Fotbolti.net
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
2 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
Arnar Breki Gunnarsson 19'1 - 01 - 147' Kári Kristjánsson (víti)Heiðar Snær Ragnarsson 83'2 - 1Friðrik Franz Guðmundsson 86'
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
Grindavík með gríðarlega mikilvægan sigur!
Óvæntur sigur hjá Grindavík hér í dag í bráðskemmtilegum leik.
Ég þakka fyrir mig skýrsla og viðtöl væntanleg!
94. mín
Færi
Vilhjálmur Kaldal með hörku fínt skot en Hjörvar ver vel.
90. mín
+5
Grindavík
90. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
Grindavík
86. mín
HA?

Friðrik Franz Guðmundsson

Hef ekki hugmynd um hvað gekk á þarna. En rautt á bekkinn hjá Grindavík.
Grindavík
83. mín
Grindavík aftur komnir yfir!

Heiðar Snær Ragnarsson (stoðsending: Rúnar Ingi Eysteinsson)

Þetta kom eins og þruma úr heiðskýru lofti!
Rúnar Ingi gerir vel, þræðir boltann í gegnum vörn Þróttar og Heiðar gerir vel og klárar frábærlega.
81. mín
Dauða færi
Adam Árni sleppur í gegn og á gott skot sem Hjörvar ver mjög vel!
Þróttur R.
79. mín
InnStefán Þórður Stefánsson
ÚtÖrn Bragi Hinriksson
Þróttur R.
79. mín
InnVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
ÚtViktor Steinarsson
Grindavík
76. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtHaraldur Björgvin Eysteinsson
74. mín
Eysteinn með aukaspyrnu dáldið fyrir utan en bombar boltanum yfir!
72. mín
Heiðar með fína tilraun úr þröngu færi en Þórhallur ver vel.
Grindavík
68. mín
InnIngi Þór Sigurðsson
ÚtGunnleifur Orri Gunnleifsson
Grindavík
68. mín
InnHeiðar Snær Ragnarsson
ÚtArnar Breki Gunnarsson
68. mín
Kári Kristjáns með fast skot en beint á Hjörvar.
66. mín
Grindavík fá hér horn!
Þróttur R.
65. mín
InnNjörður Þórhallsson
ÚtKolbeinn Nói Guðbergsson
Kolbeinn fer af velli meiddur.
Grindavík
61. mín
Gult spjald

Haraldur Björgvin Eysteinsson

Mjög soft aukaspyrna verð ég að segja.
Þróttur R.
56. mín
InnAdam Árni Róbertsson
ÚtMagnús Þórðarson
Adam Árni að koma hér inn gegn sínum gömlu félögum.
54. mín
Örn Bragi með eina heiðarlega tilraun yfir markið.
52. mín
Grindavík fær horn.
Damir á fínan skall yfir markið.
49. mín
Flott skot
Kári Kristjáns með gott skot sem Hjörvar ver vel!
Þróttur R.
47. mín
Mark úr víti!

Kári Kristjánsson

Skorar af miklu öruggi hér strax í upphafi seinni hálfleiks.
Sækjir boltann og setur hann á miðjunna!
46. mín
Þróttur fá víti!!!
Seinni var varla byrjaður!
Tryggvi Snær er felldur af Damir virðist vera réttur dómur.
46. mín
Keyrum þetta í gang!
Komið af stað!
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur hér í Grindavík!
Skemmitlegum fyrri hálfleik lokið hér. má segja að Grindavík séu heppnir að fá ekki á sig mark í þeim fyrri eftir orrahríð þeirra.

Tökum okkur 15min pásu!
45. mín
Heppinn
Kemur auðveldur bolti inná teig sem á að heita æfingarbolti fyrir Hjörvar Daða en hann missir hann en var heppinn að Gunnar Freyr dæmir aukaspyrnu!
45. mín
Þróttur fá aukaspyrnu á fínum stað.
40. mín
Damir með ágætis skalla tilraun yfir markið!
37. mín
Þróttur fá horn.
Grindavík
34. mín
Gult spjald

Arnar Breki Gunnarsson

Reynir að tefja að Þórhallur nái að koma boltanum hratt í leik.
30. mín
Þróttur bankar fast!
Aron Snær með góðan bolta á Magnús, en hann á skot framhjá!
Grindavík
27. mín
Gult spjald

Stefán Jón Friðriksson

25. mín
Grindavík bjarga á línu 2x
Þróttarar herja á Grindavík. Það er Magnús Þórðarson son sem á tvær tilraunir sem Stefán kemst fyrir fyrra skotið og Damir kemur sér fyrir seinna skotið.
Wow liggur mark í loftinu hjá Þrótti sem sækja og sækja.
23. mín
Færi!
Aron Snær með hörku skot en að sjálfsögðu er Damir mættur og kemst fyrir boltann.
Grindavík
19. mín
Heimamenn komnir yfir!

Arnar Breki Gunnarsson (stoðsending: Sindri Þór Guðmundsson)

Það er Arnar Breki í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fær boltann í gegn frá Sindra Þór, endar einn á móti markmanni og nær að koma boltanum framhjá Þórhalli í marki Þróttar!
18. mín
Aron Skúli með skelfilega tilraun. Reynir skot á markið en boltinn endar upp við hornfána.
12. mín
Þróttur að fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað........
11. mín
Grindavík að fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
7. mín
Arnar Breki með fína tilraun, kemur sér inná teiginn en á skot beint á Þórhall í marki Þróttar.
5. mín
Leikurinn byrjar mjög rólega bæði lið aðeins að hreyfa fyrir sér.
1. mín
Þetta er farið af stað
Það eru heimamenn sem koma þessu af stað!
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna!
Fyrri viðureign þessara liða fór fram á AVIS-vellinum í Laugardalnum, og lauk leiknum með 2-0 sigri Þróttar með mörkum frá Erni braga og Kára Kristjáns!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Bæði lið gera breytingar
Grindavík gera tvær breytingar á sínu liði eftir 4-1 tap gegn Aftureldingu.
Ingi Þór og Heiðar Snær setjast á bekkinn hjá Grindavík, inn í þeirra stað koma þeir Aron Skúli og Arnar Breki.

Þróttarar gera fimm breytingar á sínu liði eftir 1-1 jafntefli gegn Gróttu í síðustu umferð.
Stefán Þórður, Njörður Þórhallsson og Adam Árni sem spilaði með Grindavík á síðasta tímabili, setjast allir á bekkinn í dag, en Eiríkur Þorsteinsson og Brynjar Gautur er ekki í hóp í dag. Inn í þeirra stað koma þeir Kolbeinn Nói, Jakob Ocares, Viktor Steinarsson, Hlynur Þórhallsson og Magnús Þórðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Eiður Gauti spáir í spilin!
Eiður Gauti, leikmaður KR spáir í þessa umferð í Lengjudeildinni.
Grindavík 0-3 Þróttur (18:00 í kvöld)
,,Það er heitt undir Grindavík og þessi leikur verður brekka fyrir þá frá fyrstu mínútu. Þróttarar taka þetta örugglega, 3-0. Tryggvi Geirs setur tvö og leggur upp eitt á Villa Kaldal."
Fyrir leik
Stuðlarnir
Epicbet hefur gefið út stuðlanna fyrir leik!
Grindavík er með 5.18
Þróttur er með 1.58
Jafntefli er á stuðlinum 4.46
Fyrir leik
Þriðja liðið
Gunnar Freyr Róbertsson er með flautunna í dag honum til halds og trausts eru þeir:
Kristófer Bergmann og Guðni Freyr Ingvason. Eftirlitsmaðurinn er Gunnar Helgason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gestirnir úr Laugardalnum!
Þróttur eru í mikilli toppbaráttu og stefna á það að fara beint upp í deild þeirra bestu. Þróttur eru jafnir Aftureldingu á toppnum með 34 stig hins vegar á Afturelding leik til góða. Varnarleikur Þróttar hefur verið góður á tímabilinu og hefur ekkert lið fengið færri mörk á sig. Þróttarar hafa hins vegar verið klaufar í nokkrum leikjum eins og í síðasta leik þar sem þeir gerðu 1-1 jafntefli gegn Gróttu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heimamenn í basli!
Grindavík eru búnir að vera í basli á þessu tímabili og eru aðeins þremur stigum frá fallsæti, og fer núna hvert stig að skipta máli. Grindavík hafa aðeins unnið þrjá leikji á þessu tímabili. Björtu hliðarnar eru þær hins vegar að þeir hafa aðeins fengið 24 mörk á sig í 17 leikjum. Einu liðin sem hafa fengið færri mörk á sig eru Njarðvík og einmitt Þróttur sem þeir mæta í dag. Mitt gisk að það komi ekki mikið af mörkum í dag. Grindavík kíktu í heimsókn í Mosó í síðustu umferð en töpuðu þeim leik 4-1.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Lengjudeildar-veislan heilsar!
Það fer fram Lengjudeildarslagur í dag, þar sem Grindavík tekur á móti Þrótturum í 18 umferð Lengjudeildar karla!
Mynd: Alexander Tonini

Lengjudeild karla
18:00 Vestri-ÍR (Kerecisvöllurinn)
18:00 Ægir-Völsungur (GeoSalmo völlurinn)
18:00 Grindavík-Þróttur R. (Stakkavíkurvöllur)
19:15 HK-Leiknir R. (Kórinn)
19:15 Fylkir-Afturelding (tekk VÖLLURINN)
19:15 Grótta-Njarðvík (Vivaldivöllurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.