Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25128 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR15.01.2025, 01:14

Nökkvi kominn til Sparta Rotterdam (Staðfest)

Hollenska félagið Sparta Rotterdam er búið að tilkynna félagaskipti Nökkva Þeys Þórissonar til félagsins á lánssamningi sem gildir út tímabilið og inniheldur kaupmöguleika.

FRÉTTIR14.01.2025, 17:00

Karius samdi við Schalke út tímabilið (Staðfest)

Loris Karius, fyrrum markvörður Liverpool, hefur samið við þýska B-deildarfélagið Schalke út tímabilið. Karius, sem er 31 árs, hefur verið án félags síðan samningur hans við Newcastle rann út síðasta sumar.

FRÉTTIR14.01.2025, 15:30

Bloomfield nýr stjóri Luton (Staðfest)

Luton Town hefur ráðið Matt Bloomfield sem nýjan stjóra. Bloomfield var stjóri Wycombe Wanderers og hefur nú gert þriggja og hálfs árs samning við Luton. Bloomfield er 40 ára og kveður Wycombe sem er í baráttu um að komast upp í Champiopnship-deildina.

FRÉTTIR14.01.2025, 13:28

Atli Þór kynntur hjá Víkingi (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Atli Þór Jónasson hefur verið keyptur til Víkings frá HK. Þessi 22 ára leikmaður skoraði sjö mörk í 24 leikjum fyrir HK á síðasta tímabili en Kópavogsliðið féll þá úr Bestu deildinni. <i>„Atli er gríðarlega spennandi leikmaður með mjög sérstaka kosti og á mikið inni að okkar mati. Hann er enn ungur að árum og afsakið slettuna en Atli hefur alla burði í að verða „unplayable“ vegna styrks síns og hraða. Þrátt fyrir mikla hæð er hann mikill íþróttamaður og ég er gríðarlega spenntur að fá hann í hópinn. Við væntum mikils af honum hér í Víkinni á næstu árum,"</i> segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi. Talað hefur verið um að Víkingur greiði um 15 milljónir króna fyrir Atla en ekkert er staðfest í þeim efnum. Þessi stóri og stæðilegi sóknarmaður er uppalinn hjá Hamri í Hveragerði, en lék í Bestu deildinni tímabilin 2023 og 2024 með HK. <i>„Í fersku minni er fernan sem hann setti á móti okkur í Bose mótinu seint á síðasta ári,"</i> segir í tilkynningu Víkings.

FRÉTTIR14.01.2025, 10:27

Marvin í markið hjá Gróttu (Staðfest)

Markvörðurinn Marvin Darri Steinarsson hefur gengið í raðir Gróttu og skrifað undir þriggja ára samning. Grótta féll úr Lengjudeildinni í fyrra og leikur í 2. deild á komandi tímabili. Marvin lék vel með Vestra þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni árið 2023 og var svo varamarkvörður liðsins í fyrra.

FRÉTTIR13.01.2025, 16:30

Max Aarons til Valencia (Staðfest)

Valenica hefur fengið hægri bakvörðinn Max Aarons frá Bournemouth. Þessi 25 ára leikmaður kemur á lánssamningi sem gildir út tímabilið en Valencia á möguleika á því að kaupa hann alfarið eftir tímabilið. Aarons, sem er fyrrum leikmaður Bournemouth, hafði færst aftar í goggunarröðinni á Vitality leikvangnum. Valencia er í neðsta sæti La Liga.

FRÉTTIR13.01.2025, 14:27

Birgir Ómar á láni í ÍBV (Staðfest)

Birgir Ómar Hlynsson hefur gengið til liðs við ÍBV á lánssamningi frá Þór á Akureyri. Samningurinn gildir út komandi keppnistímabil.

FRÉTTIR13.01.2025, 11:29

Eyþór Wöhler í Fylki (Staðfest) - Kynntur með hressu myndbandi

Eyþór Aron Wöhler hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fylki en Árbæjarliðið féll úr Bestu deildinni í fyrra. Fótbolti.net sagði frá því í síðasta mánuði að Eyþór væri á leið til félagsins. <i>„Það er okkur Fylkisfólki mikið fagnaðarefni að hafa náð samkomulagi við Eyþór sem við sjáum sem mikilvæga viðbót við öflugan leikmannahóp okkar sem mun gera atlögu að því að komast beint í deild þeirra bestu aftur,"</i> segir í tilkynningu Fylkis. Eyþór gekk í raðir KR skömmu eftir að tímabilið 2024 hófst en náði ekki að láta ljós sitt skína. Hann spilaði 22 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim þrjú mörk og var samningi hans rift eftir tímabilið. Hann er 22 ára sóknarmaður sem uppalinn er hjá Aftureldingu og hefur einnig leikið með Breiðabliki og ÍA. Eyþór var mjög áberandi á liðnu ári en hann og Kristall Máni Ingason mynda dúettinn Húbbabúbba sem hefur slegið rækilega í gegn með smellum sínum. Eyþór var kynntur hjá Fylki með mjög skemmtilegu myndbandi sem hægt er að sjá hér að neðan. <i>„Ég er afar sáttur með að ganga í raðir Fylkismanna á þessum tímapunkti. Hér í Árbænum er allt til staðar og ég mun gera allt til þess að standa mig vel í appelsínugulu treyjunni á næstu árum,”</I> er haft eftir Eyþóri í tilkynningu Fylkis.

FRÉTTIR13.01.2025, 07:00

Dalvíkingar sækja þrjá til Akureyrar (Staðfest)

<p>Dalvík/Reynir hefur sótt þrjá unga leikmenn frá Akureyri. Hjörtur Freyr Ævarsson, Sindri Sigurðarson og Bjarmi Már Eiríksson skrifuðu allir undir tveggja ára samning við félgaið.</p>

FRÉTTIR12.01.2025, 19:18

Freyr nýr þjálfari Brann (Staðfest) - Fjölmiðlafár á flugvellinum

Freyr Alexandersson er orðinn nýr þjálfari Brann í Bergen en hann lenti á flugvelli borgarinnar nú rétt áðan og tók stór hópur fjölmiðlamanna á móti honum. Freyr gaf sér tíma til að svara spurningum fjölmiðlamanna en á morgun verður félagið með fréttamannafund. Hann var eltur út í bíl þegar fjölmiðlamenn sóttust eftir ummælum frá honum. <a href="https://www.ba.no/" target="_blank">Bergens Avisen</a> var með beina útsendingu frá flugvellinum. Freyr var í viðræðum við Brann í síðustu viku og gaf félaginu svo svar um helgina þegar hann samþykkti samningstilboð félagsins. Brann hefur síðustu tvö ár endað í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar.

FRÉTTIR12.01.2025, 12:30

Sindri Þór í Grindavík (Staðfest)

Grindvíkingar halda áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Lengjudeildinni en Sindri Þór Guðmundsson er genginn í raðir félagsins frá nágrönnum þeirra í Reyni Sandgerði.

FRÉTTIR11.01.2025, 20:28

Billing kominn til Napoli (Staðfest)

Napoli er búið að staðfesta félagaskipti danska miðjumannsins Philip Billing til félagsins frá enska úrvalsdeildarfélaginu Bournemouth.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.