Fyrir leik
Anton spáir
Fyrir leik
Dómarinn
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er dómari leiksins á VÍS Vellinum í dag. Honum til aðstoðar eru Gylfi Már Sigurðsson og Jovan Subic. Arnar Þór Stefánsson er fjórði dómari og eftirliti á vegum KSÍ sinni Bragi Bergmann.

Fyrir leik
Þór
Það var þungt fyrir lið Þórs að lúta í gras 3-0 fyrir grönnum sínum í KA í síðasta leik fyrir landsleikjahlé. Biðin hefur verið löng en henni er loks lokið og styttist í ögurstund.
Þór hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í þessum neðri hluta gegn Val og KA en hafði fyrir það unnið síðustu tvo leiki sína í venjulegu móti gegn FH og á útvelli gegn ÍBV.
Sigurður Höskuldsson þjálfari Þórs sagði eftir sigurinn gegn ÍBV í 21.umferð að sá leikur hefði verið sá fyrsti af sjö úrslitaleikjum. Hindranir urðu á vegi liðsins í töpum gegn Val og KA en það er spurning hvort að liðinu takist að ná fótfestu á nýju í dag í þessum harða fallbaráttuslag.

ÍBV
Það er að duga eða drepast fyrir gestina úr Vestmannaeyjum í dag sem geta fallið úr deildinni í dag tapi þeir og úrslit í leik Stjörnunar og KA verði þeim óhagstæð.
Botnsætið er hlutskipti þeirra í dag þar sem liðið situr með 19 sitg. Sæti ofar má finna gestgjafa dagsins Þór með 21 stig og grannar þeirra í KA eru svo þar fyrir ofan með 23 stig.
Þegar maður lítur yfir úrslit ÍBV að undanförnu er þó erfitt að finna ljósan punkt til að vekja bjartsýni um að liðið finni sigra til að bjarga sér. Alls eru liðnir 98 dagar síðan lið ÍBV fagnaði sigri síðast í deildinni en það var þann 4.júlí síðastliðinn þegar liðið vann 1-0 heimasigur á liði Vals.
Verkefnið því ærið fyrir Aleksandar Linta og hans menn ´sem eflaust mæta dýrvitlausir til leiks.

Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá Vís Vellinum á Akureyri. Framundan er sannkallaður fallslagur Þórs og ÍBV en flautað verður til leiks klukkan 14.

Fallbaráttan harðnar!

Um leik Þórs og ÍBV segir hann.
Þór 0 - 1 ÍBV
Lokaðasti leikur umferðarinnar, bæði lið hrædd um að missa af lestinni en bæði lið þurfa að vinna til þess að halda í hana. Það mun bera mest á spjöldum, tuði og miklum hita í leiknum þar sem mikið er undir fyrir bæði lið. En það mun bera til tíðina á 87mínutu þegar Eyjapeyjar fá aukaspyrnu á góðum stað við D-bogan og mun fyrirliðinn taka knöttinn og snúa honum beint uppí samúel og taka RISASTÓR 3 stig til Eyja og halda eyjunni á lífi.