29.09.26 - 21:54
Brynjar Ingi Erluson
„Þá er þessi Eistlands-leikur gleymdur“

Íslenska liðið fagnar í kvöld

Mynd: KSÍ

Arnar Gunnlaugs er létt að hafa náð í sigur

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán Teitur meiddist en Aron segir það vera högg

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska liðið fagnar í kvöld

Mynd: KSÍ

Kári Árnason og Aron Elís Þrándarson gerðu upp 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í Þjóðadeildinni í settinu á Sýn í kvöld.

TENGT EFNI
Langþráður og sannfærandi sigur í Lúxemborg
Íslenska liðið spilaði frábæran leik þar sem Andri Lucas Guðjohnsen, Orri Steinn Óskarsson og Guðlaugur Victor Pálsson skoruðu mörkin.
Eftir 1-1 vonbrigða jafntefli gegn Eistlandi í síðasta leik kom frábært svar.
„Frábært svar við síðustu vonbrigðum og frábær leikur. Við gáfum engin færi á okkur og akkúrat það sem við kölluðum þetta áður. Þetta spilaðist upp í hendurnar á okkur og hentaði okkur vel að spila á móti þessu liði. Pressan var góð, vel uppstilltur leikur hjá Arnari og ákefðin var miklu meiri og miðsvæðið var lokað hjá Ísaki og Gylfa. Þetta var mjög solid leikur heilt yfir.“
„Þetta er það besta sem við höfum séð frá þeim í lengri tíma. Frakkaleikurinn var hörkuleikur og dómaraskandall að við höfum ekki fengið eitthvað út úr því. Sú frammistaða var frábær á móti töluvert sterkari andstæðingi, en þetta var gríðarlega gott svar. Við vorum að tala um það meðan við vorum að horfa á leikinn að það væri miklu hærra orkustig. Þetta leit miklu betur út og allt annað að sjá til liðsins,“ sagði Kári.
Kári telur að leikskipulag heimamanna hafi hentað íslenska liðinu mjög vel.
„Við fórum vel yfir þetta fyrir leik. Við erum að spila á móti lágblokk í fyrri leiknum. Fimm manna lína og þeir að reyna beita okkur skyndisóknir en í þessum leik voru þeir að fara fram úr sér og halda að þeir séu betri en þeir eru. Ég var búinn að telja svona tíu skipti þar sem var búið að taka af þeim boltann í uppspili, en þeir héldu samt áfram. Vel uppstillt hjá Arnari en þeir spila bolta sem hentar okkur töluvert betur en að mæta lágblokkinni.“
Nú er staðan mun betri. Ísland er á toppi riðilsins með 4 stig og getur komið sér í enn betri stöðu þegar liðið fær Búlgaríu í heimsókn á laugardag.
„Auðvitað. Leikurinn á undan leit hræðilega út og það er rosalega stutt á milli í þessu. Segjum að við náum góðum úrslitum heima á móti Búlgaríu erum við í toppmálum, jákvæðir og glaðir. Við þurfum að byggja á þessu og sjá til að við náum í úrslit og þá er þessi Eistlands-leikur gleymdur.“
Lúxemborg var meira með boltann en Ísland samt með fulla stjórn á leiknum og þá segir Kári einnig að það hafi verið mikilvægt að halda hreinu.
„Ef þú lítur á tölfræðina eftir leik er Lúxemborg meira með boltann og ég veit að ef þessi leikur hefði farið illa þá hefði okkar maður ekki verið ánægður með það en þessi leikur leit frábærlega út. Aldrei vorum við ekki með fullt kontról á þessum leik. Pressan var frábær, holning góð og þeir að reyna eitthvað sem hentaði okkur frábærlega og hraðar sóknir.
„Gríðarlega. Ég held að það hafi verið mjög ofarlega vegna þess að þetta byrjar allt á vörninni og því meira traust sem liðið ber til varnarinnar því meira frelsi er í sóknarleiknum en það breytir því ekki að þeir þurfa að hafa tvo fyrir framan sig og Gylfi og Ísak leystu það vel í dag en þú sást það pínu í leik liðsins að seinni hálfleikurinn hafi verið meira passífur sem er allt í góðu og við sköpuðum nokkra hættulega sénsa en klárlega var það á dagskránni að halda hreinu,“ sagði Kári.
Aron Elís talaði um að frammistaðan hafi verið heilsteypt og var ánægður með baráttuandann.
„Heilsteypt frammistaða og aldrei áhyggjur að við værum að fara tapa þessu niður. Kláruðum þetta fagmannlega í seinni hálfleik,
„Það var kominn hundur í menn í lokin og gríðarlega sáttur með þessa frammistöðu og úrslit.“
Mikael Egill Ellertsson spilaði úti hægra megin. Aron var ánægður með leikskipulagið.
„Mér fannst það koma vel út. Mikael Egill er með mikinn kraft og vinnslu á meðan Hákon er með meiri mýkt en líka vinnslu. Það gekk og holningin eins og Kári sagði mjög góð.“
Stefán Teitur Þórðarson hafði staðið sig vel í miðverðinum en fór meiddur af velli þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Aron telur það vera mikið högg.
„Klárlega. Hann var búinn að vera flottur í þessum leik og aldrei gott þegar það er hnéið og vonandi fyrir okkar hönd og þjóðarinnar að þetta sé ekki of alvarlegt,“ sagði Aron enn fremur.