13. mín
Aftur sveiflar Dagur boltanum inn í teig og aftur hreinsa heimamenn. Svo brjóta Blikar af sér.
12. mín
Dagur Örn sveiflar boltanum inn í teiginn en heimamenn hreinsa. Sóknin heldur áfram og Blikar ná svo í annað horn hinumegin.
12. mín
Blikar fá sitt fyrsta horn.
7. mín
Blikar með skot
Aron Bjarna vinnur boltann á vallarhelmingi FH-inga og geysist áfram upp miðjan völlinn. Hann tekur svo skotið fyrir utan teig, en er aðeins kominn úr jafnvægi og dregur boltann framhjá.
3. mín
Langur bolti og hætta!
Oliver Stefánsson með skemmtilega gabbhreyfingu í öfustu línu, og fer framhjá einum. Svo kemur hann með langan bolta fram og þvert yfir völlinn. Davíð Ingvars nær aðeins að pota í hann en boltinn fer í Adolf og skýst áfram. Adolf þá sloppinn í gegn, en varnarmenn Blika ná að þrengja að honum og plássið orðið ekkert, þannig að Blikar ná bara að vinna boltann af honum.
2. mín
Fyrsta skotið!
Gils fær boltann úti vinstra megin, klappar boltanum tvisvar og lætur svo bara vaða. Fínasta skot en Anton sér við honum.
1. mín
Gunnar flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Styttist í þetta
Leikmenn og dómarar ganga inn á völl, upphafssparkið eftir smá.
Fyrir leik
FH og Breiðablik eru tvö ung og spræk lið sem vilja sækja og ég myndi segja að sóknarlega séu þau bæði töluvert betri en varnarlega, yfir 3,5 mörk er á stuðlinum 2.02 á Epic, mæli með.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) July 20, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir fjóra breytingar á liðinu frá síðasta leik, þegar FH vann Val 2-0. Nýju mennirnir Jóhannes Kristinn Bjarnason og Oliver Stefánsson koma beint í byrjunarliðið, auk Ísak Óla Ólafssyni og Gils Gíslasyni. Það eru þá fjórir sem færa sig á bekkinn, en það eru Grétar Snær Gunnarsson, Sverrir Páll Hjaltested, Arngrímur Bjartur Guðmundsson og Róbert Hugi Sævarsson.
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir einnig fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Það er einnig einn nýr sem byrjar hjá Breiðablik, en það er Hlynur Freyr Karlsson. Hinir sem koma inn í byrjunarliðið frá síðasta leik eru Aron Bjarnason, Dagur Örn Fjeldsted, og Þór Andersen Willumsson.
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir einnig fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Það er einnig einn nýr sem byrjar hjá Breiðablik, en það er Hlynur Freyr Karlsson. Hinir sem koma inn í byrjunarliðið frá síðasta leik eru Aron Bjarnason, Dagur Örn Fjeldsted, og Þór Andersen Willumsson.
Fyrir leik
Spáin
Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, tók að sér að spá í leikina sem framundan eru.
FH 1 - 2 Breiðablik
Það er komið að því að Blikar nái í þrjú stig í Krikanum. Það eru einhver meiðsli hjá Blikum en það mun ekki hafa áhrif á liðið í þessum leik. Viktor Örn og Ágúst Orri klára þennan leik.
FH 1 - 2 Breiðablik
Það er komið að því að Blikar nái í þrjú stig í Krikanum. Það eru einhver meiðsli hjá Blikum en það mun ekki hafa áhrif á liðið í þessum leik. Viktor Örn og Ágúst Orri klára þennan leik.
Fyrir leik
Dómarinn
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna í kvöld, en honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Fjórði dómari verður Elías Ingi Árnason og eftirlitsmaður Þórður Ingi Guðjónsson. 

Fyrir leik
Blikar lang fjórða besta liðið
Oft á tíðum hefur verið hægt að skipta upp deildinni í nokkra hluta út frá stigafjölda, og frammistöðu. Í ár virðist Breiðblik vera í algjörum sérflokki hins vegar sem fjórða besta liðið. Þeir eru sex stigum á undan Val sem er í 5. sæti, en miðað við gengi þeirra er líklegt að það bil verði stærra. Svo eru þeir 8 stigum á eftir Fram í 3. sæti. Blikar eiga hins vegar bikar úrslitin eftir, og þar geta þeir verið bestir.

Fyrir leik
FH ósigraðir fimm leiki í röð
Eftir skelfilega byrjun á mótinu hafa FH-ingar verið miklu flugi. Af þeim 11 stigum sem þeir eru með hafa þeir náð í 9 þeirra í síðustu fimm leikjum. Það eru tveir sigrar og þrjú jafntefli, þar sem í síðustu umferð unnu þeir Val 2-0. Ekkert af þessum leikjum hefur hins vegar verið gegn fjórum efstu liðunum, og því bíður þeirra erfitt verkefni í dag. 

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik FH og Breiðablik í Bestu deild karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður spilaður á Kaplakrikavelli. 







