Fotbolti.net
30.09.26 - 19:49
Elvar Geir Magnússon

Ljóst hver stýrir Búlgaríu á Laugardalsvelli

Atanas Ribarski.

Atanas Ribarski.

Canon

Mynd: BFU

Eimskip
Búlgarska fótboltasambandið hefur tilkynnt að Atanas Ribarski, þjálfari U19 landsliðsins, muni stýra A-landsliði Búlgaríu í þeim tveimur leikjum sem það á eftir að spila í glugganum.

Aleksandar Dimitrov sagði upp á fréttamannafundi beint eftir markalaust jafntefli gegn Eistlandi í gær. Búlgaría mætir Íslandi á Laugardalsvelli á laugardag og mætir svo Lúxemborg.
Þjálfari Búlgaríu sagði upp fyrir ferðalagið til Íslands
TENGT EFNI

Þjálfari Búlgaríu sagði upp fyrir ferðalagið til Íslands

Ribarski hefur tekið við liðinu til bráðabirgða og stýrir því í komandi leikjum. Hann er 41 árs og athyglisvert er að aðeins vika er síðan hann öðlaðist UEFA Pro þjálfararéttindi.

Fréttasíðan gong.bg kynnir Ribarski til leiks og segir að hann hafi góða þjálfarareynslu miðað við aldur, hann hafi snemma lagt skóna á hilluna eftir að hafa orðið fyrir höfuðmeiðslum.

Hann hefur áður starfað sem leikgreinandi fyrir A-landsliðið og tók við U19 liðinu fyrir ári síðan.

Ribarski tengist ekki bara fótbolta, bróðir hans er þingmaður í Búlgaríu og þá lék hann fáklæddur í tónlistarmyndbandi við lag sem Preslava, ein þekktasta söngkona Búlgaríu, gaf frá sér árið 2012.

Heimild: gong.bg

Aleksandar Dimitrov sagði upp á fréttamannafundi.

Aleksandar Dimitrov sagði upp á fréttamannafundi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.