Arnór Ingi í ÍBV (Staðfest) - Fetar í fótspor föður síns
Bakvörðurinn Arnór Ingi Kristinsson er genginn í raðir ÍBV frá Leikni en hann fetar þar með í fótspor föður síns. Þetta kemur fram í tilkynningu Eyjamanna í dag.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Bakvörðurinn Arnór Ingi Kristinsson er genginn í raðir ÍBV frá Leikni en hann fetar þar með í fótspor föður síns. Þetta kemur fram í tilkynningu Eyjamanna í dag.
Hermann Hreiðarsson hefur verið kynntur sem nýr þjálfari HK í Lengjudeild karla. Hann skrifaði undir þriggja ára samning. „Velkominn í hlýjuna“ segja HK-ingar í tilkynningu sinni en Hermann lét af störfum sem þjálfrari ÍBV eftir tímabilið þar sem hann og fjölskylda hans fluttu á höfuðborgarsvæðið. „Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Hemma til starfa og bindum við miklar vonir við komu hans hingað í HK. Hemmi hefur mikla reynslu úr heimi fótboltans og verður spennandi að sjá hann stýra meistaraflokki karla næstu þrjú árin ásamt því að vinna með þeim fjölmörgu ungu og efnilegu leikmönnum sem eru og hafa verið að banka á dyr meistaraflokksins sl. misserin," segir Hjörtur Þór Steindórsson, formaður fótboltadeildar HK, í tilkynningunni.

Katrín Erla Clausen er gengin til liðs við Fram frá Stjörnunni en hún gerir tveggja ára samning við félagið.

Valgeir Valgeirsson er að yfirgefa Örebro eftir tvö og hálft tímabil hjá sænska félaginu. Valgeir fór til Svíþjóðar sumarið 2022. Samningur hans við félagið er að renna út og mun hann ekki framlengja. Valgeir er 22 ára fjölhæfur leikmaður sem er uppalinn hjá HK. Hann hefur verið U21 landsliðsmaður undanfarin ár og lék alls ellefu leiki í þeim aldursflokki og alls 35 fyrir yngri landsliðin. Hann hefur mest spilað sem bakvörður síðustu ár. Hann var í íslenska slúðurpakkanum orðaður við nokkur félög í Bestu deildinni. Hann var orðaður við Víking, Breiðablik og Val.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir gekk nýlega í raðir FC Kaupmannahafnar í Danmörku. Hún samdi við AGF snemma á árinu en var óheppin með meiðsli þar og samningur hennar rann út í sumar. Hún flutti til Danmerkur eftir tímabilið 2023 með FH þar sem kærasti hennar er í meistaranámi og þau ákváðu að flytja til Köben í haust. Vinstri bakvörðurinn byrjaði að æfa með FCK í síðasta mánuði og lék sinn fyrsta leik með liðinu um liðna helgi. FCK vann sigur í toppbaráttuslag gegn Sundby um liðna helgi, sigurmarkið kom í uppbótartíma og lék Sunneva allan leikinn.
AGF hefur tilkynnt að Ragnar Sigurðsson sé að taka við sem þjálfari U17 ára liðs danska félagsins. Ragnar hefur störf á nýju ári. Fótbolti.net fjallaði um viðræður milli aðilanna í gær og er nú búið að tilkynna að ráðningin sé frágengin. Ragnar tekur við af Niklas Backman sem verður 'transition' þjálfari hjá félaginu, aðstoðar efnilega leikmenn í að taka skrefið upp í aðalliðið. Backman er fyrrum sænskur landsliðsmaður og var á sínum tíma fyrirliði AGF.
Pétur Rögnvaldsson hefur tekið við þjálfun kvennaliðs HK en þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu félagsins.

Gunnar Magnús Jónsson hefur tekið til starfa hjá Haukum og mun taka að sér ýmis störf.

Hrannar Bogi Jónsson er aftur mættur í Smárann og mun hann áfram stýra Augnabliki næstu árin. Ásamt því mun hann þjálfa 2. flokk Breiðabliks. Það stóð til að Hrannar Bogi, sem er mjög efnilegur þjálfari, myndi taka til starfa hjá Þrótti Reykjavík í yngri flokkum en það breyttist svo.

Omar Sowe er genginn til liðs við ÍBV en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

Edu hefur sagt upp störfum sem íþróttastjóri Arsenal. Hann mun hefja störf hjá Nottingham Forest bráðlega.

KR tilkynnti í dag að Emilía Ingvadóttir væri búin að skrifa undir samning við félagið. Hún er varnarmaður, fædd 2002 og er uppalin í KR. Hún kemur frá Fram þar sem hún spilaði í 2. deild 2022 og Lengjudeildinni 2023. Hún var á láni hjá KR frá Fram á síðasta tímabili og hjálpaði KR upp úr 2. deild.
Grótta tilkynnti í dag að tveir leikmenn væru gengnir í raðir félagsins frá grönnunum í KR. Það eru þeir Viktor Orri Guðmundsson og Aron Bjarni Arnórsson. Viktor Orri, sem er fæddur árið 2007, þekkir vel til hjá Gróttu. Hann hélt í KR frá Gróttu eftir sumarið 2020. „Viktor Orri Guðmundsson er snúinn aftur heim í Gróttu eftir nokkurra ára dvöl hjá KR. Viktor er 17 ára gamall og á að baki átta leiki fyrir yngri landslið Íslands og þrjá leiki fyrir meistaraflokk KR í æfingamótum," segir í tilkynningu Gróttu.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Erik ten Hag var rekinn í síðustu viku og tilkynnt um komu Rúben Amorim sem tekur við Manchester United þann 11. nóvember. Þessar fréttir lita topp 20 listann sterklega.

Sveinn Margeir Hauksson hefur rift samningi sínum við KA. Hjörvar Hafliðason vakti athygli á þessu í Dr. Football í dag og Sveinn staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net. Þetta tengist ekki á neinn hátt ósætti við KA segir Sveinn Margeir.

Keflavík hefur nælt í miðjumanninn Muhamed Alghoul. Króatinn þekkir vel til í Keflavík.

Vestri var að senda frá sér tilkynningu á samfélagsmiðlum þar sem sagt er frá tíðindum í leikmannamálum. Stærstu tíðindin eru þau að Andri Rúnar Bjarnason og félagið hafi náð samkomulagi um að enda samstarfið. „Vegna fjölskylduaðstæðna mun Andri ekki hafa tök á því að vera búsettur fyrir vestan fjarri fjölskyldu sinni. Við þökkum Andra kærlega fyrir samstarfið og óskum honum velfarðnaðar," segir í tilkynningunni. Framherjinn var talsvert frá vegna veikinda og meiðsla en á lokakaflanum reyndist hann gulls ígildi og hjálpaði liðinu að ná sínum markmiðum.
Markvörðurinn Frederik Scham mun ekki spila áfram á Íslandi. Hann ýjaði að því í færslu á Instagram og staðfesti tíðindin við Fótbolta.net. Hann hefur leikið með Val í tvö og hálft ár en samningur hans rann út um mánaðamótin. Hann var orðaður við bæði KR og FH en heldur út fyrir landsteinana. Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Danmerkur þar sem hann hóf feril sinn. Frederik segir líklegt að hann spili næst í Danmörku en hann viti það þó ekki alveg ennþá.
Manchester United hefur staðfest ráðningu Rúben Amorim. Hann tekur við stjórnartaumunum hjá liðinu af Erik ten Hag. Samningur hans gildir til júní 2027 með ákvæði um að hægt sé að framlengja hann um eitt ár.
Fram hefur fengið varnarmanninn öfluga Sigurjón Rúnarsson frá Grindavík en þetta kemur fram í tilkynningu Framara í kvöld.