Leik lokið!
0-1 iðnaðarsigur í dag hjá Selfyssingum! Bæði lið fengu góð færi en Selfyssingar vörðust heilt yfir vel og náði að sigla þessu heim! Mikilvægt fyrir Selfyssinga! Takk fyrir mig.
92. mín
Javier Munoz með fínt skot en Filip ver vel
90. mín
Gult spjald
Geir Sigurbjörn Ómarsson
88. mín
Gult spjald
Javier Montserrat Munoz
88. mín
Gult spjald
Elías Karl Heiðarsson
87. mín
Ná selfyssingar að halda þetta út?
85. mín
Aftur vilja KFA víti og eru brjálaðir!! Sá þetta ekki almennilega en þeir vildu hendi
83. mín
Viðar Örn er búinn að vera í strangri gæslu hafsenta KFA í dag en gert vel þegar hann fær boltann og skoraði flott mark
82. mín
InnNenni Þór Guðmundsson
ÚtÍsak Eldur Ófeigsson
79. mín
KFA vilja víti! Patrekur Aron fer niður, Mér fannst vera sparkað aftaní hann úr þessu sjónarhorni sem ég er í
76. mín
Dauðafæri hjá Selfyssingum! Aron Fannar fær boltann inná teig KFA, Enginn í honum en hann hittir boltann illa og framhjá fer hann!
75. mín
InnPatrekur Aron Grétarsson
ÚtÓlafur Bernharð Hallgrímsson
73. mín
KFA með góða sókn sem endar með skalla frá Javier Munoz en hann í litlu jafnvægi og skallar hann langt framhjá
70. mín
MAAAARK!
Viðar Örn Kjartansson
Elías Karl með sturlaðan sprett útá vinstri kantinum, Kemur sér inní teig og á Sendingu á Viðar Örn sem potar honum í fjærhornið, Bíður Viðari ekki svona færi tvisvar! 0-169. mín
Elías Karl í fínu færi en Danny ver vel , Horn fyrir Selfyssinga
68. mín
Mikil stöðubarátta þessar mínútur
63. mín
InnElías Karl Heiðarsson
ÚtAron Lucas Vokes
60. mín
Einar Bjarki í besta færi leiksins!! Hvernig skoraru ekki drengur, Fær boltann rúllandi þægilega fyrir mark KFA , Stendur aleinn á markteig, Bara hann gegn danny, En setur hann yfir!
55. mín
Marc Espi með góða tilraun inná teig Selfyssinga, Bakfallsspyrna sem Filip ver yfir, Sjónvarps varsla!
54. mín
Selfyssingar ná ekki að halda neitt í boltann, KFA grimmir
50. mín
Horn fyrir KFA , klafs í teignum og boltinn dettur fyrir Simon Maas en skot hans yfir
47. mín
Dauðafæri!!! Simon Maas í skallafæri inná markteig og skallinn rétt framhjá!
46. mín
Farið aftur af stað!
46. mín
0-0 í hálfleik, Bæði lið fengið færi. 15 mín pása svo seinni!
45. mín
Sýndist það vera Eysteinn sem þurfti að fara útaf meiddur
43. mín
InnEinar Bjarki Einarsson
ÚtEysteinn Ernir Sverrisson
38. mín
Javier Munoz með fínt skot sem Filip ver vel
37. mín
Jawed með góðan sprett og skot sem fer í varnarmann og framhjá marki selfyssingar, Horn, Selfoss verjast þessu
35. mín
Horn fyrir KFA, Selfyssingar verjast vel
33. mín
Jafnvægi í þessu og lítið að gerast þannig séð
29. mín
Það er hiti í þessu, Bekkirnir að rífast sín a milli og hiti inná vellinum líka
26. mín
Gult spjald
Jawed Abd El Resak Boumeddane
23. mín
Aron Vokes í fínu færi en Brynjar Valur verst vel og fær boltann í sig
19. mín
Aukaspyrna útá kanti fyrir KFA, Geir með góðan kross sem siglir framhjá öllum og framhjá fjærstönginni
16. mín
Eysteinn Ernir með flottan sprett, Á svo góða fyrirgjöf sem veldur vandræðum fyrir Danny og Viðar nær næstum því til boltans
12. mín
Selfyssingar stjórna ferðinni núna
10. mín
Váá! þarna sluppu KFA , Viðar Örn í góðu færi sem endar með Skoti í innanverða stöngina!!
9. mín
Aron Vokes í góðu færi en skot hans yfir mark KFA
6. mín
Selfyssingar aðeins að vakna hérna
5. mín
Selfyssingar vinna horn, KFA verjast vel
4. mín
Javier Munoz með gott skot rétt yfir mark Selfyssinga!
2. mín
KFA fær aukaspyrnu á hættulegum stað, Geir með fínt skot en Filip ver vel
1. mín
Farið af stað!
Fyrir leik
Liðin koma hér labbandi inná völlinn, KFA lagið hljómar undir. Þetta er að bresta á.
Fyrir leik
Enginn Jón Daði í hóp hjá selfyssingum, Einnig er Eggert Gunnþór meiddur hjá KFA.
Fyrir leik
Fannar Bjarki heilsar ykkur héðan frá Neskaupstað í frábæru veðri. Logn og hlýtt.
Stórleikur hérna í dag, KFA taka á móti selfyssingum. Mikilvægur leikur fyrir bæði lið, Sérstaklega Selfoss sem þurfa 3 stig í topp baráttunni.
Stórleikur hérna í dag, KFA taka á móti selfyssingum. Mikilvægur leikur fyrir bæði lið, Sérstaklega Selfoss sem þurfa 3 stig í topp baráttunni.


