Fotbolti.net
Besta deildin
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
2 - 1
Þór/KA
Þór/KA
0 - 123' Erin FlureyHafrún Birna Helgadóttir 40'1 - 1Ingibjörg Magnúsdóttir 58'2 - 1
Dómari: Atli Björn E Levy
Leik lokið!
Þetta er búið í Hafnarfirði
Atli Björn E Levy flautar til leiksloka í Kaplakrika. FH er komið á topp bestu deildar kvenna eftir 2-1 sigur á Þór/KA.

Takk fyrir mig í dag.
Þór/KA
89. mín
InnHalla Bríet Kristjánsdóttir
ÚtLauren Adrienne Lapomarda
Þór/KA
89. mín
InnAgnes Birta Stefánsdóttir
ÚtMaría Dögg Jóhannesdóttir
FH
87. mín
InnFreyja Rún Pálmadóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
85. mín
Þór/KA fær hornspyrnu
Ekkert kemur upp úr þessari spyrnu.
84. mín
Andrea Rán með hornspyrnu á Deju sem skallar boltann að marki en Alessandra ver vel.
80. mín
Tíu mínútur eftir í Hafnarfirði og FH er á leiðinni á topp deildarinnar ef leikurinn endar svona.
Þór/KA
77. mín
InnKaren María Sigurgeirsdóttir
ÚtHildur Anna Birgisdóttir
Þór/KA
77. mín
InnBirgitta Rún Finnbogadóttir
ÚtAngela Mary Helgadóttir
74. mín
Birna með fína tilraun sem Alessandra ver í marki Þór/KA
Þór/KA
73. mín
Gult spjald

Erin Flurey

71. mín
Ingibjörg fær boltann og nær að koma boltanum út í teiginn en gestirnir koma boltanum í burtu.
FH
65. mín
InnBirna Kristín Björnsdóttir
ÚtHafrún Birna Helgadóttir
Þór/KA
63. mín
InnHulda Ósk Jónsdóttir
ÚtAmalía Árnadóttir
FH
58. mín
FH er að snúa þessu við!!!

Ingibjörg Magnúsdóttir (stoðsending: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir)

Andrea Rán kemur boltanum út á Ingibjörgu sem tekur boltann með sér inn á völlinn og leggur boltann í fjær hornið.

Snyrtilega klárað hjá Ingibjörgu.
FH
57. mín
InnNia Raisa Christopher
ÚtElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
FH
57. mín
InnAnna Heiða Óskarsdóttir
ÚtJónína Linnet
FH
55. mín
Gult spjald

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir

Rífur Hildi Önnu niður.
53. mín
Hrönn Haralds fær boltann og á tilraun en þessi bolti langt framhjá markinu.
Þór/KA
51. mín
Gult spjald

Hildur Anna Birgisdóttir

Hildur alltof sein í Aldísi markmann FH og spjald á loft.
48. mín
Erin Flurey fær boltann og á fína tilraun en boltinn framhjá markinu.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
FH
40. mín
MAAAARK!

Hafrún Birna Helgadóttir

Hafrún Birna fær botlann eftir hornspyrnu og nær skoti á markið og boltinn hafði viðkomu varnarmanns Þór/KA og í netið.
35. mín
Hvað gerist þarna??
Erin hirðir boltann af Deju og reynir að fara framhjá Aldísi en Aldís lokar vel. Erin fer til baka og nær skoti en boltinn yfir.

FH heppnar þarna.
34. mín
Andrea Rán með skot fyrir utan teig en boltinn yfir markið.
30. mín
Þór/KA er að verjast vel
FH reynir og reynir en varnarleikur gestanna er þèttur.
28. mín
Hafrún Birna!!!
Fær boltann og tekue hann inn á völlinn og á gott skot sem fer í hliðarnetið.
Þór/KA
23. mín
GESTIRNIR ERU KOMNIR YFIR!

Erin Flurey

Amalia með fyrirgjöf frá hægri á Erin sem tók gott hlaup á fjær og stangar boltann i netið.

Gegn gangi leiksins.
15. mín
FH nálægt því að komast yfir
FH þræðir boltann inn fyrir en Alessandra ver vel. Boltinn berst á Ingibjörgu sem kemur boltanum fyrir en gestirnir koma boltanum í burtu.
14. mín
Ingibjörg gerir aftur vel
Fær boltann hægra megin við vallarhelming Þór/KA og nær að koma boltanun fyrir en Alessandra grípur boltann.
13. mín
Lítið að gerast á vellinum
Þetta fer rólega af stað í Kaplakrika.
6. mín
Ingibjörg gerir vel
Fær boltann á vallarhelming gestanna og keyrir af stað og á skot sem fer af varnarmanni og í hornspyrnu.
2. mín
Þór/KA fær fyrstu hornspyrnu leiksins
Hildur Anna tekur spyrnuna en FH kemur boltanum í burtu.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað
Heimastúlkur hefja leik.
Fyrir leik
Leikmenn eru að ganga inn á völlinn
Leikmenn liðanna heilsast. Það styttist í upphafsflautið í Kaplakrika.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
FH gerir fjírar breytingar á liði sínu frá jafnteflinu gegn Val. Aldís Guðlaugsdóttir, Mackenzie Elyze Smith, Hrönn Haraldsdóttir og Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir.


Birna Kristín Björnsdóttir, Anna Heiða Óskarsdóttir, Nia Raisa Christopher og Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir setjast á bekkinn.

Þór/KA gerir tvær breytingar á liði sínu frá jafnteflinu gegn Þrótti R. Amalía Árnadóttir og Lauren Adrienne Lapomarda koma inn í liðið og Karen María Sigurgeirsdóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir setjast á bekkinn.
Fyrir leik
Þór/KA
Þór/KA situr í 8. sæti en ef þær vinna í dag, geta þær komist upp í 5. sæti og í efra umspilið, en til þess þurfa Þróttur og Grindavík/Njarðvík að tapa sínum leikjum á morgun!

Seinasti leikur Þór/KA var í Laugardalnum gegn Þrótti, en það var bragðdauft markalaust jafntefli!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
FH
FH situr í 2. sæti í Bestu Deildinni fyrir skiptingu með 34 stig, tveimur á eftir Breiðablik. Með sigri geta þær skotist upp í efsta en Breiðablik á hins vegar leik til góða. FH hefur ekki sigrað leik í seinustu þremur leikjum, en eru samt klárlega enn í titilbaráttunni.

FH er líka komið áfram í Evrópubikarnum, en FH fékk erfiðan andstæðing, Eintracht Frankfurt, sem eru sjöfaldir þýskir meistarar! Þeir leikir verða spilaðir 23. og 30. september.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins er Atli Björn E Levy, en honum til halds og trausts verða Ingibjörg Garðarsdóttir Briem og Elías Baldvinsson. Fjórði dómari er Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Góðan og gleðilegan sunnudag! Kaplakriki heilsar, þar sem FH tekur á móti Þór/KA í lokaumferð Bestu Deildar kvenna fyrir skiptingu!
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.