Leik lokið!
HK-ingar hirða stigin þrjú!
95. mín
HK-ingar koma hornspyrnunni frá en áfram sækja Leiknismenn.
94. mín
Allir í teiginn!
Leiknismenn fá hornspyrnu. Allir inn í teig, þar á meðal Ólafur Íshólm, markvörður. Þeirra síðasti séns?
91. mín
Alexander Örn og Ólafur Íshólm lenda saman og Óli virðist vera sárþjáður. Liggur niðri og veltist um grasið. Ólafur getur haldið leik áfram.
90. mín
Alexander Örn kemst í frábæra stöðu í teig Leiknis og lætur vaða en Ólafur Íshólm ver frábærlega!
85. mín
InnDagur Ingi Hammer Gunnarsson
ÚtKári Steinn Hlífarsson
85. mín
Ívar Örn tekur hornspyrnuna og boltinn fer beint á Þorstein Aron sem skallar beint á Ólaf Íshólm í marki Leiknis. Hefði getað farið betur með þetta færi!
85. mín
Atli reynir aftur!
Boltinn berst aftur á Atla Þór fyrir utan teig. Hann tekur viðstöðulaust skot sem fer í varnarmann og aftur fyrir endalínu.
81. mín
Atli Þór fær boltann fyrir utan teig. Leggur hann fyrir sig og setur boltann þægilega út við stöng. Snyrtilegt!
HK-INGAR SVARA UM HÆL!
Atli Þór Gunnarsson
Frábært mark!Atli Þór fær boltann fyrir utan teig. Leggur hann fyrir sig og setur boltann þægilega út við stöng. Snyrtilegt!
77. mín
GJÖF!
Daði Bærings Halldórsson (stoðsending: Birnir Breki Burknason)
Jóhann Þór með galna sendingu til baka beint á Birni Breka, sem er í teig HK-inga! Hann sendir út á Daða sem klárar í tómlegt mark HK. Þetta er eins ódýrt og það gerist.75. mín
InnEgill Ingi Benediktsson
ÚtAxel Freyr Harðarson
71. mín
InnBreki Hólm Baldursson
ÚtKarl Ágúst Karlsson
HK-ingar gera þrefalda breytingu
71. mín
InnAlexander Örn Guðmundsson
ÚtAtli Hrafn Andrason
71. mín
InnJóhann Þór Arnarsson
ÚtTumi Þorvarsson
69. mín
Gult spjald
Arnþór Ari Atlason
Tekur skot eftir að Stefán var búinn að flauta á rangstöðu. Einstaklega heimskulegt gult spjald.67. mín
Leiknismenn ógna en ná ekki að koma skoti á markið. Allt nokkuð opið hjá HK þessa stundina.
62. mín
Dauðafæri!
Tumi fær frábæra sendingu í gegn og er einn gegn Ólafi Íshólm. Tumi lætur vaða en Óli ver meistaralega!
61. mín
InnAtli Þór Gunnarsson
ÚtÞorvaldur Smári Jónsson
57. mín
Gult spjald
Daði Bærings Halldórsson
Brýtur á Atla Hrafni og fær verðskuldað gult.55. mín
Kári Steinn með skot af löngu færi sem fer hátt yfir mark HK.
53. mín
HK fær hornspyrnu. Boltinn ekki yfir fyrsta varnarmann og gestirnir bægja hættunni frá.
50. mín
Ekki fastasta skotið en Ólafur Íshólm, sem hefur verið frábær í leiknum, sá hann seint og gat lítið gert.
Karl Ágúst brýtur Ísinn!
Karl Ágúst Karlsson
HK-ingar koma með fyrirgjöf í teiginn. Leiknismenn skalla frá en boltinn beint á Karl sem tekur viðstöðulaust skot á lofti og inn fer boltinn!Ekki fastasta skotið en Ólafur Íshólm, sem hefur verið frábær í leiknum, sá hann seint og gat lítið gert.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Allt til reiðu og seinni hálfleikurinn farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
Markalaust í hálfleik!
Stefán Ragnar flautar til hálfleiks. Eftir fjöruga byrjun dró aðeins undan þessu. Takmörkuð skemmtun frá 30. mínútu.
Tökum okkur 15 og vonumst eftir að menn reimi á sig markaskóna fyrir seinni hálfleikinn.
Tökum okkur 15 og vonumst eftir að menn reimi á sig markaskóna fyrir seinni hálfleikinn.
45. mín
Tumi!
+2
HK-ingar æða upp í skyndisókn. Tumi sker inn á hægri og lætur vaða úr góðri stöðu en boltinn framhjá marki Leiknis.
HK-ingar æða upp í skyndisókn. Tumi sker inn á hægri og lætur vaða úr góðri stöðu en boltinn framhjá marki Leiknis.
45. mín
+2
Ívar Örn með fyrirgjöf á Radic sem stangar boltann rétt yfir mark gestanna.
Ívar Örn með fyrirgjöf á Radic sem stangar boltann rétt yfir mark gestanna.
45. mín
Gult spjald
Þorvaldur Smári Jónsson
Brýtur á Kára og fer í bókina góðu. Tolli annar miðjumaður HK sem fær gult spjald.45. mín
InnÞorsteinn Emil Jónsson
ÚtRúrik Gunnarsson
Rúrik neyðist til að fara af velli
44. mín
Lítið gerst síðastliðnar fimmtán mínútur, leikurinn stopp núna vegna meiðsla Rúriks Gunnarssonar.
39. mín
Gult spjald
Atli Hrafn Andrason
Atli fer hressilega í Jóhann Kanfory og fær gula spjaldið að launum.38. mín
Leiknismenn í skyndisókn sem endar með skoti Jóhanns Kanfory yfir mark HK-inga.
29. mín
Stórhætta!
Tumi Þorvars æðir upp völlinn og keyrir í átt að marki Leiknis. Hann á gott skot sem Ólafur Íshólm ver vel í marki gestanna. Boltinn berst þá út á Karl Ágúst sem lætur vaða en aftur ver Óli meistaralega!
26. mín
InnÍvar Örn Jónsson
ÚtAron Kristófer Lárusson
Aron neyðist til að fara af velli
Aukaspyrnu Ívar kemur inn í hans stað.
26. mín
Leiknismenn ógna
Aron Kristófer fellur við sem einn af öftustu mönnum HK. Leiknismenn sjá þá sér leik á borði og þræða Jóhann Kanfory í gegn. Hann æðir í átt að marki og lætur vaða en Ólafur ver vel.
Aron Kristófer liggur enn niðri eftir sókn gestanna og þarfnast aðhlynningar.
Aron Kristófer liggur enn niðri eftir sókn gestanna og þarfnast aðhlynningar.
23. mín
Beint í vegginn
Leiknir fær aukaspyrnu í skotstöðu. Kári Steinn lætur vaða en tilraun hans beint í vegginn.
16. mín
Leiknismenn fá hornspyrnu, Axel Freyr nær skalla að marki en boltinn í HK-ing og þeir koma hættunni frá.
11. mín
Ólafur Íshólm!
Aron Kristófer með langt innkast í teig Leiknis. Boltinn á Karl Ágúst sem lætur vaða en Óli Íshólm ver vel.
Boltinn fer manna á milli í teignum og loks nær Radic skoti á markið en aftur ver Óli vel! Radic þó flaggaður rangstæður í kjölfarið.
Boltinn fer manna á milli í teignum og loks nær Radic skoti á markið en aftur ver Óli vel! Radic þó flaggaður rangstæður í kjölfarið.
7. mín
Hasar í upphafi leiks!
Ólafur Örn með gloríur í marki HK og Axel Freyr fær boltann á stórhættulegum stað. Tilraun hans þó nokkuð fjarri lagi og vel framhjá - Ólafur getur andað léttar.
6. mín
Munaði einu skónúmeri!
Frábærlega spilað hjá HK-ingum, Aron Kristófer með fasta fyrirgjöf en Radic nær ekki að reka stóru tána í boltann!
4. mín
Leið eitt!
Kári Steinn á skot beint á Óla í marki HK. Ólafur gerir sér lítið fyrir og þrumar boltanum fram á Tuma Þorvars sem gerir vel og á tilraun rétt fram hjá marki Leiknis.
2. mín
Leiknir í góðri sókn og uppskera hornspyrnu. Þorsteinn Aron skallar hornið frá marki HK.
1. mín
Leikur hafinn
Rúrik sparkar þessu af stað
Leiknismenn sækja í átt að Guðmundarlundi. Fyrir áhugasama verður Mugison með tónleika þar síðar í mánuðinum.
Fyrir leik
Bæði lið hita vel upp, sælkeraborgari HK-inga upp á tíu og Siggi vallarþulur er búinn að setja hágæða rapptónlist frá tíunda áratugnum á fóninn. Þetta stefnir í meiriháttar veislu!
Fyrir leik
HK-ingar óstöðvandi í Kórnum
Af þeim átta heimaleikjum sem HK hefur spilað hefur liðið unnið sjö þeirra. Eini heimaleikurinn sem liðið hefur ekki sótt sigur í var 2-2 jafntefli gegn Grindavík.
Árangur HK-inga á útivelli hefur aftur á mótið verið arfaslakur og hefur liðið aðeins unnið tvo af níu útileikjum.

Árangur HK-inga á útivelli hefur aftur á mótið verið arfaslakur og hefur liðið aðeins unnið tvo af níu útileikjum.

Fyrir leik
Óvæntur Leiknissigur - Fýluferð HK á Húsavík
Leiknismenn unnu heldur betur óvæntan 3-0 sigur á Leikni í síðustu umferð. Uppaldni HK-ingurinn Birnir Brekir Burknasonfór þar á kostum og skoraði fyrsta mark liðsins.
HK-ingar heimsóttu Völsung heim á Húsavík síðastliðinn sunnudag og tapaði liðið 3-2.
HK-ingar heimsóttu Völsung heim á Húsavík síðastliðinn sunnudag og tapaði liðið 3-2.
Fyrir leik
Hart barist um umspilssætin
Farið er að síga á seinni hluta Lengjudeildarinnar. Sæti 2-5 tryggja liðum í umspil um að komast upp í Bestu deildina.
HK er í 5. sæti með 28 stig, tveimur stigum á undan Gróttu sem er í 6. sæti. Þar fyrir aftan eru Leiknismenn með 22 stig.
Njarðvík er í 4. sæti með 29 stig en Njarðvíkingar heimsækja Gróttu í kvöld.
Spilað er eftir þessu fyrirkomulagi í fjórða sinn í ár. Leiknir komst í umspilið á fyrsta ári fyrirkomulagsins. HK-ingar fóru alla leið í úrslitaleikinn í fyrra en töpuðu þar sannfærandi gegn Keflavík.

Eiður Gauti spáir HK-ingum sigri
Eiður Gauti Sæbjörnsson, leikmaður KR, er spámaður umferðarinnar og hann spáir HK sigri. Eiður er uppalinn HK-ingur.
HK 3-2 Leiknir
HK-ingar sáttir að komast aftur heim í hlýjuna eftir fýluferð norður. AHA10 búinn að ströggla aðeins í golfinu undanfarið og tekur reiði sína út á greyið Leiknismönnum, skorar og leggur upp og fer síðan í eina tveggja fóta tæklingu sem dómari missir af. BBB og Axel Freyr svara fyrir Leiknismenn en Birgir Steinn setur sigurmarkið með marki úr horni í home debut og rífur sig á kassann.

Kórinn heilsar!
Góðan og gleðilegan fimmtudag lesendur góðir, veriði velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kórnum þar sem HK tekur á móti Leikni.

Lengjudeild karla
18:00 Vestri-ÍR (Kerecisvöllurinn)
18:00 Ægir-Völsungur (GeoSalmo völlurinn)
18:00 Grindavík-Þróttur R. (Stakkavíkurvöllur)
19:15 HK-Leiknir R. (Kórinn)
19:15 Fylkir-Afturelding (tekk VÖLLURINN)
19:15 Grótta-Njarðvík (Vivaldivöllurinn)

Viðtöl og skýrsla væntanleg.