Fotbolti.net
Magnús Atlason
Þjóðadeildin
Laugardalsvöllur
11°, rigning og vindur. Hefðbundið októberveður.
Ísland
Ísland
3 - 0
Búlgaría
Búlgaría
Orri Steinn Óskarsson (f) 37'1 - 0Orri Steinn Óskarsson (f) 60'2 - 0Orri Steinn Óskarsson (f) (misnotað víti) 84'Mikael Egill Ellertsson 90'3 - 0
Dómari: Balázs Berke (HUN)
Áhorfendur: 5069
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
3-0 sigur Íslands staðreynd og Ísland heldur sér á toppi riðilsins. Viðtöl og umfjallanir væntanleg eftir leik. Ég þakka fyrir mig.
90. mín
90+3
Gylfi liggur eftir og þarfnast aðhlyninngar.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við
Ísland
90. mín
MAAARKKKKK

Mikael Egill Ellertsson (stoðsending: Orri Steinn Óskarsson (f))

Orri með sendinguna inn fyrir á hárréttum tíma á Mikael Egil sem tímasetur hlaupið fullkomlega. Búlgararnir ná honum ekki og Mikael klárar þægilega framhjá Daniel.

3-0!
88. mín
Tsenov með fast skot en Hákon vissi allan tímann að boltinn væri á leið yfir.
Ísland
84. mín
Varið

Orri Steinn Óskarsson (f)

Hann setur hann niðri í vinstra hornið en í þægilegri hæð fyrir Daniel sem ver í horn.

Svekkjandi.
Búlgaría
82. mín
InnVladimir Nikolov
ÚtAtanas Iliev
Ísland
82. mín
InnLogi Tómasson
ÚtHákon Arnar Haraldsson
81. mín
ÍSLAND FÆR VÍTI
Aukaspyrnan inn í teiginn og boltinn fer í höndina á Iliev og Ungverjinn bendir á punktinn.

VAR búið að fara yfir þetta. Vítið er staðfest og Orri stillir sér upp. Þrenna?
Búlgaría
81. mín
Gult spjald

Marin Petkov

Aftur er brotið á Andra Lucasi.
80. mín
Mikael Neville vinnur boltann með góðri tæklingu en sendingin inn í teiginn ætluð Gylfa var ónákvæm.
77. mín
Gylfi með misheppnaða sendingu og Búlgarar geta sótt hratt. Skotið úr sókninni varð ekki merkilegt, beint á Hákon sem grípur boltann.
76. mín
Orri og mark tvö
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

75. mín
Innkast Mikaels Egils dæmt af honum. Hann var of lengi að taka það og gestirnir fá innkastið.
72. mín
Hákon Rafn grípur fyrirgjöf frá Dimitrov.
70. mín
Daníel Leó með góða tæklingu inn í teig og boltinn endar hjá Hákoni.
Búlgaría
66. mín
InnPetko Panayotov
ÚtAsen Chandarov
Búlgarar gera líka tvöfalda breytingu.
Búlgaría
66. mín
InnZdravko Dimitrov
ÚtGeorgi Rusev
Ísland
63. mín
InnGylfi Þór Sigurðsson
ÚtJón Dagur Þorsteinsson
Arnar gerir aftur tvöfalda breytingu.
Ísland
62. mín
InnGuðlaugur Victor Pálsson
ÚtAndri Fannar Baldursson
Ísland
60. mín
ORRI TVÖFALDAR

Orri Steinn Óskarsson (f) (stoðsending: Mikael Neville Anderson)

Hákon kemur boltanum upp í hornið á Mikael Neville. Hann sendir á Orra sem lúrir inn í markteig og stýrir boltanum í netið. Þetta þarf ekki að vera flókið!

Annað mark fyrirliðans í dag.
Búlgaría
59. mín
Gult spjald

Atanas Iliev

Fer of harkalega í Andra Lucas.

Ungverjinn hefur verið óhræddur að veifa gula spjaldinu.
Búlgaría
55. mín
InnMarin Petkov
ÚtLukas Petkov
Búlgaría
55. mín
InnEmil Tsenov
ÚtIlia Gruev
53. mín
Mikael Neville gerir vel og kemur boltanum svo á Jón Dag en fyrsta snertingin svíkur hann.

Ísland nær svo boltanum aftur og heldur sókninni áfram. Ísak Bergmann kemur með fasta sendingu inn í teiginn á Orra sem stýrir honum rétt framhjá. Munaði litlu.
49. mín
Mikael Egill í hlaupinu inn í teignum og er tekinn niður. Ísland kallar eftir víti en Ungverjinn segir nei. Líklegast hárrétt.
47. mín
Myndir úr fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Allt komið af stað aftur. Koma svo!
Ísland
46. mín
InnDaníel Leó Grétarsson
ÚtAron Einar Gunnarsson
Tvær breytingar í hálfleik
Ísland
46. mín
InnAndri Lucas Guðjohnsen
ÚtArnór Sigurðsson
45. mín
Hálfleikur
Tölfræði frá UEFA
Með bolta
Ísland 55% - 45% Búlgaría
Skot
Ísland 5-3 Búlgaría
Sendingar
Ísland 218 - 194 Búlgaría
Hornspyrnur
Ísland 8 - 1 Búlgaría
45. mín
Hálfleikur
Ungverjinn flautar til hálfleiks hér
Ísland búið að vera töluvert sterkari aðilinn hér og leiðir verðskuldað 1-0, þó færin hafi ekki verið mörg. Hákon sá til þess að Búlgarar jöfnuðu ekki undir lok fyrri hálfleiks. Tökum okkur korter.
45. mín
Einni mínútu bætt við.
45. mín
Hákon bjargar Hákoni
Hákon Arnar missir boltann á stórhættulegum stað og Búlgarar ná skoti en Hákon Rafn ver frábærlega í horn.

Hann grípur svo boltann úr horninu.
44. mín
Jón Dagur vinnur boltann á hættulegum stað og rennir honum svo á Ísak sem er of lengi að athafna sig og skotið beint á Daniel.
43. mín
Jón Dagur aftur á ferðinni en fyrirgjöfin of há og endar í markspyrnu.
42. mín
Hákon og Jón Dagur tengja vel á vinstri kantinum. Hákon vinnur síðan hornspyrnu sem ekkert verður úr.
Ísland
37. mín
ORRI BRÝTUR ÍSINN

Orri Steinn Óskarsson (f) (stoðsending: Hákon Arnar Haraldsson)

Hákon með boltann við D-bogann. Hann sendir inn í teiginn á Ísak sem lætur boltann fara og þá er Orri mættur og klárar snyrtilega framhjá Daniel.

Frábær Íslands endar með frábæru marki. 1-0!
35. mín
Hörður Björgvin vinnur hornspyrnu.

Jón Dagur með spyrnuna en Daniel kýlir boltanum frá.
Ísland
32. mín
Gult spjald

Mikael Egill Ellertsson

Brýtur á Petkov en Ungverjinn dæmir ekki fyrr en mörgum sekúndum seinna. Stúkan púar.
30. mín
ANDRI FANNAR
Andri Fannar reynir skotið af löngu færi en Daniel í markinu ver vel í horn. Þessi var á leiðinni upp í samskeytin.

Hornið frá Ísaki yfir allan pakkann.
28. mín
Hákon gerir mjög vel og rennir boltanum svo á Arnór. Hann gefur boltann á hættusvæði inn í teignum en þar er enginn.

Þarna var tækifæri.
27. mín
Stórhættulegt
Gestirnir vinna boltann og sækja hratt. Fyrirgjöfin kemur inn í teiginn á Petkov sem leggur hann á Iliev sem er óvaldaður inn í teig. Hann er fljótfær og skýtur yfir markið.

Langbesta færi leiksins.
25. mín
Misskilningur í vörn Íslands en Búlgarar ná sem betur fer ekki að refsa.
20. mín
Frábært, hratt spil hjá okkar mönnum og Jón Dagur er kominn inn í teig. Hann reynir skotið sem fer af varnarmanni áður en það er hreinsað í horn.

Við sköpum okkur ekkert úr því.
15. mín
Ísland hefur legið á gestunum þetta fyrsta korter en ennþá hefur ekki skapast almennilegt færi.
14. mín
HÚH!
Heyrist úr Laugardalnum.
11. mín
Hákon Arnar með hornspyrnu sem fengin var úr aukaspyrnunni. Ísland uppsker aðra hornspyrnu, nú hinum megin frá.

Og svo aftur hinum megin en Búlgarar ná valdi á boltanum.
Búlgaría
10. mín
Gult spjald

Lukas Petkov

Fer í hressilega á Jóni Degi og Ísland fær aukaspyrnu á fínum stað.
9. mín
Aron Einar með skiptinguna yfir völlinn á Jón Dag sem köttar og tekur skotið en í varnarmann.
7. mín
Ísland fær hornspyrnu.

Hákon með fínan bolta inn í teiginn. Hann er skallaður áfram en það var enginn til þess að taka við honum. Markspyrna niðurstaðan.
6. mín
Pressa Íslands skilar okkur innkasti. Stúkan tekur við sér.
Ísland
4. mín
Gult spjald

Hörður Björgvin Magnússon

Stoppar upphlaup Búlgara.
3. mín
Ísland í ágætis stöðu en sending Orra inn í teiginn of aftarlega.
2. mín
Rusev með fyrirgjöfina sem er afar slök. Ísak skallar frá.
1. mín
Búlgarar fá aukaspyrnu alveg við vítateigshornið. Metri innar og þetta hafði verið víti.
1. mín
Búlgaría hefur leik!
Ilia Gruev sparkar leiknum af stað.

Áfram Ísland!
Fyrir leik
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Þjóðsöngvar framundan!
Liðin ganga inn á völlinn undir Þjóðadeildarstefinu. Það er að mér sýnist, fínasta mæting á völlinn.
Fyrir leik
Áhugavert lið
Logi Tómasson er veikur og getur því ekki byrjað. Gylfi Þór Sigurðsson, Andri Lucas Guðjohnsen, Stefán Teitur Þórðarson, Daníel Leó Grétarsson og Guðlaugur Victor Pálsson fara sömuleiðis úr byrjunarliðinu og taka sér allir sæti á bekknum.

Inn í liðið koma þeir Aron Einar Gunnarsson, Hörður Björgvin Magnússon, Andri Fannar Baldursson, Mikael Neville Anderson, Jón Dagur Þorsteinsson og Arnór Sigurðsson.
Fyrir leik
Arnar gerir sex breytingar!
Mynd: Kári Snorrason

Fyrir leik
Hitað var upp fyrir leikinn í útvarpsþættinum Fótbolti.net
Fyrir leik
Ísland fimmfalt sigurstranglegra
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska landsliðið er mun sigurstranglegra í leik dagsins og sést það vel hjá veðbönkum. Epicbet er með 1,46 í stuðul á sigur Íslands en 7,00 á Búlgaríu. Stuðullinn 4,48 er á jafntefli.
Fyrir leik
Daníel Tristan í hópnum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenski landsliðshópurinn er aðeins breyttur frá síðasta leik, en Kristall Máni Ingason meiddist og Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn í hópinn í staðinn. Hann verður þó aðeins með gegn Búlgaríu í dag og fer svo aftur í U21 hópinn.

„Hann hefur fengið sjálfstraust og þess vegna er hann með okkur núna. Ég hef alltaf sagt ef hann fer niður (í U21) þá á hann að líta á sig sem A-landsliðs mann og sýna hversu sterkur og öflugur hann er, og hversu langt hann er kominn. Svo mætir hann með okkur núna og vonandi getur hann hjálpað okkur núna á laugardaginn, ég hef enga trú á öðru. Svo fer hann aftur út til móts við U21 árs landsliðið, því það er hrikalega mikilvægt verkefni sem býður þeirra að tryggja sér sæti á móti," sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi.

Fyrir leik
„Þá er þessi Eistlands-leikur gleymdur“
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Eftir 1-1 vonbrigða jafntefli gegn Eistlandi í síðasta heimaleik kom frábært svar gegn Lúxemborg á þriðjudaginn.

Ísland er á toppi riðilsins með 4 stig og getur komið sér í enn betri stöðu þegar liðið fær Búlgaríu í heimsókn á laugardag.

„Leikurinn á undan leit hræðilega út og það er rosalega stutt á milli í þessu. Segjum að við náum góðum úrslitum heima á móti Búlgaríu erum við í toppmálum, jákvæðir og glaðir. Við þurfum að byggja á þessu og sjá til að við náum í úrslit og þá er þessi Eistlands-leikur gleymdur," sagði Kári Árnason, sérfræðingur á Sýn Sport, eftir síðasta leik.

Lúxemborg var meira með boltann á þriðjudag en Ísland samt með fulla stjórn á leiknum og þá segir Kári einnig að það hafi verið mikilvægt að halda hreinu.

„Ef þú lítur á tölfræðina eftir leik er Lúxemborg meira með boltann og ég veit að ef þessi leikur hefði farið illa þá hefði okkar maður ekki verið ánægður með það en þessi leikur leit frábærlega út. Aldrei vorum við ekki með fullt kontról á þessum leik. Pressan var frábær, holning góð og þeir að reyna eitthvað sem hentaði okkur frábærlega og hraðar sóknir."
Fyrir leik
Boltahrunið í Búlgaríu
Árið 1994 komst Búlgaría í undanúrslit heimsmeistaramótsins með því að vinna óvæntan sigur gegn Þýskalandi. Meðal leikmanna var Hristo Stoichkov sem hlaut Ballon d'Or Gullboltann það ár. Búlgaría kleif hæst upp í 8. sæti heimslistans.

En nú er öldin svo sannarlega önnur.


Fyrir leik
Staðan, C-deild Þjóðadeildarinnar, riðill 4
Staðan eftir 2 umferðir
1. Ísland 4 stig
2. Lúxemborg 3 stig
3. Eistland 2 stig
4. Búlgaría 1 stig
Fyrir leik
Þriðja liðið frá Ungverjalandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ungverski dómarinn Balazs Berke mun dæma leikinn.

Berke var fjórði dómari þegar Valur og Nordsjælland mættust á Hlíðarenda í forkeppni Sambandsdeildarinnar í sumar (í leik sem endaði 0-2). Hann endaði með flautuna því hann tók við sem aðaldómari í lok fyrri hálfleiksins eftir að Gergo Bogar tognaði aftan í kálfa. Berke, sem dæmir mikið í Evrópudeildinni, er því að fara að dæma annan leik sinn á Íslandi þetta árið.

Allt teymið á leik Íslands og Búlgaríu kemur frá Ungverjalandi en Tamas Bognar verður VAR dómari.
Fyrir leik
Landsleikjaglugginn langi heldur áfram!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir flottan 3-0 útisigur gegn Lúxemborg er komið að þriðja leik Íslands af fjórum í þessum glugga. Nú er það heimaleikur á móti Búlgaríu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.