Fyrir leik
Dómarinn
Arnar Þór Stefánsson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Guðmundur Ingi Bjarnason og Kristofer Bergmann. Twana Khalid Ahmed verður fjórði dómari og Skúli Freyr Brynjólfsson er dómaraeftirlitsmaður.

Fyrir leik
KA menn lifnað við eftir komu Eiðs
Það hefur verið myrkur yfir brekkunni á Akureyri mest allt sumarið, en það hefur aðeins byrjað að birta til undanfarið hjá þeim. Eiður Smári Guðjohnsen varð aðalþjálfari liðsins með Hallgrími Jónassyni um miðjan ágúst og það sést á liðinu. Fyrsti leikurinn eftir að hann kom var gegn KR en þá töpuðu þeir 5-3 fyrir norðan, en þá var hann búinn að vera stutt. Síðan þá gerðu þeir 2-2 jafntefli við Fram og síðan 2-1 sigur gegn Breiðablik. KA liðið leit nokkuð vel út í þeim leik, og ættu að geta tekið einhverja bjartsýni inn í fallbaráttuna eftir það.

Fyrir leik
FH safnaði stigunum í seinni umferðinni
FH náði aðeins í 6 stig í fyrstu 11 leikjum tímabilsins, en náði heldur betur að snúa hlutunum við og náðu í 15 stig í seinni 11 leikjunum. Þeir voru taplausir alveg heillengi, en voru mjög mikið að gera jafntefli á þeim tíma. Sú hrina endaði þegar þeir töpuðu fyrir Víking 4-2, og síðan þá töpuðu þeir einnig fyrir Þór 1-0. Það eru því einhver veikleikamerki á liðinu í síðustu leikjum, en greinilegt að þeir eru á betri stað í dag, en í byrjun móts.

Fyrir leik
Fyrsti leikur eftir skiptingu
Venjulegri deildarkeppni er lokið og það er gríðarlega spenna í neðri hlutanum. FH endaði í 9. sæti deildarinnar með 21 stig, á meðan KA endaði í 11. sæti með 20 stig. Þetta er því gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið, og getur haft mikil áhrif á loka stöðu deildarinnar.

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik FH og KA í 23. umferð Bestu deildar karla.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður spilaður á Kaplakrikavelli.
Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður spilaður á Kaplakrikavelli.





