Fotbolti.net
Besta deildin
Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
Besta karla
Greifavöllurinn
10° hiti, smá gola og sólskin!
KA
KA
2 - 1
Breiðablik
Breiðablik
Hans Viktor Guðmundsson 10'1 - 01 - 112' Jónatan Guðni ArnarssonMikael Breki Þórðarson 64'2 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 625
Leik lokið!
KA menn koma þessu yfir línuna!
Eiður Smári vinnur sinn fyrsta leik í KA gallanum og agalegt gengi Blika heldur áfram.

Viðtöl og skýrsla koma von bráðar!
93. mín
Blikar fá hornspyrnu!

Þetta er það síðasta sem gerist í þessum leik.
KA
91. mín
InnBjarki Fannar Helgason
ÚtJeppe Pedersen
Jeppe hefur verið frábær í dag.
91. mín
Uppbótartíminn
Þrjár mínútur!
87. mín
Jakob Héðinn í DAUÐAFÆRI!!
Jeppe Pedersen setur Jakob einan í gegn og möguleikarnir endalausir, en Anton Ari ver slakt skot Jakobs og Blikarnir sækja.
87. mín
Hans í færi!
Nær að teygja löppina í boltann inná markteig Blika, en enginn kraftur er í skotinu og Anton ver auðveldlega.
85. mín
Birgir með skot í slá!
Birgir Baldvinsson er hársbreidd frá því að klára þetta fyrir heimamenn! KA menn eiga hornspyrnu.

Maður finnur að það er dramatískt augnablik í loftinu, en hvoru megin það kemur er erfitt að segja til um!
84. mín
Ásgeir gerir vel í að vinna aukaspyrnu úti á vinstri kantinum. Honum er klappað lof í lófa fyrir baráttuna.
Breiðablik
84. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtÞorleifur Úlfarsson
83. mín
Blikar fá hornspyrnu. Það er ókyrrð í stúkunni og fólk væri helst til í lokaflautið núna.
82. mín
Þorleifur vinnur aukaspyrnu inná miðjum vallarhelmingi KA.

Aukaspyrnan er afleit og fer aftur fyrir endamörk.
79. mín
Montiel í dauðafæri!
Fær boltann í frábærri stöðu inná teig Breiðabliks, en er alltof lengi að athafna sig og skot hans er hörmulegt og Blikarnir sleppa með skrekkinn!
KA
78. mín
InnÁsgeir Sigurgeirsson
ÚtSnorri Kristinsson
Ásgeir Sigurgeirsson að spila sinn fyrsta leik í sumar og fær hávært klapp er hann skokkar inná völlinn.
76. mín
Gott skot!
Jónatan á hörkuskot sem að Ívar kýlir í horn.
73. mín
Jakob Héðinn vinnur aukaspyrnu fyrir KA á vallarhelmingi Blika og þeir hægja aðeins á leiknum.

Ekkert kemur úr aukaspyrnunni og Blikar sækja á ný.
72. mín
Blikar fá hornspyrnu. KA menn vörðust manni færri í sirka 2 mínútur, en Jakob fær loksins að koma inná.
KA
70. mín
InnJakob Héðinn Róbertsson
ÚtDanijel Dejan Djuric
Jakob er ekki enn kominn inná. Ég held að Djuric hafi verið of lengi að koma sér útaf.
KA
69. mín
InnDiego Montiel
ÚtAdam Ægir Pálsson
68. mín
Ásgeir Helgi í dauðafæri!
Fær boltann út í teig KA og er einn á auðum sjó, en skot hans er beint á Ívar Arnbro sem að nær að halda boltanum!
67. mín
Blikar fá hornspyrnu. Svara þeir strax?
KA
64. mín
KA MENN ENDURHEIMTA FORYSTUNA!!!

Mikael Breki Þórðarson (stoðsending: Birgir Baldvinsson)

Birgir Baldvinsson laumar boltanum inn á teig Blikanna þar sem að Mikael Breki Þórðarson gerir frábærlega í að taka boltann með sér og smellir honum svo framhjá Antoni Ara.

2-1!
Breiðablik
62. mín
InnViktor Karl Einarsson
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
Breiðablik
62. mín
InnHöskuldur Gunnlaugsson
ÚtHlynur Freyr Karlsson
Breiðablik
62. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtKristófer Ingi Kristinsson
61. mín
Markús Máni fær frían skalla!
Danijel Djuric teiknar boltann á hausinn á Markúsi Mána, en miðvörðurinn ungi skallar boltann langt framhjá. Þetta var úrvalsfæri!
60. mín
Heimamenn fá hornspyrnu. Djuric röltir að hornfánanum.
59. mín
Blikar koma boltanum frá, en KA menn halda boltanum.
58. mín
Adam Ægir tekinn niður á hægri kantinum. Aukaspyrna í frábærri fyrirgjafarstöðu fyrir heimamenn.
56. mín
Þorleifur Úlfarsson setur aukaspyrnuna yfir markið.
KA
55. mín
Gult spjald

Jeppe Pedersen

Tekur Jónatan Guðna niður. Aukaspyrna á ágætis stað fyrir gestina.
51. mín
Kristófer Ingi fær boltann í hálf færi, en er alveg úr jafnvægi og lúðrar boltanum langt yfir mark KA.
Breiðablik
46. mín
Jeppe liggur eftir

Kristófer Ingi Kristinsson

Jeppe Pedersen steinliggur eftir skallaeinvígi við Kristófer Inga. Twana gefur Kristófer gula spjaldið sem að ég fæ ekki skilið, en jæja...
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikstölfræði
Með boltann: 50% - 50%
Skot: 6-6
Á mark: 1-2
Sendingar: 184-190
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við, enda lítið verið um tafir - og sömuleiðis lítið um gæði þennan síðari part fyrri hálfleiks.

Sjáum hvað setur í þeim seinni!
43. mín
Meira af því sama
Mikil stöðubarátta og ég held að bæði lið taki hálfleiksflautinu fegins hendi. Þetta hefur ekki verið merkilegt síðustu mínútur.
KA
36. mín
Gult spjald

Snorri Kristinsson

Tekur Jónatan niður. Fannst þetta fyrir litlar sakir.
35. mín
Lítill hraði þessa stundina
Liðin hafa ekki mikið skapað síðustu mínútur og þetta er hálf stefnulaust að svo stöddu.
29. mín
Anton Logi í færi!
Sleppur í gegn eftir klaufagang í Snorra Kristinssyni, en afgreiðslan er hræðileg og fyrirliðinn setur boltann nánast í hornfánann!
28. mín
Twana dæmir brot á Danijel Djuric sirka 18 árum eftir að hann rennir sér í Anton Loga og hrifning stúkunnar er ekki mikil.
26. mín
Davíð Ingvarsson fær boltann fyrir utan teig KA, algjörlega einn og óáreittur en skot hans er víðsfjarri rammanum.
24. mín
Kristófer Ingi með skalla í slá!
Er gjörsamlega aleinn og yfirgefinn inná teig KA, en nær ekki að stýra boltanum í markið. Dekkning KA í föstum leikatriðum hefur ekki verið til fyrirmyndar.
23. mín
Blikarnir fá aukaspyrnu úti á hægri kantinum inná vallarhelmingi KA. Og svo hornspyrnu beint í kjölfarið.
21. mín
Enn ein hornspyrna heimamanna.
Breiðablik
20. mín
Gult spjald

Ásgeir Helgi Orrason

Er of seinn og tekur Adam Ægi niður.
20. mín
Mikael Breki vinnur boltann ofarlega á vellinum fyrir KA liðið og hann fellur fyrir Adam Ægi. Adam fær hlaup sitthvoru megin við sig frá Mikael og Djuric, en kýs að skjóta sjálfur en skotið er laflaust og langt framhjá.
18. mín
Heimamenn fá hornspyrnu.

Anton Ari handsamar boltann eftir smá barning og Blikar snúa vörn í sókn.
15. mín
KA menn virka slegnir
Eftir glimrandi byrjun, þá virðist þetta eldsnögga jöfnunarmark gestanna hafa dregið verulega úr sjálfstrausti KA liðsins.
Breiðablik
12. mín
BLIKAR JAFNA!!!

Jónatan Guðni Arnarsson (stoðsending: Gabríel Snær Hallsson)

Hornspyrnurnar eru að gefa! Boltanum er lyft inná teig KA og ég sá ekki betur en að það væri Jónatan Guðni sem að stangaði boltann að marki KA og þaðan fer boltinn af Guðjóni Erni og inn.

1-1!
KA
10. mín
KA MENN ERU KOMNIR YFIR!!!

Hans Viktor Guðmundsson (stoðsending: Danijel Dejan Djuric)

Danijel Djuric skrúfar boltann inná teig Blikanna úr hornspyrnu og þar rís Hans hæst og stýrir boltanum í netið.

Fullkomlega verðskuldað. 1-0!
10. mín
Djuric setur hann í stöngina!
Adam Ægir laumar boltanum inná teig Blikanna og Danijel Djuric setur tá í boltann í frábæru færi, en setur hann í stöng!
7. mín
Guðjón Ernir vippar boltanum á fjærstöngina og þar mætir Birgir Baldvinsson, en skot hans er yfir mark Blikanna.
4. mín
Hans setur boltann í slá!
Adam Ægir Pálsson fær boltann úti á hægri kantinum og gefur frábæra sendingu á fjærstöngina. Þar mætir fyrirliðinn og reynir að stýra boltanum yfir Anton í markinu, en setur hann í slá og yfir.

Blikarnir eru ekki enn vaknaðir!
3. mín
KA menn fá aðra hornspyrnu.
2. mín
Kæruleysi í gestunum
Gefa hornspyrnu eftir hörmulegt uppspil. Gangandi í svefni þarna.
1. mín
Snorri Kristinsson gerir vel í að vinna aukaspyrnu fyrir KA inná miðjum vallarhelmingi Blikanna og Adam Ægir Pálsson stendur yfir boltanum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið af stað!
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi: Enginn Grímsi og Djuric byrjar
Eiður Smári Guðjohnsen og Hallgrímur Jónasson stýra liði KA. Þeir gera fjórar breytingar frá jafnteflinu gegn Fram. Þeir Jakob Snær Árnason og Kári Gautason meiddust gegn Fram og eru ekki með. Hallgrímur Mar Steingrímsson er ekki heldur með og Valdimar Logi Sævarsson ekki heldur. Inn koma Birgir Baldvinsson, Snorri Kristinsson, Danijel Dejan Djuric og Jeppe Pedersen. Steinþór Már Auðunsson - Stubbur - er þá mættur á bekkinn.

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gerir þrjár breytingar frá tapinu gegn Stjörnunni. Þeir Höskuldur Gunnlaugsson, Ívar Örn Árnason og Viktor Karl Einarsson taka sér sæti á bekknum. Inn koma Viktor Örn Margeirsson, Gabríel Snær Hallsson og Jónatan Guðni Arnarsson. Aron Bjarnason er þá mættur aftur á bekkinn eftir meiðsli. Anton Logi Lúðvíksson er með fyrirliðabandið hjá Blikum.
Fyrir leik
Dómarinn
Dómari leiksins er Twana Khalid Ahmed og honum til aðstoðar eru Ronnarong Wongmahadthai og Kristján Már Ólafs. Fjórði dómari er Sveinn Arnarsson og dómaraeftirlitsmaður er Bragi Bergmann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fáum vonandi vel dæmdan leik frá Twana í dag.
Fyrir leik
Hrannar Björn snúinn aftur - ,,Ef ég er ekki inná vellinum geri ég mitt besta í að hjálpa liðinu utan hans
Bakvörðurinn Hrannar Björn Steingrímsson er snúinn aftur eftir hásinaslit og var í hóp KA þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Fram í síðustu umferð. Hann hafði bundið vonir við að að fá nokkrar mínútur, en viðurkenndi í viðtali við Sæbjörn Steinke að líkurnar hefðu verið hverfandi þegar að KA menn neyddust til að gera tvær breytingar með stuttu millibili snemma leiks.

Hrannar var staðráðinn í því að bjartara yrði yfir endurhæfingarferlinu í þetta skiptið, en hann viðurkenndi að þungt hefði verið yfir sér í mesta myrkrinu þegar krossbandið fór hjá honum 2021. Það vildi hann ekki gera konunni sinni aftur.

,,Það var nefnilega helvíti þungt yfir mér í tvo svarta vetrarmánuði þegar ég var í þeirri endurhæfingu og það bitnaði mest á henni heima fyrir og ég tók mikið frá þeim tíma og yfir í þetta ferli,'' sagði Hrannar.

Það virtist verst geymda leyndarmál Akureyrar að Hrannar Björn væri á förum frá KA eftir síðasta tímabil og í leit að nýju umhverfi - eða myndi jafnvel leggja skóna á hilluna. KA menn gáfust ekki upp, með Sævar Pétursson í broddi fylkingar og Hrannar skrifaði undir samning á mánudegi í byrjun febrúar.

,,Ég skrifaði svo undir á mánudegi í byrjun febrúar og var búinn að slíta hásin 40 mínútum seinna. Sævar hefur aldrei fyrir það skrifað undir neitt á mánudegi og mun ekki gera það eftir þetta,'' sagði Hrannar.

Hrannar talar um stuðning bróður síns, Hallgríms, komandi verkefni og ánægjuna með komu Eiðs Smára Guðjohnsen sem þjálfara.

,,Hann hefur komið frábærlega inn og það kemur mér smá á óvart hvað hann er investaður í þetta og hvað hungrið er mikið. Ég bjóst eðlilega við miklu að fá hann í klefann og út á æfingasvæði en þetta hefur farið fram úr öllum væntingum.''

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Björn gæti fengið mínútur í dag.
Fyrir leik
Köldustu lið deildarinnar mætast!
Góðan daginn! Hér mun fara fram textalýsing á leik KA og Breiðabliks í Bestu-deild karla. Leikurinn er liður í 22. umferð deildarinnar og því sá síðasti fyrir skiptingu. Það má með sanni segja að hér mætist tvö af köldustu liðum deildarinnar, en heimamenn í KA hafa ekki unnið síðustu sjö deildarleiki en Blikar eru án sigurs í síðustu fimm.

Það hefur sannarlega verið við rammann reip að draga hjá heimamönnum í KA í sumar, en norðanmenn sitja í neðsta sæti deildarinnar en gætu með sigri og hagstæðum úrslitum annarsstaðar komist upp í 10. sætið.

Gestirnir úr Kópavoginum eru í 4. sæti og þeir geta ekki gert betur betur en það í ár, enda heil 14 stig upp í 3. sætið. Á hæla þeirra koma Keflavík, ÍA, Valur og Stjarnan, en markatala Blikanna er betri en allra ofangreindra liða og þyrfti stórsigra annarsstaðar og stórtap Blika til þess að þeir myndu hefja leik annarsstaðar en í 4. sætinu þegar skiptingin hefst. Þeirra gulrót er svo að sjálfsögðu úrslitaleikur Mjólkurbikarsins gegn Aftureldingu sem leikinn er eftir tæpa viku.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA maðurinn Ívar Örn Árnason í klafsi í leik liðanna á Greifavellinum í fyrra. Ívar mætir nú á sinn gamla heimavöll í grænum Blikabúningi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.