Leik lokið!
Fjörugum leik lokið. Sanngjarn sigur. Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg
93. mín
MAAAARK!
Albert Ingi Jóhannsson (sjm)
Dagur Ingi kominn upp að endalínu og á fastan bolta fyrir sem fer í Albert og inn.89. mín
Vestri betri aðilinn þessa stundina
85. mín
Aftur klóra gestirnir í bakkann
Marinó Steinar Hagbarðsson (stoðsending: Chriss-Albin Mörfelt)
Chriss-Albin með fína takta á miðjunni. Hann finnur Marinó sem á gott skot rétt fyrir utan teig sem Ólafur Örn nær ekki til82. mín
Léleg spyrna
Gunnar Jónas Hauksson
Eins og Gunnar renni aðeins í skotinu. Þetta var laust og alls ekki út við stöng81. mín
Vestri fær víti!
Mér sýnist þetta vera rétt, Nökkvi togar aðeins í Gunnar Jónas sem ætlar á punktinn sjálfur
80. mín
InnAlbert Ingi Jóhannsson
ÚtThibang Sindile Theophilius
77. mín
InnNökkvi Arnarson
ÚtÍvar Orri Gissurarson
77. mín
InnAlexander Örn Guðmundsson
ÚtDominik Radic
76. mín
HK fær horn sem Jóhann Þór fiskar, hann hefur komið vel inn í þetta
73. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtJacob Stensson
73. mín
InnBirkir Eydal
ÚtSergine Modou Fall
72. mín
Gerir út um þetta
Dominik Radic (stoðsending: Jóhann Þór Arnarsson)
Góður sprettur hjá Jóhanni, finnur Radic og þá er voðinn vís fyrir gestina. Hann klárar færið listavel71. mín
FÆRI
Þórður Gunnar í góðu færi, fór nógan tíma til þess að athafna sig inn í teig en skýtur yfir
70. mín
InnEmmanuel Agyeman Duah
ÚtBreki Þór Hermannsson
70. mín
InnMarinó Steinar Hagbarðsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
68. mín
InnBaldvin Dagur Vigfússon
ÚtAtli Hrafn Andrason
68. mín
InnJóhann Þór Arnarsson
ÚtTumi Þorvarsson
68. mín
InnDagur Ingi Axelsson
ÚtKarl Ágúst Karlsson
67. mín
Frábært mark!
Guðmundur Arnar Svavarsson (stoðsending: Sergine Modou Fall)
Sergine Fall með flotta takta á hægri kantinum. Á frábæra fyrirgjöf á hinn vængbakvörð liðsins, Guðmund Arnar, sem klárar þetta listavel62. mín
Frábær björgun
Tumi keyrir upp vinsri kantinn og rennir honum fyrir á Radic en Thibang Phete nær til boltans á undan Radic. Frábær tækling, Radic hefði skorað
58. mín
Gult spjald
Elmar Atli Garðarsson
Brýtur á Tuma, HK fær aukaspyrnu á vænlegum stað en ekkert verður úr henni56. mín
HK-ingar skora, en eru rangstæðir
Viktor Helgi skallar hann inn eftir sendingu Arons Kristófer en er réttilega dæmdur rangstæður. Frábært mark engu að síður
50. mín
DAUÐAFÆRI
Flott spil hjá heimamönnum. Tumi með fasta sendingu þvert fyrir markið á Radic. Hann er í raun með allt markið fyrir framan sig en þarf að teygja sig aðeins í boltann og skotið fer naumlega framhjá
46. mín
HK fær hornspyrnu, flott spyrna hjá Ívari Erni en nafni hans skallar framhjá
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Heimamenn byrja þetta, spennandi að sjá hvað gerist í þeim síðari
45. mín
4-0 í hálfleik!
Twana flautar fyrri hálfleik af. Yfirburðirnir hjá heimamönnum verið miklir og ég verð að hrósa þeim fyrir að keyra yfir Vestraliðið eftir að fyrsta markið kom. Við skulum vona að Daniel Badu haldi svipaða ræðu og Didier Deschamps hélt um helgina
44. mín
Heimamenn hamra járnið
Karl Ágúst Karlsson (stoðsending: Tumi Þorvarsson)
Frábær skyndisókn! Atli Þór finnur Tuma sem er óeigingjarn og rennir honum á Karl Ágúst sem getur ekki gert annað en að skora43. mín
HK-ingar með fullkomna stjórn á leiknum. Gestirnir þurfa að passa sig því heimamenn gætu klárað leikinn.
37. mín
HK-ingar voru búnir að banka hressilega og markið fyllilega verðskuldað.
Þetta lá í loftinu!
Viktor Helgi Benediktsson (stoðsending: Atli Hrafn Andrason)
Atli Hrafn með hornspyrnuna. Viktor Helgi er illa dekkaður og fær flugbrautina á fjærstöng. Hann stangar boltann í gagnstætt horn.HK-ingar voru búnir að banka hressilega og markið fyllilega verðskuldað.
32. mín
Tumi með flotta tilraun fyrir utan teig. Marvin ver
27. mín
Áhugavert mark
Tumi Þorvarsson (stoðsending: Aron Kristófer Lárusson)
Aron Kristófer með langan bolta fram á Tuma. Það ætti ekki að vera vandamál fyrir Elmar Atla að stíga Tuma út en hann slekkur á sér í splitsekúndu. Tumi nær fyrstur til boltans og potar honum yfir Marvin í markinu. Frábær afgreiðsla en Elmar Atli án efa svekktur út í sjálfan sig þarna.25. mín
Hann átti þetta skilið
Dominik Radic (stoðsending: Ívar Örn Jónsson )
Dominik Radic búinn að vera mjög líflegur það sem af er leiks. Fyrirgjöf Ívars ratar á pönnuna á honum jafnvel þó Edson Gomes og Thibang Phete hafi verið límdir við hann.21. mín
Radic búinn að vera mjög sprækur. Á fínt skot sem fer framhjá
18. mín
Allir ósáttir út í Twana
Atli Hrafn brýtur frekar greinilega á Gunnari Jónasi. Twana dæmir ekkert og þá keyrir Breki Þór í Atla eftir að hann losar boltann frá sér.
Bæði lið vildu brot en Twana gleypti flautuna
Bæði lið vildu brot en Twana gleypti flautuna
15. mín
Stöng
Atli Hrafn með hornspyrnu sem ratar á Þorstein Aron á nærstönginni. Skalli hans fer í stöngina
14. mín
Radic
Viktor Helgi með innkast inn í teig á Radic. Hann er með mann í baking sem hann snýr af sér og á gott skot rétt framhjá markinu.
Í næstu sókn leikur hann á varnarmann og er kominn í góða stöðu. Skotið fer hins vegar beint á Marvin
Í næstu sókn leikur hann á varnarmann og er kominn í góða stöðu. Skotið fer hins vegar beint á Marvin
7. mín
Flott sókn Vestra endar með skoti Guðmundar Arnars í hliðarnetið úr þröngri stöðu.
Stuðningsmenn Vestra taka við sér
Stuðningsmenn Vestra taka við sér
5. mín
Ívar Örn með lúmska skottilraun úr aukaspyrnunni sem fer framhjá
2. mín
Þetta var ljótt
Atli Hrafn og Edson Gomes í baráttu um skallabolta. Atli Hrafn nær fyrr til boltans en Edson fer af miklu harðfylgi í loftið og keyrir inn í Atla sem liggur eftir.
Aukaspyrna á vænlegum stað
Aukaspyrna á vænlegum stað
1. mín
Gestirnir sparka þessu af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, teflir fram óbreyttu liði frá 5-1 sigurleiknum gegn ÍR.
Daniel Badu, þjálfari Vestra, gerir tvær breytingar frá síðasta deildarleik. Edson Dias Gomes og Sergine Fall koma inn fyrir Konstantin Cheshmedjiev og Emmanuel Duah.
Daniel Badu, þjálfari Vestra, gerir tvær breytingar frá síðasta deildarleik. Edson Dias Gomes og Sergine Fall koma inn fyrir Konstantin Cheshmedjiev og Emmanuel Duah.
Fyrir leik
Spáin
Balvin Már Borgarsson var fenginn til þess að spá í 14. umferð Lengjudeildarinnar.
HK 3 - 1 Vestri
HK í Kórnum, Radic að spila fyrir Gunnar Heiðar, þarf ég eitthvað að rökstyðja þetta meira?

HK 3 - 1 Vestri
HK í Kórnum, Radic að spila fyrir Gunnar Heiðar, þarf ég eitthvað að rökstyðja þetta meira?

Fyrir leik
Líður vel í Kórnum
HK er í 4. sæti deildarinnar með 25 stig, fjórum meira en Vestri. Að sögn Gunnars Heiðars, þjálfara HK, hefur verið stígandi í leik liðsins eftir því sem hefur liðið á tímabilið. Liðið hefur unnið tvo leiki í röð, síðast gegn ÍR í leik sem fór 5-1. Gengi HK á heimavelli hefur verið frábært, í sjö leikjum hefur liðið unnið sex og gert eitt jafntefli.


Fyrir leik
Evrópu-Vestri
Vestri situr í 6. sæti deildarinnar 21 stig. Tímabil þeirra hefur að mörgu leiti litast af þáttöku þeirra í Evrópu. Liðið er sigurlaust í síðustu fimm leikjum, þrír þeirra voru í deild og tveir í einvígi gegn Qarabab í forkeppni Evrópudeildarinnar. Á fimmtudag heimsækja Ísfirðingar topplið lettnesku deildarinnar, RFS.


Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins er Twana Khalid Ahmed. Aðstoðardómarar eru Guðni Freyr Ingvason og Óliver Thanh Tung Vú. Krisinn Jakobsson er dómaraeftirlitsmaður.


Fyrir leik
Heimavöllur hlýjunnar
Góðan dag kæru lesendur og verið þið velkomnir í textalýsingu frá Kórnum. Hér munu HK og Vestri mætasti í 14. umferð Lengjudeildarinnar.





