SKÝRSLAN: Þróttarar aftur á sigurbraut
Hvað réði úrslitum?
Þróttararnir voru betra liðið í leiknum nánast allan tímann. Fyrri hálfleikurinn var gjörsamlega þeirra eign en þeir fóru illa með þær stöður sem þeir fengu. Í seinni hálfleik komu þeir boltanum loksins í markið en fóru svo að spila hættulegan leik síðustu 15 mínúturnar. Þeir féllu ansi langt niður og voru með því að bjóða hættunni heim en heppilegt að þeir voru að spila á móti Völsungi en ekki Argentínu og náðu að halda þetta út.
Bestu leikmenn
1. Aron Snær Ingason (Þróttur)
Skorar eina mark leiksins í leik þar sem Þróttarar voru búnir að vera í basli með að taka færin sín. Það þurfti töfra sem Aron Snær mætti með í dag en markið var úr efstu hillu. Mikill kraftur sem fylgir honum í hverjum einasta leik en hann lætur varnarmenn mótherjanna aldrei í friði, minnir helst á mýflugu.
2. Jochum Magnússon (Völsungur)
Jochum stóð sína vakt með algjörri príði í markinu. Þróttararnir gerðu honum ekkert erfitt fyrir en þrátt fyrir að skotin komi beint á markið þarf samt að verja þau og Jochum var bara öruggur í sínu í dag. Var vel á verði þegar Þróttur reyndi sendingar inn fyrir og öruggur í föstum leikatriðum. Hann fær einnig mikið traust í spili út frá marki sem hann leysti með sóma heilt yfir.
Atvikið
Það hlýtur að vera eina mark leiksins. Þróttarar voru búnir að sækja stanslaust allan leikinn án þess að ná almennilegri tilraun á markið sem reyndi á Jochum í markinu. Aron Snær Ingason sá heldur betur til þess að Jochum yrði sigraður með frábæru einstaklings framtaki þegar hann skrúfaði boltann í fjær.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttararnir halda í við toppliðin en tap eða jafntefli í dag hefði sett þá í mjög erfiða stöðu. Þeir eru í 3. sæti fjórum stigum frá Aftureldingu sem er á toppnum. Völsungur sitja sem fastast í fallsæti, fimm stigum frá öruggu sæti.
Vondur dagur
Skallatækni Þróttara varð til þess að þessi leikur vannst ekki stærra. Þeir fengu urmul af föstum leikatriðum þar sem spyrnurnar hittu enni samherja en annað hvort hittu þeir ekki markið eða settu hann beint á Jochum í markinu. Venni sagði í viðtali eftir leikinn að strákarnir hafi ætlað að gefa honum skallamark í afmælisgjöf en það tókst heldur betur ekki. Þrjú stigin verða að duga sem gjöf í þetta skiptið.
Dómarinn - 8
Mér fannst Elías Ingi bara með þennan leik í teskeið. Ekki erfiður leikur að dæma en hann gerði sitt vel. Leikurinn fékk að fljóta en flautan þó rifin upp þegar á því var þörf. Ekki við öðru að búast frá einum besta dómara landsins.


