Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla
Víkingsvöllur
Bongó í Víkinni
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 2
Fram
Fram
Ármann Ingi Finnbogason 30'1 - 01 - 131' Haraldur Einar Ásgrímsson1 - 253' Kyle Douglas Mc LaganDaníel Hafsteinsson 55'2 - 271' Ægir Jarl Jónasson
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Leik lokið!
Allt jafnt í Víkinni!
Jafntefli niðurstaðan í bráðskemmtilegum leik. Orðið ljóst að Fram og Víkingur mætast aftur hér á Víkingsvelli hér í lokaumferðinni. Átta stig skilja liðin að.

92. mín
Víkingar í leit að sigurmarki. Boltinn dettur fyrir Svein Margeir í teignum en skot hans hátt yfir.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
85. mín
Fram fær hornspyrnu en Víkingar bægja hættunni frá.
84. mín
Aron Elís með þrumuskot rétt yfir mark Framara.
83. mín
Daníel Hafsteins fellur við í teig Framara og heimtar vítaspyrnu en ekkert dæmir ÞÞÞ. Lítið í þessu, rétt metið hjá dómurunum.
82. mín
Víkingar fá hornspyrnu en þeir ná ekki að gera sér mat úr henni.
78. mín
Framarar fá hornspyrnu en ekkert kemur úr henni.
Fram
74. mín
InnMár Ægisson
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
Fram
71. mín
Ægir rekinn af velli!

Ægir Jarl Jónasson

Fer allt of seint í tæklingu og sparkar Valdimar niður.

Pjúra seinna gula en fyrra spjaldið, sem hann fékk snemma leiks, var nokkuð soft.
Víkingur R.
70. mín
InnSveinn Margeir Hauksson
ÚtHrannar Snær Magnússon
70. mín
Kristófer Konráðs með góða tilraun af löngu færi sem fer rétt framhjá marki Víkings.
69. mín
Niko Hansen með skalla af stuttu færi en tilraun hans beint á Viktor Frey í marki gestanna.
Fram
64. mín
InnKristófer Konráðsson
ÚtSimon Tibbling
Fram
64. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtÞorri Stefán Þorbjörnsson
Þorri neyðist til að fara af velli vegna meiðsla.
61. mín
Stígur Diljan!
Á þrumuskot en Viktor Freyr ver vel, boltinn dettur aftur fyrir Stíg en þá hamrar hann boltanum hátt yfir mark Framara.
Fram
56. mín
Gult spjald

Sigurjón Rúnarsson

Sigurjón fer í bókina góðu.
Víkingur R.
55. mín
NÚ SVARA VÍKINGAR SAMSTUNDIS!

Daníel Hafsteinsson

Úr efstu hillu!

Boltinn dettur fyrir Daníel Hafsteins fyrir utan teig og þrumar boltanum í samskeytin fjær. Viktor með puttana í þessu en skotið of fast!

Fram
53. mín
FRAMARAR LEIÐA!

Kyle Douglas Mc Lagan (stoðsending: Simon Tibbling)

Skorar gegn sínum gömlu félögum!

Framarar með innnkast ofarlega á vallarhelmingi Víkings. Boltinn berst á Tibbling sem á fyrirgjöf beint á McLagan og hann stangar boltann í netið!

Aftur kemur mark Fram eftir innkast.
Víkingur R.
51. mín
InnStígur Diljan Þórðarson
ÚtÁrmann Ingi Finnbogason
Markaskorarinn tekinn af velli
Stígur Diljan kemur inn í hans stað. Ármann bendir Sölva á einhver eymsli í vinstra hnénu þegar hann fer af velli.
50. mín
Svipmyndir úr fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Gestirnir hefja leik.
Víkingur R.
46. mín
InnNikolaj Andreas Hansen
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
Gylfi tekinn af velli
Fór lítið fyrir honum í fyrri hálfleik. Eflaust um einhver meiðsli að ræða.
45. mín
Hálfleikstölfræði
Víkingur R. 1 - 1 Fram

63% - Með bolta - 37%
1 - Skot - 6
1 - Skot á mark - 2
0 - Skot framhjá - 4
9 - Snertingar í teig - 8
1 - Hornspyrnur - 6
45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt í hálfleik
Mjög svo fjörugum fyrri hálfleik lokið. Fram verið með völdin eftir jöfnunarmarkið en spurning hvort að Víkingar hefðu átt að fá vítaspyrnu hér rétt fyrir hálfleik.
45. mín
Víkingar vilja víti!
Valdimar fellur við í teig Framara eftir baráttu við Þorra Stefán. ÞÞÞ fljótur að ákveða sig og lætur leikinn halda áfram. Vítalykt af þessu við fyrstu sýn.
45. mín
Einni mínútu bætt við.
Fram
43. mín
Fimmta spjald leiksins

Simon Tibbling

Tibbling brýtur á Gylfa og fer í bókina góðu. ÞÞÞ óhræddur við að spjalda menn hér í þessum fyrri hálfleik.
42. mín
Fram fær hornspyrnu.
40. mín
Tæpt var það!
Framarar banka og banka!

Fyrirgjöf á fjær, Þorri kemur honum á McLagan sem á tilraun af markteig en hittir ekki markið.
Víkingur R.
38. mín
Hundur í mönnum

Karl Friðleifur Gunnarsson

Boltinn ekki í leik og Karl ákveður að sparka aðeins aftan í Chopart. Fer verðskuldað í bókina.
38. mín
Framarar fá þrjár hornspyrnur í röð en ná ekki að gera sér mat úr þeim.
36. mín
Meðbyr með Frömurum eftir jöfnunarmarkið og þeir fá aðra hornspyrnu.
35. mín
Fram fær hornspyrnu. Boltinn dettur fyrir Frey Sigurðsson fyrir utan teig sem á skot hátt yfir mark Víkings.
Víkingur R.
34. mín
Gult spjald

Valdimar Þór Ingimundarson

Valdimar brýtur á Róberti Haukssyni og fær réttilega að líta gula spjaldið.
Fram
33. mín
„Hættu þessu!“

Rúnar Kristinsson

Töluvert búið að falla gegn Frömurum og Rúnar lætur í sér heyra. ÞÞÞ kemur upp að Rúnari, spjaldar hann og öskrar „Hættu þessu!“
Fram
31. mín
Framarar svara strax!

Haraldur Einar Ásgrímsson

Gestirnir taka langt innkast, boltinn dettur á Harald Einar fyrir utan teig sem á viðstöðulaust skot sem syngur í netinu.

Þetta tók ekki langan tíma!
Víkingur R.
30. mín
Ármann brýtur ísinn!

Ármann Ingi Finnbogason (stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson)

Vel spilað hjá Víkingum, Valdimar þræðir boltann á Ármann sem tekur við boltanum í teignum og leggur hann snyrtilega í stöngina og inn!

Ármann á skotskónum annan leikinn í röð!
22. mín
Góð sókn gestanna
Freyr með frábæran sprett upp hægri vænginn, gefur á Kennie sem á fyrirgjöf á Vuk en skalli hans framhjá markinu.
19. mín
Ármann með hættulega fyrirgjöf á fjærsvæðið, boltinn af Kennie Chopart og aftur fyrir endalínu.

Gylfi tekur hornspyrnuna sem Framarar koma frá.
Fram
14. mín
Gult spjald

Ægir Jarl Jónasson

Ægir Jarl fær fyrsta spjald leiksins eftir að hafa farið utan í Karl Friðleif í skallabaráttu. Full hart að gefa spjald á þetta að mínu mati.
7. mín
Framarar í frábæru færi!
Kennie Chopart með langt innkast í teig Víkinga. McLagan fleytir boltanum áfram á Ægi sem er við markteig en skalli hans ekki á rammann!

Illa farið með gott færi.
4. mín
Fyrsta marktilraun leiksins er Framara
Fram fær fyrstu hornspyrnu leiksins. Boltinn á Kennie sem á skalla að marki en Aron Snær handsamar boltann örugglega.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Gylfi sparkar þessu í gang.

Víkingar sækja í átt að eigin félagsheimili, Framarar gegn sólu.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar, biðin styttist.
Fyrir leik
Blíðskapaveður í Víkinni
Sólin skín hér í Víkinni og fólk er farið að tylla sér í stúkuna nú þegar tíu mínútur eru í leik.
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin!
Sölvi Geir Ottesen gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá jafnteflinu gegn KR síðastliðinn þriðjudag.

Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði illa og er því fjarri góðu gamni. Inn í hans stað kemur Róbert Orri Þorkelsson.

Ármann Ingi Finnbogason skoraði eina mark Víkings gegn KR og er hann verðlaunaður með byrjunarliðssæti. Úr liðinu víkur Stígur Diljan Þórðarson.

Fram gerði 2-2 jafntefli gegn KA í síðustu umferð. Rúnar Kristinsson gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá þeim leik.

Simon Tibbling kemur inn á miðjuna og Kristófer Konráðsson tekur sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
Þurfa toppleik gegn toppliðinu
„Leikurinn leggst bara vel í mig, það er spennandi verkefni að fara í leik á móti toppliðinu. Við þurfum að eiga toppleik til að ná í úrslit," segir Ægir Jarl Jónasson í samtali við Fótbolta.net aðspurður um leikinn.

Hann var spurður hvort hann horfi á leikinn sem tækifæri til að kveikja almennilega í og búa til toppbaráttu?

„Auðvitað væri það mjög skemmtilegt fyrir deildina að fá spennu í þetta á lokasprettinum en Víkingarnir eru búnir að vera frábærir í sumar," sagði Ægir jafnframt.

Eina liðið sem Fram hefur eiginlega ekki átt séns í er Víkingur í fyrri leiknum, Ægir segir liðið hafa þá átt slæman dag.

„Við áttum bara ekki góðan dag þá og margt sem við gátum gert betur en að sama skapi voru þeir líka mjög góðir og beittir í þeim leik."

Fyrir leik
Völtuðu yfir Framara
Víkingar fóru létt með Framara í 11. umferð og enduðu leikar 5-0 á salatinu í Úlfarsárdal.

Fyrir leik
Lokaumferð fyrir tvískiptingu
Fimm leikir fara fram klukkan 14:00 í dag vegna þess að umferðin er sú síðasta fyrir tvískiptingu. Leikið var í Keflavík í gærkvöld vegna Ljósanætur.

Víkingur er með átta stiga forskot á 2. og 3. sætið þegar sex umferðir eru eftir af mótinu. Með sigri Fram kæmi liðið sér í möguleikann á 2. sætinu. Það færi þá eftir því hvort KR misstígi sig á Akranesi gegn ÍA á sama tíma.

Liðin sem enda í 1. og 2. sæti mætast innbyrðis í 27. umferð, lokaumferð mótsins, á heimavelli Víkings.

Fyrir leik
Víkin heilsar!
Heilir og sælir lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Víkingsvelli þar sem Íslandsmeistararnir taka á móti Frömurum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.