Leik lokið!
FH svo gott sem búnir að bjarga sér!
90. mín
Hann kemur boltanum á Lúkas Loga sem finnur Veseli og hann klárar síðan snyrtilega framhjá Jökli í markinu.
Snyrtileg afgreiðsla!
Shkelzen Veseli (stoðsending: Lúkas Logi Heimisson)
Jökull með skelfilega sendingu úr markinu sem ratar beint á Veseli.Hann kemur boltanum á Lúkas Loga sem finnur Veseli og hann klárar síðan snyrtilega framhjá Jökli í markinu.
89. mín
Gult spjald
Lúkas Logi Heimisson
Allt of seinn í tæklinguna á Aron Daða, verðskuldað spjald.86. mín
InnAron Daði Svavarsson
ÚtKjartan Kári Halldórsson
84. mín
Misskilningur í vörn FH, boltinn fer í Jökul og í netið.
Hvernig endar þessi í netinu?
Jakob Franz Pálsson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)
Tryggvi Hrafn með hornspyrnuna á nærsvæðið og Jakob Franz nær að flikka boltanum áfram.Misskilningur í vörn FH, boltinn fer í Jökul og í netið.
82. mín
Lúkas Logi gerir virkilega vel, fær boltann rétt fyrir utan vítateig og tekur fast og hnitmiðað skot sem fer rétt framhjá fjærstönginni.
81. mín
FH fær horn.
Hornspyrnan ratar á Sverri en skallinn fer framhjá.
Hornspyrnan ratar á Sverri en skallinn fer framhjá.
79. mín
InnBenjamín Bæring Þórsson
ÚtGils Gíslason
Sannkölluð heiðursskipting
79. mín
InnArngrímur Bjartur Guðmundsson
ÚtBirkir Valur Jónsson
Birkir getur ekki haldið áfram.
77. mín
Birkir Valur fær boltann í andlitið og þarfnast aðhlynningar.
75. mín
Jónatan Ingi gerir vel, kemst inn á völlinn og lætur vaða en skotið í varnarmann og afturfyrir.
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
Boltinn kemur inn á teiginn en það er skallað frá.
74. mín
Valur fær horn.
Boltinn kemur inn á teiginn en Jökull kýlir frá.
Boltinn kemur inn á teiginn en Jökull kýlir frá.
71. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtIngimar Torbjörnsson Stöle
71. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtKristján Flóki Finnbogason
71. mín
InnSverrir Páll Hjaltested
ÚtAdolf Daði Birgisson
71. mín
Kjartan Kári vinnur hornspyrnu.
Boltinn kemur inn á teiginn og fyrirgjöfin er mjög góð. Sverrir er einn og óvaldaður við markmannsteiginn en hann nær ekki að stýra skallanum á markið.
Boltinn kemur inn á teiginn og fyrirgjöfin er mjög góð. Sverrir er einn og óvaldaður við markmannsteiginn en hann nær ekki að stýra skallanum á markið.
69. mín
Gult spjald
Kristján Flóki Finnbogason
Peysutog.68. mín
FRÁBÆR VARSLA!
Gils með stórkostleg fyrirgjöf frá hægri á fjær. Fyrirgjöfin ratar á Adolf Daða sem nær skallanum á markið af stuttu færi en Frederik Schram ver meistaralega.
66. mín
Gils skiptir boltanum yfir á Adolf Daða. Hann kemur boltanum á Baldur Kára sem tekur skotið en það fer í varnarmann og í innkast.
64. mín
InnShkelzen Veseli
ÚtKristófer Dagur Arnarsson
64. mín
InnMyles A Veldman
ÚtHörður Ingi Gunnarsson
62. mín
Enn og aftur er Gils á ferðinni. Hann fer á vinstri fótinn og lætur vaða, boltinn á viðkomu í varnarmann sem truflar aðeins Frederik Schram en hann nær að verja.
58. mín
Hann gerir í rauninni nákvæmlega það sama og áðan, þykist ætla á hægri fer á vinstri og leggur boltann snyrtilega í netið.
Þessi hraði og þessar gullfallegu stefnubreytingar eru óstöðvandi.
ÞRENNAN ER FULLKOMNUÐ!
Gils Gíslason
Hörður Ingi reynir að skalla boltann til baka á Hólmar en Gils stelur boltanum og keyrir af stað á Hólmar Örn.Hann gerir í rauninni nákvæmlega það sama og áðan, þykist ætla á hægri fer á vinstri og leggur boltann snyrtilega í netið.
Þessi hraði og þessar gullfallegu stefnubreytingar eru óstöðvandi.
56. mín
Gils er einn á móti Hólmari. Hann fer á vinstri fótinn og klárar vel framhjá Frederik Schram.
FRÁBÆRT MARK!
Gils Gíslason (stoðsending: Jóhannes Kristinn Bjarnason)
Valsarar með misheppnaða sendingu og FH vinna boltann. Jóhannes Kristinn lyftir boltanum í gegn á Gils.Gils er einn á móti Hólmari. Hann fer á vinstri fótinn og klárar vel framhjá Frederik Schram.
54. mín
Tryggvi Hrafn vinnur horn.
Boltinn kemur inn á teiginn frá Tryggva og Markus Nakkim nær skalla sem fer framhjá.
Boltinn kemur inn á teiginn frá Tryggva og Markus Nakkim nær skalla sem fer framhjá.
50. mín
Hann finnur síðan Dag Orra inni á teignum. Dagur gerir virkilega vel, opnar skotvinkilinn og setur boltann í þaknetið.
ÞEIR KLÓRA Í BAKKANN!
Dagur Orri Garðarsson (stoðsending: Lúkas Logi Heimisson)
Lúkas Logi fær boltann rétt fyrir framan miðjuna. Hann keyrir af stað, Oliver æðir út úr vörninni en Lúkas skilur hann eftir í rykinu.Hann finnur síðan Dag Orra inni á teignum. Dagur gerir virkilega vel, opnar skotvinkilinn og setur boltann í þaknetið.
48. mín
Ingimar Stöle vinnur hornspyrnu fyrir Val.
Boltinn kemur út í teiginn og Hörður Ingi kemur með fyrirgjöf sem er skölluð afturfyrir.
Seinni hornspyrnan kemur inn á teiginn en Oliver skallar frá.
Boltinn kemur út í teiginn og Hörður Ingi kemur með fyrirgjöf sem er skölluð afturfyrir.
Seinni hornspyrnan kemur inn á teiginn en Oliver skallar frá.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
Kjartan Kári sparkar þessu í gang á ný.
45. mín
Hálfleikur
Eins og stendur eru Eyjamenn að falla
KA eru 2-0 yfir í Garðabænum og Þórsarar eru 1-0 yfir gegn ÍBV. Eins og staðan er núna munu Eyjamenn leika í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
45. mín
Hálfleikur
FH-ingar hafa stjórnað þessum leik frá fyrstu mínútu. Þeir eru einfaldlega betri á öllum sviðum leiksins.
Valsarar eru ekki mættir til leiks og mega teljast stálheppnir að vera ekki meira undir í hálfleik.
Valsarar eru ekki mættir til leiks og mega teljast stálheppnir að vera ekki meira undir í hálfleik.
45. mín

Myndir frá Hafliða

45. mín
Ein mínúta í uppbót.
43. mín
Enn og aftur kemst Gils upp að endamörkum og kemur með fyrirgjöf en Frederik Schram setur boltann í horn.
Hornspyrnan kemur inn á teiginn en Hólmar skallar frá.
Hornspyrnan kemur inn á teiginn en Hólmar skallar frá.
40. mín
Valur fær horn.
Boltinn kemur inn á teiginn en Oliver skallar frá.
Boltinn kemur inn á teiginn en Oliver skallar frá.
39. mín
Jóhannes Kristinn kemst inn á vítateig Vals eftir lúmska sendingu frá Tómasi Orra. Jóhannes nær skoti en Frederik Schram sér við honum. Í kjölfarið berst boltinn til Adolfs Daða en sendingin hans ratar ekki á samherja.
37. mín
Gils kemur boltanum á Adolf Daða sem leggur boltann út á Kjartan Kára. Hann reynir að skrúfa boltann í fjærhornið og var ekki svo langt frá því.
34. mín
Löng sókn Vals endar með fyrirgjöf frá Lúkasi Loga. Sendingin ratar á kollinn á Tryggva en hann nær ekki að stýra boltanum á markið.
29. mín
Hann kemst inn á vítateiginn, setur Hólmar Örn á rassinn og setur boltann á milli fóta Frederik Schram.
FH-ingar eru gjörsamlega að jarða Valsara.
GILS ER AÐ GERA ÚT UM ÞENNAN LEIK!
Gils Gíslason (stoðsending: Jóhannes Kristinn Bjarnason)
Jóhannes finnur Gils á miðjunni og hann keyrir af stað. Það er enginn sem er nálægt Gils.Hann kemst inn á vítateiginn, setur Hólmar Örn á rassinn og setur boltann á milli fóta Frederik Schram.
FH-ingar eru gjörsamlega að jarða Valsara.
27. mín
Gils kemst upp að endamörkum og vinnur hornspyrnu.
Boltinn kemur inn á teiginn frá Kjartani Kára en Frederik Schram nær að kýla frá og aukaspyrna dæmd.
Boltinn kemur inn á teiginn frá Kjartani Kára en Frederik Schram nær að kýla frá og aukaspyrna dæmd.
25. mín
FH-ingar með öll tök á þessum leik hingað til og gætu auðveldlega verið búnir að loka þessum leik ef ekki hefði verið fyrir Frederik Scram, þvílík varsla.
21. mín
FREDERIK SCHRAM!
Kjartan Kári þræðir Gils í gegn með gullfallegri stungu. Gils stingur alla varnarmenn Vals af og er kominn einn á móti Frederik Scram. Gils tekur skotið en Frederik ver meistaralega í marki Vals og afturfyrir fer knötturinn.
Ekkert verður úr hornspyrnunni.
Ekkert verður úr hornspyrnunni.
20. mín
Adolf Daði fær boltann í ágætis stöðu en flaggið fer á loft.
16. mín
FH TVÖFALDA!
Tómas Orri Róbertsson (stoðsending: Birkir Valur Jónsson)
Hornspyrnan frá Kjartani Kára kemur á nærsvæðið og Birkir Valur fleytir boltanum áfram á Tómas Orra. Hann er einn á auðum sjó og stangar boltann í netið.13. mín
FH verja á línu!
Mikið klafs inni á teignum, boltinn hrekkur til Kristófers Dags en skotið hans er varið á línu og FH bægja hættunni frá.
13. mín
Það kemur fyrirgjöf frá vinstri og Hörður Ingi skallar boltann í eigin stöng og afturfyrir markið.
Hornspyrnan kemur inn á teiginn og Oliver nær skalla sem fer yfir markið.
Hornspyrnan kemur inn á teiginn og Oliver nær skalla sem fer yfir markið.
12. mín
Tryggvi kemur með boltann inn á teiginn en aftur skallar Oliver frá.
11. mín
Jónatan finnur Tryggva inni á teignum og Tryggvi nær skoti sem fer í varnarmann og í horn.
Boltinn kemur inn á teiginn en Oliver hreinsar í annað horn.
Boltinn kemur inn á teiginn en Oliver hreinsar í annað horn.
10. mín
Tómas Orri sendir boltann til hliðar á Jóhannes Kristin. Hann lætur vaða langt fyrir utan teig en skotið víðs fjarri markinu.
7. mín
Valur fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
Tryggvi kemur með boltann inn á teiginn en Oliver skallar frá. Í kjölfarið fær Valur annað horn. Þeir taka það stutt og síðan kemur fyrirgjöf sem fer afturfyrir endamörk.
Tryggvi kemur með boltann inn á teiginn en Oliver skallar frá. Í kjölfarið fær Valur annað horn. Þeir taka það stutt og síðan kemur fyrirgjöf sem fer afturfyrir endamörk.
2. mín
Það lítur allt út fyrir það að Hörður Ingi sé að ná boltanum en Gils kemst fram fyrir hann. Gils leggur síðan boltann til hliðar á Adolf Daða og eftirleikurinn er auðveldur.
ÞEIR VORU EKKI LENGI AÐ ÞESSU!
Adolf Daði Birgisson (stoðsending: Gils Gíslason)
Kristján Flóki fær boltann rétt fyrir framan miðjuna. Hólmar er í honum en hann nær sendingunni í gegn á Gils.Það lítur allt út fyrir það að Hörður Ingi sé að ná boltanum en Gils kemst fram fyrir hann. Gils leggur síðan boltann til hliðar á Adolf Daða og eftirleikurinn er auðveldur.
1. mín
Leikur hafinn
Við erum farin af stað!
Tryggvi Hrafn sparkar þessu í gang.
Fyrir leik
Kristalkúlan hefur talað
Valsarar eru safe og geta mætt mjög léttir til leiks, FH-ingar þurfa 2-3 stig í viðbót og mæta gíraðir. Sókn Valsmanna er það góð að þeir skora alltaf 2+ og FH munu einnig setja sín 2. Yfir 4 mörk er á stuðlinum 2.03.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) October 10, 2026
Fyrir leik
Korter í leik
Það eru 15 mínútur í að þessi leikur hefjist. Það eru fínustu aðstæður á N1-vellinum og liðin eru að hita upp á fullu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn!
Chris Brazell, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar á liði sínu eftir 1-1 jafntefli gegn ÍBV. Tryggvi Hrafn Haraldsson og Hólmar Örn Eyjólfsson koma inn. Myles Veldman og Shkelzen Veseli fá sér sæti á bekknum. Patrick Pedersen er utan hóps í dag.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, heldur sama liði eftir 5-2 sigur gegn Stjörnunni.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, heldur sama liði eftir 5-2 sigur gegn Stjörnunni.
Fyrir leik
Anton spáir útisgri
Valur 1 - 2 FH
FH er komið á bragðið og tekst með þessum sigri að slíta sig frá fallinu. Valur er að bíða eftir að geta byrjað nýja vegferð á Hlíðarenda og mun leikurinn sýna það hvort liðið hefur að meiru að keppa. Kjartan Kári og Gils sjá um mörk FH en Patti P skorar mark Vals. FH-ingum gífurlega létt og geta sest á teikniborðið fyrir næsta tímabil.

Valur búinn að tryggja sætið - FH í góðri stöðu
Valsarar heimsóttu ÍBV í síðasta leik sínum fyrir landsleikjahléið þann 20. september. Matias Edeland kom Eyjamönnum yfir eftir 80 mínútna leik en Kristófer Dagur Arnarson jafnaði metin fyrri Val á annarri mínútu uppbótartíma. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og stigið tryggði Valsmönnum sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili.

FH-ingar tóku á móti Stjörnunni í Kaplakrika í síðasta leik sínum fyrir landsleikjahléið þann 20. september. Hafnfirðingar fóru illa með gestina og unnu sannfærandi 5-2 sigur. Kjartan Kári Halldórsson skoraði tvö mörk fyrir FH og lagði auk þess upp eitt mark. Sigurinn var sá annar í röð hjá FH og kom liðinu í góða stöðu í baráttunni um að halda sæti sínu í Bestu deildinni.

Það kraumar í Kaplakrika - Logi Hrafn á heimleið?
Hér fyrir neðan er allar þær fréttir um FH sem birtust í risastóra íslenska slúðurpakka fótbolta.net í vikunni.
FH
FH vill halda þeim Erlingi Agnarssyni og Jóhannesi Kristni Bjarnasyni sem eru á láni hjá félaginu frá Víkingi.
Félagið vonast þá til að ná góðum sölum í vetur en félagið á þá Kjartan Kára Halldórsson, Baldur Kára Helgason og Tómas Orra sem eru góðar söluvörur og þeir Oliver Stefánsson, Ísak Óli Ólafsson og Jökull Andrésson hafa sömuleiðis átt gott tímabil.
Sænska félagið Hammarby vill fá Róbert Huga Sævarsson sem er miðjumaður fæddur 2010 og hefur fengið mínútur með FH í sumar.
Þeir Birkir Valur Jónsson, Grétar Snær Gunnarsson, Kristján Flóki Finnbogason, Arnór Borg Guðjohnsen, Allan Purisevic og Jóhann Ægir Arnarsson eru með lausan samning við FH.
Logi Hrafn Róbertsson er orðaður við heimkomu frá Svíþjóð og gæti hann snúið aftur í Hafnarfjörðinn.
FH hefur gert tilboð í Karl Ágúst Karlsson, efnilegan kantmann HK. ÍA er sömuleiðis á eftir honum.
FH hefur áhuga á Johannes Vall sem er að yfirgefa ÍA. Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var þjálfari ÍA þegar Vall samdi við félagið.
Guðmundur Tyrfingsson er með lausan samning hjá Fylki og hefur FH áhuga á honum eins og áður. Jóhannes Karl þekkir vel til Guðmundar en hann stýrði honum hjá ÍA.

Molar af Hlíðarenda - Halldór með augastað á nokkrum Blikum þegar hann tekur við
Hér fyrir neðan eru allir molar um Val sem birtust í risastóra íslenska slúðurpakka fótbolta.net í vikunni.
Valur
Halldór Árnason vill endurnýja kynnin við Höskuld Gunnlaugsson, Viktor Örn Margeirsson, Kristófer Inga Kristinsson og Viktor Karl Einarsson. Þá er Kristinn Steindórsson sömuleiðis orðaður við félagið en hann er að yfirgefa Breiðablik.
Valur hefur mikinn áhuga á því að fá Sigurð Bjart Hallsson frá Spáni en ólíklegt þykir að hann haldi heim til Íslands í vetur.
Aron Snær Ingason var búinn að ná samkomulagi við Val áður en hann skrifaði undir nýjan samning hjá Þrótti.
Valur nýtti sér ákvæði í samningi Tuma Fannars Gunnarssonar við Fylki sem hægt var að nýta þar sem Fylkir komst ekki upp í Bestu deildina. Kaupverðið er því ekki talið hátt.
Dagur Orri Garðarsson er áfram á blaði hjá Zilina og Fredericia og líkur á að hann fari erlendis í næsta glugga.
Valur er á meðal liða sem hafa áhuga á Daða Berg Jónssyni, Viðari Ara Jónssyni og Bjarti Bjarma Barkarsyni.
Hólmar Örn Eyjólfsson er samningslaus eftir tímabil og gæti lagt skóna á hilluna.
Albin Skoglund og Myles Veldman eru með lausan samning við Val en líklegt þykir að Skoglund verði áfram. Veldman verður að öllum líkindum ekki áfram hjá Val en gæti fengið annan samning á Íslandi. Markus Nakkim er sömuleiðis að renna út af samningi og gæti yfirgefið félagið.
Jóhann Árni Gunnarsson og Örvar Eggertsson, leikmenn Stjörnunnar, eru báðir orðaðir við Val og reyndi Valur að kaupa Örvar undir lok gluggans.
Hlynur Freyr Karlsson er á láni hjá Breiðabliki frá Brommapojkarna. Saminngur hans við sænska félagið rennur út í vetur og búist er við því að bæði Valur og Breiðablik reyni að festa kaupa á honum.
Ómar Björn Stefánsson (ÍA) er á óskalista Vals og reyndi félagið að kaupa hann í sumar. Valsmenn hafa einnig áhuga á Freysteini Guðnasyni (Njarðvík) og Jakobi Ocares Kristjánssyni (Þróttur).
Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV) er á blaði hjá Val, en hann þekkir vel til á Hlíðarenda þar sem faðir hans er í stjórn.
Oliver Sigurjónsson verður aðstoðarþjálfari Vals og Haraldur Björnsson markmannsþjálfari. Þeir Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Michael John Kingdon og Matthías Vilhjálmsson voru orðaðir við aðstoðarþjálfarastöðuna.
Logi Hrafn Róbertsson er orðaður við heimkomu frá Svíþjóð og gæti hann snúið aftur í FH en Valur hefur sýnt mikinn áhuga á honum í gegnum tíðina.
Valur hefur mikinn áhuga á Eysteini Rúnarssyni, leikmanni Grindavíkur, og er félagið í baráttu við Fram um leikmanninn.
Bjarni Þór Viðarsson er orðaður við starf yfirmanns fótboltamála hjá Val eftir að Gareth Owen hætti störfum.

Frederik Schram framlengir til 2029
Frederik Schram, markvörður Vals, hefur framlengt samning sinn til 2029 en samningur hans átti að renna út eftir næsta tímabil.
Fyrir leik
Góðar fréttir fyrir Val
Í slúðurpakkanum sem birtist í gær segir að Valur hafi nýtt sér ákvæði í samningi Tuma sem varð virkt þar sem Fylkir komst ekki upp í Bestu deildina. Kaupverðið er því ekki talið hátt.
Fyrir leik
FH reyndi að fá Karl Ágúst
FH lagði fram tilboð í Karl Ágúst Karlsson en HK hafnaði tilboðinu. Við sögðum frá tilboðinu í risastóra slúðurpakkanum sem birtur var í gær og Fótbolti.net hefur fengið staðfest að tilboði FH var hafnað.
Fyrir leik
Twana er á flautunni
Twana Khalid Ahmed er aðaldómari. Honum til aðstoðar eru Ragnar Þór Bender og Ronnarong Wongmahadthai.
Elías Ingi Árnason er fjórði dómari og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson er eftirlitsmaður.

Elías Ingi Árnason er fjórði dómari og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson er eftirlitsmaður.

Fyrir leik
Besta deildin heilsar á ný!
Góðan daginn kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá N1-vellinum. Í dag eigast Valur og FH við í Bestu deild karla. Flautað verður til leiks á slaginu 14:00.

laugardagur 10. október
Besta karla - Efri hluti
19:15 Fram-KR (Lambhagavöllurinn)
Besta karla - Neðri hluti
14:00 Stjarnan-KA (Samsungvöllurinn)
14:00 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
14:00 Þór-ÍBV (VÍS völlurinn)
sunnudagur 11. október
Besta karla - Efri hluti
19:15 Víkingur R.-ÍA (Víkingsvöllur)
19:15 Breiðablik-Keflavík (Eikarvöllurinn)

Fínar lokamínútur hjá Völsörum en allt kom fyrir ekki.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.