Leik lokið!
Stórmeistarajafntefli hér í Árbæ. Bæði lið fengu sína sénsa en líklegast nokkuð sanngjarnt eftir alltsaman. Skýrsla og viðtöl birtast koma seinna í kvöld, ég þakka fyrir mig.
90. mín
90+5
Fylkismenn líklegri.
88. mín
Mark en rangstaða
Hlynur kemur boltanum í netið og allt tryllist hér á vellinum en flaggið á loft fullseint. Svekkjandi fyrir heimamenn.
87. mín
Aron Snær næstum búinn að ná hausnum í boltann eftir fyrirgjöf en hann rétt missir af honum.
Fáum við sigurmark í þennan leik?
Fáum við sigurmark í þennan leik?
86. mín
InnKári Sigfússon
ÚtGuðmundur Tyrfingsson
86. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtTheodór Ingi Óskarsson
82. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtÓðinn Bjarkason
79. mín
Það hefur færst alvöru hiti í þennan leik.
78. mín
InnEnes Þór Enesson Cogic
ÚtSævar Atli Hugason
78. mín
Töf
Theodór Ingi Óskarsson
76. mín
ÚFFF, mögulega á rauðu svæði
Aron Snær Guðbjörnsson
Fer alltof hátt með fótinn í tæklingu.73. mín
InnGunnar Bergmann Sigmarsson
ÚtBirkir Már Sævarsson
72. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
72. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtEyþór Aron Wöhler
70. mín
Stórleikurinn er ekki að verða fyrir vonbrigðum.
Þvílíkur leikur
Joacim Emil Godhei Holtan
Haukur á frábæran sprett í átt að teignum, sendir svo fyrir og á nærstönginni bíður Joacim sem klárar þægilega í markið.Stórleikurinn er ekki að verða fyrir vonbrigðum.
66. mín
Gult spjald
Eyþór Aron Wöhler
Fer alltof harkalega í Mosfelling.65. mín
Hársbreidd frá miðjumarki
Fylkir vinnur boltann á miðjum vellinum, boltinn berst á Eyþór sem lætur vaða. Arnar hátt upp á vellinum og náði ekki til boltans en boltinn fer rétt framhjá.
64. mín
Gult spjald
Guðmundur Tyrfingsson
61. mín
Upp úr engu eru heimamenn komnir yfir.
HA?!?!?
Theodór Ingi Óskarsson
Fylkir vinnur boltann á miðjum vellinum og eru allt í einu þrír á einn. Enginn sýndi neina eigingirni, létu boltann flakka einn af öðrum á milli kanta og út á enda var Theodór sem klárar fagmannlega framhjá Arnari.Upp úr engu eru heimamenn komnir yfir.
59. mín
Ég sem var nýbúinn að sleppa orðinu og segja að Afturelding hafi átt þennan seinni hálfleik.
ÞEIR SVARA
Guðfinnur Þór Leósson
Hornspyrna hjá Fylki sem ratar beint á kollinn á Guðfinni sem á fastan skalla sem Arnar Daði ræður ekki við.Ég sem var nýbúinn að sleppa orðinu og segja að Afturelding hafi átt þennan seinni hálfleik.
58. mín
Gestirnir hafa haft öll tök á vellinum í þessum seinni hálfleik.
56. mín
Afturelding fær horn
Þarna skapaðist hætta en sem betur fer fyrir heimamenn fer boltinn framhjá.
54. mín
Fylkir hefur byrjað leikinn verr en þeir enduðu þann fyrri. Eru sloppy á boltanum og virðast stressaðir.
50. mín
NEGLA
Haukur Örn Brink
Langt innkast inn í teiginn. Aron Elí flikkar boltanum út úr teignum á Hauk sem hamrar boltanum út við stöng. Volley. Er ekki viss um að sending Aronar hafi verið viljandi eða ekki.46. mín
Allt farið af stað að nýju
Fylkir byrjar með boltann.
45. mín
Hálfleikur
Helgi flautar til hálfleiks
Allt jafnt í Árbænum í hálfleik. Afturelding hefur verið ívið sterkari aðilinn en bæði lið hafa fengið sín færi. Tökum okkur korter.
45. mín
45+4
Leikurinn farinn af stað aftur.
45. mín
45+2
Helgi stöðvar leikinn vegna höfuðmeiðsla hjá Joacim samstuð við Arnór Breka.
42. mín
Hornspyrna á hinum enda vallarins
Fylkir uppsker innkast úr horninu.
41. mín
Afturelding fær hornspyrnu
Haukur með spyrnuna en skallað frá. Fyrir utan teiginn lúrir Birkir Már Sævarsson sem hamrar boltanum í Árbæjarlaug.
37. mín
SLÁIN
Bart með sendinguna inn í teiginn á Óðinn sem er rétt fyrir utan markteigshornið. Hann á hörkuskot sem smellur í þverslánni. Fylkismenn heppnir!
32. mín
Theodór með sendingu á Guðmund inn í teignum en skotið yfir markið.
31. mín
Misheppnuð sending hjá Fylki og Gestirnir allt í einu komnir í skyndisókn en Theodór vinnur vel til baka og vinnur markspyrnu.
29. mín
Afturelding með yfirhöndina þessar mínútur og hafa haft hana meirihluta þessa leiks.
25. mín
Fyrirgjöf kemur inn í teiginn þar sem Joacim Holtan rís manna hæst og á skallann rétt framhjá en flaggið fór á loft hvort sem er.
20. mín
ALLT JAFNT
Óðinn Bjarkason
Þetta fannst mér furðulegt. Langt innkast inn í teiginn en enginn Fylkismaður gerir sig líklegan til þess að ráðast á boltann og koma honum frá. Þá byrjar Afturelding stórskotahríð að marki heimamanna sem endar með marki frá Óðni.18. mín
Afturelding fær hornspyrnu
En ekkert merkilegt kom úr henni.
12. mín
Þetta er búið að vera hraður og grófur leikur en Helgi hefur leyft leiknum að flæða.
7. mín
Dauðafæri
Afturelding í góðri sókn. Sendingin inn í teiginn beint á Hauk sem á skotið beint á Ólaf. Þarna hefði hann mátt gera betur.
6. mín
MAAARRKKK
Guðmundur Tyrfingsson
Fylkir fær hornspyrnu sem gestirnir koma frá en heimamenn halda sókninni áfram. Góð fyrirgjöf inn í teiginn sem var flikkuð áfram af Wöhler sýndist mér, beint á kollinn á Guðmundi sem skallar hann í netið!4. mín
Theodór Ingi með háan bolta yfir hálfan völlinn ætlaðan Eyþóri Wöhler en Andi Hoti framkvæmir eitthvað fimleikastökk og potar boltanum á Arnar í loftinu.
Mikilvæg snerting.
Mikilvæg snerting.
2. mín
Örlítið of föst sending á Joacim Holtan inn í teignum sem nær ekki valdi á boltanum.
1. mín
Þetta er hafið!
Gestirnir sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Heimir Guðjóns á leið til KA?
Fyrir leik
Stórt X í stúkunni
Miðjuhólfið í stúkunni hefur verið girt af með böndum eftir að allt fór úr böndunum í bikarleiknum. Öryggisráðstöfun.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Heimir gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Leikni. Nikulás Val Gunnarsson og Kári Sigfússon setjast á bekkinn. Þeirra í stað koma Theodór Ingi Óskarsson og Bjarki Steinsen Arnarsson.
Maggi gerir jafn margar breytingar á sínu liði frá sigrinum á Grindavík. Haukur Örn Brink og Andi Hota koma inn í stað Gunnars Bergmanns Sigmarssonar og Elmars Cogic.
Maggi gerir jafn margar breytingar á sínu liði frá sigrinum á Grindavík. Haukur Örn Brink og Andi Hota koma inn í stað Gunnars Bergmanns Sigmarssonar og Elmars Cogic.
Fyrir leik
Spámaðurinn
Eiður Gauti Sæbjörnsson er spámaður umferðarinnar en hann spáir 3-1 útisigri hér í kvöld.
"Verður leikur umferðarinnar, stórstjörnur út um allan völl en sú sem mun skína bjartast verður Óðinn Bjarka, setur tvö og leggur upp eitt á pönnuna á Aron Elí. Wöhlerinn svarar fyrir bikarleikinn, kjötar Axel Óskar og skorar eitt en það dugar ekki til. Afturelding með annan fótinn í Bestu og Bomban fer hamförum í stúkunni."
"Verður leikur umferðarinnar, stórstjörnur út um allan völl en sú sem mun skína bjartast verður Óðinn Bjarka, setur tvö og leggur upp eitt á pönnuna á Aron Elí. Wöhlerinn svarar fyrir bikarleikinn, kjötar Axel Óskar og skorar eitt en það dugar ekki til. Afturelding með annan fótinn í Bestu og Bomban fer hamförum í stúkunni."
Fyrir leik
Viðureignir liðanna á tímabilinu
Liðin mættust í 7. umferðinni en þar vann Afturelding 5-1 stórsigur á Fylki.
Svo voru það auðvitað undanúrslit Mjólkurbikarsins sem áttu sér stað hér á Tekk vellinum fyrir um þremur vikum síðan. Þá var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en Afturelding vann leikinn eftir hádramatíska vítaspyrnukeppni. Arnar Daði Jóhannesson varð hetjan þegar hann varði þrjár góðar vítaspyrnur.
Svo voru það auðvitað undanúrslit Mjólkurbikarsins sem áttu sér stað hér á Tekk vellinum fyrir um þremur vikum síðan. Þá var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en Afturelding vann leikinn eftir hádramatíska vítaspyrnukeppni. Arnar Daði Jóhannesson varð hetjan þegar hann varði þrjár góðar vítaspyrnur.
Fyrir leik
Afturelding
Mosfellingar hafa verið á góðu skriði í deildinni undanfarið, með 6 sigra í síðustu 7 leikjum. Þeim tókst að svara fyrir þungt 4-1 tap gegn Þrótti með 4-1 sigri á varnarsinnuðum Grindvíkingum í síðustu umferð. Afturelding situr á toppnum með leik inni á næstu lið. Þeir eru með 34 stig, jafnir að stigum við Þrótt og stigi á eftir Fylki. Jafnari getur deildin eiginlega ekki verið.


Fyrir leik
Fylkir
Fylkismenn hafa verið kaldir í síðustu leikjum. Þeir hafa tapað tveimur af síðustu þremur leikjum sínum í deildinni, og það gegn liðum í neðri hlutanum. 2-0 tap gegn ÍR og 3-0 tap gegn Leikni. Þar á milli unnu þeir Völsung 3-1 á heimavelli. Fylkir situr í þriðja sæti deildarinnar með 33 stig, stigi frá Aftureldingu á toppnum.


Fyrir leik
Dómarar kvöldsins
Helgi Mikael Jónasson verður með flautuna í kvöld. Honum til aðstoðar verða Arnþór Helgi Gíslason og Þráinn Jón Elmarsson. Dómaraeftirlitsmaður þessa leiks verður Björn Guðbjörnsson.


Fyrir leik
Heil umferð spiluð í kvöld
Það er Lengjudeildarveisla í kvöld þar sem öll 18. umferðin verður spiluð. Stuðningsmenn liðanna verða líklegast með annað augað á leik Grindavíkur og Þróttar og vonast eftir að Grindvíkingar nái eitthvað að stríða Þrótturum.
Umferðin lítur svona út:
Vestri - ÍR (18:00)
Ægir - Völsungur (18:00)
Grindavík - Þróttur (18:00)
HK - Leiknir (19:15)
Fylkir - Afturelding (19:15)
Grótta - Njarðvík (19:15)
Umferðin lítur svona út:
Vestri - ÍR (18:00)
Ægir - Völsungur (18:00)
Grindavík - Þróttur (18:00)
HK - Leiknir (19:15)
Fylkir - Afturelding (19:15)
Grótta - Njarðvík (19:15)
Fyrir leik
Risaleikur í Árbænum framundan
Verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Tekk vellinum í Elliðaárdal þar sem Fylkir tekur á móti Aftureldingu í sannkölluðum toppslag.






