Fotbolti.net
Besta deildin
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Besta karla
Miðgarður
Stjarnan
Stjarnan
2 - 2
ÍBV
ÍBV
0 - 19' Aron Lucas Vokes0 - 270' Alex Freyr HilmarssonDaníel Finns Matthíasson 77'1 - 2Andri Rúnar Bjarnason 79'2 - 2
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Bráðfjörugar lokamínútur! Þvílíkur leikur og dramatík! Þá er það neðri hlutinn sem bíður beggja liða!

En ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla koma á eftir!
ÍBV
95. mín
Gult spjald

Róbert Elís Hlynsson

Sýndist það vera vegna tuðs
94. mín
Horn fyrir Stjörnuna!
ÍBV
93. mín
Gult spjald

Viggó Valgeirsson

92. mín
Jæja tíminn kominn upp, fjórar mínútur
92. mín
Óvitað hver uppbótartíminn er, fjórði dómari setti ekki spjaldið upp!
88. mín
Geggjað skot hjá Milan! Snúningurinn á því var þó þannig að hann fór útaf!
87. mín
Stjarnan í algjöru dauðafæri en eru akki að ná að nýta þessi færi!
82. mín
Horn fyrir Stjörnuna!
Þeir ná ekki að nýta þetta, leikmaður ÍBV lá niðri eftir þetta, en hann var staðinn upp fljótlega
ÍBV
80. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtAron Lucas Vokes
ÍBV
80. mín
InnSesar Örn Harðarson
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
Stjarnan
79. mín
ÞETTA ER LEIKUR!!!!!!!!!

Andri Rúnar Bjarnason

Ég bara sé ekki almennilega hvað gerist!!! Allt í einu fær Andri boltann sem er einn á auðum sjó og skýtur honum inn! Geta Stjörnumenn náð þriðja markinu?!?!?!
Stjarnan
77. mín
ÞEIR KLÓRA Í BAKKANN!!

Daníel Finns Matthíasson

Flott sókn hjá Stjörnumönnum! Sýndist það vera Bjarki sem sendir hann á Daníel sem dúndrar lágum bolta í vinstra hornið!
Stjarnan
74. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtDamil Serena Dankerlui
ÍBV
70. mín
Frábært spil!

Alex Freyr Hilmarsson (stoðsending: Aron Lucas Vokes)

Aron með boltann hægra megin, leikur á einn og reynir fyrirgjöfina og þar er Alex mættur með þrususpark sem syngur í netinu!
69. mín
Aukaspyrnan endar í horni!
Örvar með háan skalla en ekkert sem angrar Ara
ÍBV
68. mín
Gult spjald

Eiður Atli Rúnarsson

Brýtur á Andra Rúnari rétt fyrir utan D-bogann
67. mín
Þversláin!
Aron nær fyrirgjöf, Bjarki Björn nær síðan þrususkoti beint í þverslánna!
65. mín
Litla skotið hjá Birni
Kominn vinstra megin, reynir einhverja takta og þrusar honum á markið en Ari ver í horn.
60. mín
Árni gerir frábærlega! Sýndist Aron vera sloppinn einn í gegn og reynir að vippa yfir Árna en hann gerir vel og ver þennan burt. Lausi boltinn endar hins vegar á leikmanni ÍBV en varnarmenn Stjörnunnar ná að hreinsa þetta burt
Stjarnan
57. mín
InnJóhann Árni Gunnarsson
ÚtAlex Þór Hauksson
Stjarnan
57. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtÁrni Vilhjálmsson
51. mín
Vicente með fallegan boga á þessum en hann fer rétt framhjá!
Stjarnan
50. mín
Gult spjald

Damil Serena Dankerlui

Damil brýtur á sér og það verða einhver læti eftir þetta. Sá ekki hvað gerðist en aukaspyrnan er á hættulegum stað1
49. mín
Litla varslan hjá Árna!
Vörnin hjá Stjörnunni í algeru brasi! Fyrst kemur Aron með fast skot sem Árni ver og síðan endar laus bolti stuttu seinna á kollinum á leikmanni ÍBV og Árni þarf að stökkva í gagnstæða átt þar sem hann var að fara fyrst!
46. mín
Seinni hálflekur farinn af stað!
Leikiur hafinn... eða hvað? Dómarinn segir ÍBV að endurtaka miðjuna
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikstölfræði:
Með boltann: 66% - 34%
Skot: 6-7
Á mark: 3-4
Sendingar: 323-165
45. mín
Hálfleikur
+2
Tökum okkur korter!
45. mín
+2
Stjarnan fær einhverra hluta vegna horn, spila það stutt og inn í teig en ná ekki að nýta það
45. mín
Skyndilega komst ÍBV í skyndisókn! Hlaupa upp hægra megin og senda síðan á Aron sem er einn gegn Árna, en hann hittir hann framhjá!

En uppbótartíminn er tvær mínútur!
44. mín
Stjarnan að fá aukaspyrnu hægra megin við vítateiginn.

Gætu þeir jafnað fyrir hálfleik? Svarið er nei!

ÍBV skallar þenann bolta burt og hreinsa!
ÍBV
39. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtOmar Sowe
Omar getur ekki haldið áfram eftir þessi meiðsli og hefur því lokið leik í dag
34. mín
Omar Sowe liggur niðri og þarf aðhlynningu. Sá ekki hvað gerðist.

Hann er kominn aftur inná og leik haldið áfram
31. mín
Færi fyrir ÍBV
Omar Sowe með flott skot vinstra megin við teiginn sem Árni ver vel, en lausi boltinn fer hins vegar á annan leikmann ÍBV sem skýtur honum bara í hliðarnetið
28. mín
Omar Sowe allt í einu kominn í dauðafæri, einn á móti Árna Snæ, en hann er stöðvaður af varnarmanni Stjörnunnar. Tilvalið færi til að bæta öðru við!
22. mín
Stjarnan búið að vera mikið meira með boltann, en tölfræðin segir 61% gegn 38%. Hafa átt eitt tvö færi sem þeir hefðu mátt nýta betur
16. mín
Horn fyrir Stjörnuna
Flottur bolti inn! Mikil þvaga sem myndaðist þarna og leikmaður Stjörnunnar skýtur honum útaf en þeir vilja meina að hann hafi farið af varnarmanni út.
14. mín
Flott færi hjá Stjörnunni1
Langur bolti fram sem Örvar skallar fram á Bjarka, hleypur upp hægri vænginn og kemur með fyrirgjöfina. Boltinn endar á Birni sem tekur hann í fyrsta en misreiknar þetta eitthvað og þrumar honum yfir!
ÍBV
9. mín
ÍBV LEIÐIR

Aron Lucas Vokes (stoðsending: Alex Freyr Hilmarsson)

Frábært uppspil hjá ÍBV, boltinn endar á Alex Frey sem hleypur upp af miðjunni og nær að sneiða einni sendingu í gegn á Aron sem setur hann í vinstra hornið!
6. mín
Lítið að gerast fyrstu mínúturnar fyrir utan þetta dauðafæri snemma í leiknum
1. mín
Stjarnan strax komið í dauðafæri! Gummi Kri með geggjaða skiptingu yfir á vinstri kant, sé ekki hverjir eigast við í teignum, en boltinn endar allavega í fanginu á Ara
1. mín
Leikur hafinn
Og þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Liðin eru að labba út á völl, þessi veisla fer alveg að hefjast!
Fyrir leik
Fyrir leik
Óhappabrot
Örvar Logi varð fyrir því óláni að handarbrotna á Kópavogsvelli, en hann fór útaf fyrir seinni hálfleik. Hann verður því ekki með í dag
Fyrir leik
Milan Tomic framlengir
Vestmannaeyingar fengu frábærar fréttir í gær þegar tilkynning barst frá ÍBV að Milan Tomic hafi framlengt við liðið!
Fyrir leik
Okkar allra besti maður, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, hendi í skemmtilega grein fyrir áskrifendur um samningslausa leikmenn og nefndi þar að meðal Emil Atlason og Omar Sowe, en þeir leika með liðunum sem keppa í Miðgarði í dag!
Fyrir leik
Spá leiksins!
Bjartur Bjarmi Barkarson, leikmaður Aftureldingar, var fenginn til að spá í spilin fyrir lokaumferðina! Þetta hafði hann að segja um þennan leik!

Stjarnan 3 - 1 ÍBV (14:00 á sunnudag)
BK ball skilar þremur stigum, Birnir búinn að skora í tveimur leikjum í röð og hendir í þrennu í þessum leik.
Fyrir leik
ÍBV
ÍBV situr í 11. sæti en geta komist upp í 10. sæti ef Þór tapar sínum leik gegn FH og verða því í neðri hlutanum.

Seinustu leikir þeirra hafa ekki verið upp á marga fiska, en ÍBV hefur ekki sigrað í 2 mánuði, eða síðan þeir tóku Val á heimavelli 4. júlí síðastliðinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stjarnan
Stjarnan situr í 8. sæti en geta skotist upp í 6. sæti og þar með í efri hlutann með jafntefli eða sigri, en það fer eftir úrslitum í leik ÍA og KR sem er einnig kl 14:00.

Stjarnan hefur sigrað fjóra af seinustu 5 og náðu sterkum sigri í seinustu umferð á útivelli gegn Breiðablik 0-2!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins er Gunnar Oddur Hafliðason en á flöggunum verða Esyteinn Hrafnkelsson og Þráinn Jón Elmarsson. Fjórði dómari er Stefán Ragnar Guðlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Miðgarðurinn kallar
Heil og sæl og verið velkomin í Miðgarð þar sem Stjarnan tekur á móti ÍBV í lokaumferð Bestu deildar karla fyrir skiptingu!
Mynd: Aðsend

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.