„Eini glæpur minn að mig langar að Ísland verði alvöru þjóð í fótbolta"


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland tekur á móti Búlgaríu á morgun í Þjóðadeildinni. Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari og Ísak Bergmann Jóhannesson leikmaður liðsins sátu fyrir svörum á fréttamannafundi í dag.
Fyrsti leikurinn í þessum landsliðsglugga var vonbrigðis jafntefli gegn Eistlandi en næsti leikur var sannfærandi 3-0 sigur gegn Lúxemborg. Það var komin smá pressa eftir fyrsta leikinn en umræðan hefur verið öllu jákvæðari eftir hinn.
„Ég er bara í þessum landsliðsfótbolta, þá er þetta bara smáatriðin. Mér fannst við hlaupa alveg jafn mikið í báðum leikjum, en kannski var þetta 1-2% hvað sem veldur. Hvort þetta var vanmat eða ekki, það er fullt af útskýringum. Leikurinn á móti Eistlandi var ekki eins og hræðilegur og margur heldur. Ég talaði um neistann eftir leikinn, þá var ég ekki að meina neistann hjá leikmönnum að það vantaði einhvern vilja til að hlaupa og sýna ástríðu. Þetta var meiri neisti í að klára sóknirnar betur og klára ákveðin atriði betur."
„Það sem ég var mjög ánægður með leikinn á móti Lúxemborg er að við lásum leikinn mjög vel. Það er bara þannig að leikir bjóða upp á annað hvort þennan dans eða hinn og við þurfum að vera fljótir að lesa það. Lúxemborg bauð okkur upp á mikið af skyndisóknum ef við myndum vera sterkir í varnarleik, og við bara þáðum það boð með þökkum. Við vorum ekkert að rembast við annan leik sem mögulega hefði ekki virkað. Mér fannst það þroskamerki á liðinu, við höfum talað mikið um ‘game management’ og hvernig er að lesa í leikstöður. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á að leikmenn kunni alla þætti leiksins. Því þú færð bara mismunandi áherslur í hverjum einasta leik," sagði Arnar
Ísak var einnig ánægður með sigurinn gegn Lúxemborg og hafði þetta að segja.
„Ég tek undir það sem Arnar er að segja. Mér fannst líka mjög þroskuð frammistaða hjá okkur í Lúxemborg, við fengum varla færi á okkur og vorum mjög skipulagðir varnarlega. Svo vorum við að vinna þvílíkt mikið af boltum hátt á vellinum, pressan var gríðarlega góð, sérstaklega í fyrri hálfleik. Mér fannst, eins og Arnari fyrri leikurinn alls ekkert það slæmur. Auðvitað hefðum við viljað skapa meira en vonandi verðum við með meiri stjórn hér á Laugardalsvelli á móti Búlgaríu og sköpum kannski aðeins meira."
Búlgarska liðið sem Ísland mætir á morgun er nýbúið að skipta um þjálfara sem gæti gert undirbúningsvinnu þjálfarteymisins aðeins erfiðara.
„Það gæti verið bæði, og. Erum við að henda öllum klippum sem við vorum búnir að safna með tilkomu nýs þjálfara, nei klárlega ekki. Svo fær þessi þjálfari bara tvo leiki, þannig er hann að fara út í einhverja vitleysu og gera það sem honum sýnist? Ég held ekki heldur, þannig þetta er bara smá bland í poka. Þetta verður spennandi að sjá og þess vegna ítreka ég aftur hversu mikilvægt það er fyrir leikmenn og okkur að hafa leikstjórnina á hreinu og vera fljótir að lesa hvað þeir eru að bjóða okkur upp á, á fyrstu tíu mínútunum. Hvaða leikkerfi þeir spila, hvaða færslur þeir eru að reyna. Þekkjandi þennan bransa og vera með kannski bara eina og hálfa æfingu til þess að æfa einhverjar krúsídúllur, verður erfitt fyrir þá. Þannig mögulega fara þeir bara í það sem þeir eru vanir að gera. Er þetta léttleikandi lið núna? Er meiri léttleiki í hópnum? Það verður bara að koma í ljós," sagði Arnar.
Pressa er það sem fylgir þessu starfi
Arnar talaði sjálfur um fyrir þetta verkefni að hann myndi reka sjálfan sig ef úrslitin yrðu ekki nógu góð. Hann segist virða allar skoðanir en eins og er þá ræður hann.
„Já það er alltaf gaman að vinna. Pressa er bara það sem fylgir þessu starfi, við erum með margar raddir sem hafa skoðanir. Við virðum allar skoðanir en þú getur ekki látið utan aðkomandi skoðanir hafa áhrif á þig. Þú verður að halda fókus og aldrei kvika frá þínu markmiði og í raun og veru er eini glæpurinn minn er að mig langar að Ísland verði alvöru þjóð í fótbolta. Að við náum að gefa hvaða þjóð sem er góðan leik, hvort sem það er númer eitt á heimslistanum eða númer 127. Sumir hafa skoðanir á hvernig við viljum fara að því markmiði, sumir vilja að við spilum lágvörn alltaf, sumir vilja þetta og sumir vilja hitt. Sumir vilja hafa Sigga en ekki Jóa í landsliðinu. Þetta er allt frábærar skoðanir, en á endanum er það ég sem ræð núna sem betur fer. Svo bara stendur það og fellur með þessu. Auðvitað á þessum leiðangri erum við töluvert breytt lið frá fyrsta leik á móti Kósovó, það eru sömu áherslur í varnarleik og sóknarleik en ef að menn gefa sér tíma til að skoða okkur aðeins betur, í staðin fyrir að horfa bara á úrslitin. Þá höfum við breytt aðeins leikstíl liðsins, ég tel til þess betra. Við höfum töluvert fleiri vopn í vopnabúrinu til að takast á við mismunandi aðstæður. Það er þess vegna sem þessi leikur á móti Lúxemborg gladdi mig mikið, því við vorum tilbúnir að takast á við aðstæður, og tilbúnir í alls konar áskoranir í þeim leik," sagði Arnar.
Ísland er á toppi riðilsins en Arnar segir að það gildir að vera á toppnum í lokin.
„Það væri betra að vera með sex stig. Deildarkeppnir eru bara þannig að þetta snýst um að vera á toppnum þegar er talið upp úr kössunum í lokin. Við erum á toppnum núna, þannig að þetta hefur bjargast fyrir horn eftir fyrsta leikinn og það er bara kredit á leikmennina. Menn bara héldu haus og fóru að anda með nefinu, það var eðlilega mikill hávaði í kringum hópinn og leikmenn og þjálfarateymið. Þannig þeir bara halda haus og eru meðvitaðir um að þetta er langhlaup ekki spretthlaup, svo er þetta alltaf að sýna sig og sanna í næsta leik. Sem betur fer núna er stutt á milli leikja, þannig við höfum ekki mikinn tíma til að dvelja við að vorkenna okkur sjálfum of mikið. Núna er sá leikur á baki og gefur okkur ekki voða mikið nema kannski meðbyr og sjálfstraust. Ef að við missum eitthvað marks á frammistöðunni á morgun og töpum fleiri stigum, þá eru menn fljótir að gleyma Lúxemborgar leiknum."


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
