Fotbolti.net
Besta deildin
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta karla - Efri hluti
ELKEM völlurinn
ÍA
ÍA
4 - 1
Breiðablik
Breiðablik
Gísli Eyjólfsson 29'1 - 0Viktor Jónsson 43'2 - 0Viktor Jónsson 52'3 - 0Markús Páll Ellertsson 69'4 - 04 - 191' Birkir Þorsteinsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Hoppukastalar og frítt inn á Skaganum

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var frekar jafn til að byrja með en Skagamenn áttu tvö góð pressu moment í fyrri hálfleik, og náðu að búa til dauðafæri í bæði skiptin sem skapa mörkin. Í seinni hálfleik voru Skagamenn aðeins hressari og náðu að skapa sér færin, hins vegar var það aðallega Blikar sem virtust voða takmarkað nenna að verjast.

Bestu leikmenn

1. Gísli Eyjólfsson (ÍA)

Skorar fyrsta markið og hann bjó það til alveg sjálfur. Orka í Gísla á miðjunni í leik sem hafði litla þýðingu, en eins og hann sagði sjálfur þá er skemmtilegra að vinna heldur en að tapa.

2. Viktor Jónsson (ÍA)

Var nálægt því að skora þrennuna en það tóks ekki alveg. Tók færin sem hann skoraði úr mjög vel.

Atvikið

Lítið af afgerandi atvikum en markið hans Markúsar var nokkuð flott. Röltir að vítateignum alveg óáreittur og tekur svo fast skot niðri í hornið.
Skemmtilegast var í raun þegar maður labbaði á völlinn og sá að það var frítt inn og félagið var búið að koma fyrir hoppuköstulum fyrir krakkana. Þetta trekkti að og það var nokkuð vel mætt á leikinn, svo voru þeir með leik í hálfleik þannig umgjörðin var til fyrirmyndar.

Hvað þýða úrslitin?

ÍA jafnar Breiðablik í töflunni en komast ekki upp fyrir vegna markatölu. Þessi lið munu berjast um þetta fjórða sæti, þó það gefi ekki neitt auka.

Vondur dagur

Varnarleikur Blika var oft mjög slakur, vantaði alla baráttuna í þá. Ef ég þarf að minnast á einhvern einn, þá leit Viktor Örn á köflum ekkert sérlega vel út.

Dómarinn - 8

Gunnar Freyr dæmdi leikinn þar sem Jóhann Ingi tognaði á kálfa í upphitun. Gunnar og teymið gerðu þetta bara vel, en þetta var ekki erfiður leikur að dæma. Það mátti helst sjá það á því þegar Lárus Orri þjálfari ÍA ætlaði að þræta fyrir eitthvað brot við Jóhann Inga fjórða dómara þá endaði það bara í brosi og hlátri hjá báðum, frekar en öskrin og lætin sem má oft sjá á hliðarlínum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.