Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta karla - Neðri hluti
Kaplakrikavöllur
10 stig og grátt yfir
FH
FH
5 - 2
Stjarnan
Stjarnan
Jóhannes Kristinn Bjarnason 14'1 - 0Gils Gíslason 20'2 - 0Kjartan Kári Halldórsson (víti) 32'3 - 0Kjartan Kári Halldórsson 33'4 - 04 - 146' Benedikt V. Warén4 - 261' Benedikt V. WarénGuðmundur Andri Tryggvason 90'5 - 2
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 407
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Stigu risastórt skref í átt að Bestu deildinni 2027

Hvað réði úrslitum?

Það var svakalegur andi í FH-ingunum og maður fann það alveg frá byrjun. Þeir hentu sér fyrir allt og börðust alveg svakalega fyrir hvorn annan. Þeir voru mjög sterkir í skyndisóknunum og refsuðu Stjörnunni grimmilega fyrir öll mistök. Á sama tíma voru Stjörnumenn linir og lélegir varnarlega. Mikil vonbrigði hjá Garðbæingum.

Bestu leikmenn

1. Kjartan Kári Halldórsson (FH)

Var allt í öllu í sóknarleik FH-inga. Skoraði tvö mörk og tók þátt í fleirum. Óheppinn að skora ekki þrennuna.

2. Ísak Óli Ólafsson (FH)

Skallaði gríðarlega marga bolta í burtu og henti sér fyrir allt sem kom í átt að marki. Fyrirliðinn leiddi með fordæmi.

Atvikið

Fyrsta markið sem Jóhannes Kristinn Bjarnason skorar setti tóninn fyrir FH-inga. Í kjölfarið komu þrjú mörk til viðbótar með stuttu millibili og Stjörnumenn voru svo gott sem slegnir í rot.

Hvað þýða úrslitin?

FH er komið í frábæra stöðu upp á að halda sér í deildinni, þeir eru núna sex stigum frá fallsæti þegar þrír leikir eru eftir. Stjarnan hefur þegar tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni og hefur ekkert að spila upp á í raun og veru.

Vondur dagur

Gustav Kjeldsen átti erfiðan dag og það sama má segja um Ara Leifsson en þeir lentu í vandræðum með spræka sóknarmenn FH-inga. Benedikt Warén dreif Stjörnuna áfram í seinni hálfleik en aðrir fylgdu ekki með honum.

Dómarinn - 5

Hefði mögulega átt að gefa Tómasi Orra, miðjumanni FH, rautt spjald um miðbik seinni hálfleikinn. Það var allavega gult. Það var í stöðunni 4-2 og hefði mögulega haft mikil áhrif á leikinn. Annars fínt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.