Leik lokið!
Þetta var sannfærandi!
4-1 Fylkissigur staðreynd. Hann hefði getað orðið stærri. Viðtöl og skýrsla væntanleg
95. mín
HÆTTA
Aftur fer í Guy Smit í skógarhlaup en í þetta sinn nær hann ekki til boltans. Dagur Traustason er hins vegar of lengi að athafna sig og varnarmaður Njarðvíkur nær að komast inn í skot hans
93. mín
303 áhorfendur í kvöld
91. mín
Fimm mínútur í uppbót
90. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtBirkir Eyþórsson
85. mín
Gult spjald
Símon Logi Thasaphong
Sparkar Bjarka Steinsen niður80. mín
InnKári Sigfússon
ÚtTheodór Ingi Óskarsson
79. mín
Oumar Diouck skýtur útaf í góðu færi
78. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
78. mín
InnDagur Traustason
ÚtEyþór Aron Wöhler
78. mín
InnGuðfinnur Þór Leósson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
71. mín
Gult spjald
Birkir Eyþórsson
68. mín
InnHaraldur Smári Ingason
ÚtEiður Aron Sigurbjörnsson
68. mín
InnSigurjón Már Markússon
ÚtAron Einarsson
67. mín
Gott víti
Bragi Karl Bjarkason
Sendir Ólaf í vitlaust horn, fast í vinstra hornið66. mín
Njarðvík fær víti
Theodór Ingi er klaufi. Omar Diouck er sloppinn í gegn en Theodór eltir hann uppi. Þeir eru báðir komnir inn í teig og Theodór er réttum megin við Omar en togar hann svo niður.
Fylkismenn ósáttir með dóminn
Fylkismenn ósáttir með dóminn
63. mín
Frábært spil hjá Fylki, nokkrir þríhyrningar í teig gestanna sem endar með skoti Guðmunds sem er varið
62. mín
Guy Smit!
Langur bolti á Guðmund Tyrfings sem er sloppinn einn í gegn. Guy Smit sér hins vegar við honum
59. mín
Hröð sókn Fylkis endar með fínu skot frá Eyþóri Wöhler sem er þó varið
58. mín
Máni Austmann með fínt skot fyrir utan teig sem er varið
55. mín
Hörkuskot
Orri Sveinn með boltann utarlega í teig eftir hornspyrnu Fylkis. Lætur vaða en aftur ver Guy Smit vel
54. mín
Dauðafæri
Tumi sloppinn einn í gegn en Guy Smit ver vel frá honum
51. mín
Þetta var áhugavert
Guy Smit fer í skógarhlaup og nær boltanum á undan Theodóri Inga. Hann ákveður síðan að reyna að skýla boltanum og missir hann frá sér í innkast. Fylkismenn reyna að taka það hratt en Smit og Theodór flækjast saman þegar Smit reynir að hlaupa tilbaka. Arnar flautar og Fylkismenn þurfa að taka innkastið aftur
47. mín
Fylkir skorar rangstöðumark
Eyþór Wöhler með fyrirgjöf á Guðmund Tyrfings sem klárar vel á fjær. Þetta var tæpt
46. mín
InnStefán Gísli Stefánsson
ÚtArnar Helgi Magnússon
46. mín
InnSímon Logi Thasaphong
ÚtLeandro Fernandes
46. mín
InnValdimar Jóhannsson
ÚtBjörn Aron Björnsson
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Njarðvík gerir þrefalda breytingu í hálfleik
45. mín
Fjörugum fyrri hálfleik lokið. Fylkismenn búnir að leika á alls oddi og leiða með fjórum mörkum
43. mín
Fylkir að pakka Njarðvík saman
Guðmundur Tyrfingsson (stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson)
Theodór með frábæra fyrirgjöf af hægri kantinum á Guðmund Tyrfings sem klárar færið af mikilli list.40. mín
Spurning hvort Guy hafi náð að bjarga honum á línu og þá er þetta sjálfsmark, leyfum hins vegar Guðmundi að njóta vafans
Þetta var skrautlegt
Guðmundur Tyrfingsson (stoðsending: Bjarki Steinsen Arnarsson)
Boltinn hrekkur til Bjarka inn í teig. Hann á fasta fyrirgjöf sem skoppar aðeins en fer þó beint á Guðmund á fjærstöng sem er nánast með allt markið fyrir framan sig. Hann hittir boltann illa og Guy Smit reynir að bjarga á línu, slær boltanum í Björn Aron og inn.Spurning hvort Guy hafi náð að bjarga honum á línu og þá er þetta sjálfsmark, leyfum hins vegar Guðmundi að njóta vafans
38. mín
Gult spjald
Bjarki Steinsen Arnarsson
Rífur Oumar Diouck niður37. mín
Bragi Karl með skot úr aukaspyrnu sem fer í vegginn en hrekkur aftur til hans. Viðstöðulaust skot hans fer svo beint á Ólaf í markinu
32. mín
2-0!!!!
Birkir Eyþórsson (stoðsending: Máni Austmann Hilmarsson)
Theodór Ingi með boltann á hægri kantinum og sendir út á Mána Austmann. Hann framlengir á Birki sem á skot rétt fyrir utan teig. Það fer af Arnleifi og inn29. mín
Njarðvík fær sína fyrstu hornspyrnu
23. mín
Leikurinn hefur verið í jafnvægi eftir að Árbæingar komust yfir
18. mín
Theodór Ingi í fínu skotfæri fyrir utan teig. Skot hans fer yfir
12. mín
Þetta var beint af æfingasvæðinu
Skemmtilegt mark
Birkir Eyþórsson (stoðsending: Máni Austmann Hilmarsson)
Fylkir fær aukaspyrnu í fyrirgjafarstöðu. Tumi Fannar kemur með lúmska sendingu meðfram jörðinni á Mána Austmann sem fór í hlaupið á nærstöng. Hann kemur boltanum inn í pakkann og þar er Birkir Eyþórsson sem potar boltanum í netið.Þetta var beint af æfingasvæðinu
9. mín
Gult spjald
Oumar Diouck
Fálmar hendinni og fer í andlitið á Bjarka Steinsen6. mín
Einn í gegn
Bragi Karl er sloppinn einn í gegn. Það er stundum sagt að það sé verra að fá of mikinn tíma í færunum og á það við í þessu tilviki. Ólafur Kristóger étur Braga.
4. mín
Dauðafæri
Guðmundur Tyrfings með frábæran bolta á Eyþór Wöhler. Skalli hans er hins vegar misheppnaður
3. mín
Njarðvík setur boltann í netið
Bragi Karl með frábæran sprett upp að endalínu og sendir út. Alexander Helgi skorar af öryggi. Bragi Karl missti hins vegar boltann útaf í sprettinum og Fylkir fær markspyrnu
1. mín
Þetta er komið af stað
Heimamenn byrja leikinn
Fyrir leik
Örlítil töf
Aðstoðardómararnir standa við sitthvort markið. Það þarf væntanlega að laga netið
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, gerir eina breytingu á sínu liði frá 2-5 sigri gegn Vestra. Orri Sveinn Segatta kemur inn fyrir Guðfinn Þór Leósson.
David Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, gerir sömuleiðis eina breytinga frá leik síðasta leik. Bragi Karl Bjarkason kemur inn fyrir Símon Loga Thasaphong.
David Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, gerir sömuleiðis eina breytinga frá leik síðasta leik. Bragi Karl Bjarkason kemur inn fyrir Símon Loga Thasaphong.
Fyrir leik
14. umferðin
Í gær
Afturelding 3 - 2 Leiknir R. (Malbiksstöðin að Varmá)
Í dag
19:15 Fylkir-Njarðvík (tekk VÖLLURINN)
Á morgun
14:00 Grindavík-ÍR (Stakkavíkurvöllur)
14:00 Grótta-Ægir (Vivaldivöllurinn)
16:00 Þróttur R.-Völsungur (AVIS völlurinn)
Á mánudaginn
19:15 HK-Vestri (Kórinn)
Afturelding 3 - 2 Leiknir R. (Malbiksstöðin að Varmá)
Í dag
19:15 Fylkir-Njarðvík (tekk VÖLLURINN)
Á morgun
14:00 Grindavík-ÍR (Stakkavíkurvöllur)
14:00 Grótta-Ægir (Vivaldivöllurinn)
16:00 Þróttur R.-Völsungur (AVIS völlurinn)
Á mánudaginn
19:15 HK-Vestri (Kórinn)
Fyrir leik
Spáin
Góðvinur Fótbolta.net, Balvin Már Borgarsson, spáir í 14. umferð Lengjudeildarinnar.
Fylkir 1 - 1 Njarðvík
„Hér mætast stálin stinn, þétt skák sem endar með jafntefli."
Fylkir 1 - 1 Njarðvík
„Hér mætast stálin stinn, þétt skák sem endar með jafntefli."
Fyrir leik
Vendingar í Njarðvík
Félagsskiptaglugginn opnaði í gær og Njarðvíkingar eru búnir að sækja sér leikmann. Miðjumaðurinn ungi, Viktor Nói, mun leika með liðinu út tímabilið, en hann kemur á láni frá FH.
Þá rifti Guðmundur Magnússon samningi sínum við félagið og er genginn til leiks við Víking Ólafsvík.

Þá rifti Guðmundur Magnússon samningi sínum við félagið og er genginn til leiks við Víking Ólafsvík.

Fyrir leik
Fylkir
Fylkir er í öðru sæti deildarinnar með 27 stig og í þéttum pakka á toppi deildarinnar. Fylkismenn mæta heitir til leiks, þeir hafa unnið fimm af síðustu sex leikjum í deild og bikar. Liðið fór til Ísafjarðar á mánudaginn og vann sannfærandi 5-2 sigur á Vestra.


Fyrir leik
Njarðvík
Njarðvík situr í 6. sæti deildarinnar með 20 stig. Stigasöfnunin gekk brösulega fyrri hluta móts en liðið hefur nú unnið tvo síðustu leiki. Síðasti leikur var vægast sagt áhugaverður, 5-4 sigur gegn Grindvíkingum, í leik þar sem tvo þétt og varnarsinnuð lið áttu að mætast.


Fyrir leik
Dómarateymið
Arnar Ingi Ingvarsson er dómari leiksins og honum til aðstoðar eru Arnþór Helgi Gíslason og Mikael Ívan Axelsson. Dómaraeftirlitsmaður er Sigurður Hannesson.


Fyrir leik
Lengjan kallar
Góða kvöldið kæru lesendur og verið þið velkomnir í þráðbeina textalýsingu frá Tekk vellinum. Hér mun Fylkir taka á móti Njarðvík í 14. umferð Lengjudeildarinnar.







