Fotbolti.net
@fotboltinetÍvar Björgvinsson
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
0 - 0
ÍR
ÍR
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Fyrir leik
Langt upp í næstu sæti
Grindavík og ÍR eru í 9. og 10. sæti, fjórum og fimm stigum fyrir ofan fallsæti en það er enn lengra upp í 8. sætið. Grótta er í 8. sæti með 19 stig en þar fyrir ofan er pakkinn nokkuð þéttur. Sigurvegari leiksins getur því aðeins komist nær miðjumoðinu en tap í dag og fallbaráttan blasir við.
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin spiluðu við hvort annað í 3. umferð í Breiðholtinu og leiknum lauk með 2-2 jafntefli. ÍR komst í 2-0 í fyrri hálfleik eftir mörk frá Víði Frey og Emil Nóa. Rafael Victor skoraði svo úr vítaspyrnu um miðjan seinni hálfleik áður en Lárus Orri Ólafsson jafnaði metin á 90. mínútu og þar við sat.
Fyrir leik
Dómarateymið
Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er dómari leiksins en honum til aðstoðar verða þeir Þráinn Jón Elmarsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson. Dómaraeftirlitsmaður er Einar Örn Daníelsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍR
ÍR-ingar eru í 10. sæti með 12 stig, stigi minni en Grindvíkingar. ÍR hefur aðeins sótt tvö stig í síðustu fimm leikjum sínum en síðasti sigurleikur þeirra kom einnig gegn Gróttu en sá leikur var pilaður 17. júní, svo Breiðhyltingar telja eflaust vera kominn tími á næsta sigur.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Grindavík
Heimamenn hafa átt heldur rólegt tímabil en hafa þó aðeins verið að bíta frá sér í seinustu leikjum. Liðið tapaði 5-4 fyrir Njarðvík í rosalegum leik í 12. umferðinni og vann síðan 1-2 útisigur gegn Gróttu og náðu þar með að búa til smá bil niður í fallsætin tvö. Grindavík er með 13 stig eftir 13 leiki en liðið er í 9. sæti, fimm stigum fyrir ofan Völsung og Ægi sem eru í fallsætunum tveimur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stakkavíkurvöllur tekur á móti okkur!
Sæll öll sömul og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik Grindavíkur og ÍR sem fer fram í Grindavík í 14. umferð Lengjudeildar karla.
Mynd: Alexander Tonini

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.