
InnValdimar Jóhannsson
ÚtLeandro Fernandes
Grindavík
78. mín
Gult spjald

Valur Þór Hákonarson

Fer aðeins of hátt með olnbogann.
77. mín
Ruglaði fótboltaleikurinn sem þetta er.
Njarðvík
76. mín
ÞETTA STOPPAR EKKI!

Eiður Aron Sigurbjörnsson (stoðsending: Sigurjón Már Markússon)

Njarðvíkingar taka forystuna aftur!! Leandro Fernandes með aukaspyrnuna inn á teiginn. Boltinn virðist vera of langur en hann dettur á Sigurjón sem skallar hann fyrir markið á Eið Aron sem stangar hann í netið.
Grindavík
75. mín
Gult spjald

Christian Bjarmi Alexandersson

Fyrir tæklingu. Njarðvík fær aukaspyrnu úti hægra megin.
Grindavík
75. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtEysteinn Rúnarsson
74. mín
Auhhh
Sigurjón setur fótinn í boltann upp úr hornspyrnu en Hjörvar Daði ver virkilega vel í markinu hjá Grindavík.
72. mín
Sindri Þór fær tíma og pláss fyrir utan teig. Horfir upp, sér markið og lætur vaða en skot hans fer fram hjá markinu.
71. mín
Ég er ekki frá því að það séu fleiri mörk í þessum leik.
Njarðvík
69. mín
InnDaði Fannar Reinhardsson
ÚtGuy Smit
68. mín
Guy Smit virðist vera búinn hér í dag. Liggur í grasinu og þarf aðhlynningu.
67. mín
FÆRI!!
Njarðvíkingar algjörir klaufar í uppspilinu, gestirnir vinna boltann og Stefán Jón er í frábæru færi en nær ekki að hitta boltann almennilega. Pirraður út í sjálfan sig.
66. mín
Valur Þór vinnur boltann hátt uppi á vellinum og á skot sem fer langt yfir markið.
65. mín
Það eru hlutir að gerast hérna sem enginn sá fyrir.
Njarðvík
64. mín
InnBragi Karl Bjarkason
ÚtSímon Logi Thasaphong
Grindavík
63. mín
GRINDAVÍK JAFNAR!

Gunnleifur Orri Gunnleifsson

Fínasta sókn hjá Grindavík en að sama skapi afskalega dapur varnarleikur hjá heimamönnum. Mér sýnist það var Rúnar Ingi sem fer léttilega fram hjá Sigurjóni og sendir boltann fyrir. Þar á Valur Þór skot sem Njarðvíkingar koma sér fyrir en boltinn dettur fyrir Gunnleif Orra sem skorar úr frákastinu. Gunnleifur Orri með sitt annað mark í leiknum.
60. mín
Magnað spil hjá Grindvíkingum upp völlinn en Sigurjón Már nær að koma boltanum frá á endanum.
57. mín
Ótrúlegir hlutir að gerast í Lengjudeildinni í kvöld. Staðan er líka 3-4 í leik Ægis og HK.
Grindavík
53. mín
Rautt?

Eysteinn Rúnarsson

Aron Einars fer niður og heldur um höfuð sitt. Njarðvíkingar vilja fá rautt spjald á þetta. Ég sá ekki alveg nægilega vel en Aron fær högg á höfuðið. Athyglisvert að gefa gult fyrir þetta.
52. mín
Þetta eru tvö bestu varnarlið deildarinnar...
Það er ótrúlegt að hérna eru tvö bestu varnarlið deildarinnar að mætast. Það hefði ekki talist heimskulegt að giska á markalaust jafntefli hér fyrir leik. Svona er fótboltinn nú ótrúlegur stundum.
Njarðvík
50. mín
MARKAVEISLAN HELDUR ÁFRAM!

Arnleifur Hjörleifsson

Hvað er að gerast hérna? Njarðvíkingar með alls konar pláss. Björn Aron á fyrst skot sem fer í slána. Í kjölfarið dettur boltinn fyrir Arnleif sem nær að klára með fínu skoti. Njarðvíkingar að taka forystuna aftur.
49. mín
Ég held að Oumar Diouck sé í sjokki að hann hafi ekki skorað þarna. Ótrúlegt.
48. mín
HAAAAAAA
Oumar Diouck kominn í dauðafæri og allir á vellinum halda að hann sé að skora en hann setur boltann í stöngina. Grindvíkingar setja hann svo aftur fyrir í horn.
46. mín
Bæði lið eru í sérstökum treyjum
Leikurinn er styrktarleikur fyrir Ingvar Jónsson sem berst við krabbamein. Bæði lið leika hér í sérstökum treyjum Ingvars til heiðurs. Á treyjunum má finna m.a. ártöl yfir hvenær Ingvar hefur orðið Íslands- og bikarmeistari. Treyjur beggja liða munu fara á uppboð sem fer fram í einkaskilaboðum til Knattspyrnudeildar Njarðvíkur á Facebook þar sem allur ágóðinn rennur til styrktar Ingvari Jónssyni og fjölskyldu.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn
Þetta er farið aftur af stað!
45. mín
Ótrúlegur fyrri hálfleikur að baki hér á JBÓ vellinum í Njarðvík þar sem staðan er 3-3. Undirritaður biðst afsökunar á því að engin textalýsing var í fyrri hálfleiknum, en það verður bætt upp fyrir það í síðari hálfleiknum. Liðin eru að ganga aftur út á völlinn. Vonandi fáum við bara fleiri mörk í þetta.
Grindavík
42. mín
MAAAARK!

Gunnleifur Orri Gunnleifsson

40. mín
Staðan 3-2
Njarðvík
38. mín
MAAAARK!

Leandro Fernandes

Njarðvík
26. mín
MAAAARK!

Leandro Fernandes

Grindavík
17. mín
MAAAARK!

Rúnar Ingi Eysteinsson

Njarðvík
12. mín
MAAAARK!

Aron Einarsson

Grindavík
6. mín
MAAAARK!

Stefán Jón Friðriksson

1. mín
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.