SKÝRSLAN: 7 marka leikur út á Seltjarnarnesi
Hvað réði úrslitum?
Gæðaleysi Ægismanna réði úrslitum því miður. Ég tek ekkert af Gróttu en Ægir sáu lítið sem ekkert til sólar hér í dag og Grótta nýtti sér það.
Bestu leikmenn
1. Mattías Kjeld
Skoraði tvennu hér í dag og hann hélt áfram að sýna það hversu efnilegur hann er.
2. Björgvin Brimi Andrésson
Skoraði fjórða mark fyrri hálfleiks og var mjög ógnandi fram á við.
Atvikið
Fyrsta mark Gróttu sem Nökkvi Már Nökkvason skoraði. Þá var eins og allt sjálfstraust Ægismanna hafi horfið og flóðgáttir galopnuðust.
Hvað þýða úrslitin?
Grótta hefur lyft sér upp í umspilssæti. Pakkinn er þéttur en 5. sætið er þeirra það sem eftir lifir umferðar að minnsta kosti. Ægir vermir enn botn deildarinnar, jafnir að stigum við Völsung.
Vondur dagur
Verð að setja þennan stimpil á allt Ægisliðið. Fyrir utan fyrstu 10 mínúturnar og markið sem þeir skoruðu þá voru þeir alveg afleitir, allir sem einn.
Dómarinn - 7
Lítið út á Brynjar að setja. Ég set samt spurningamerki á mögulegt víti sem Grótta átti að fá í seinni hálfleik en hvort heldur sem er kom það ekki af sök.



