Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mið 01. apríl 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
112 ára afmælisleikur bikarmeistarana
Bikarmeistarar 2019.
Bikarmeistarar 2019.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reykjavíkur Víkingar ætla setja upp sýndarleik þann 21. apríl þar sem Hetjur fortíðarinnar og bikarmeistarar Víkings mætast.

Tilkynning Víkings

Á 112 ára afmælisdegi Víkings munu Bikarmeistararnir taka á móti Hetjum Víkings.

Á þessum fordæmalausu tímum eru góðu ráðin dýr sem aldrei fyrr. Þá snúum við bökum saman með tveggja metra millibili og finnum leiðir til að njóta fótbolta og um leið að styðja við félagið okkar.

Með það að markmiði höfum við sett upp sýndarleik, sem háður verður í höfðinu á okkur öllum en ekki á vellinum, á 112 ára afmælisdegi Víkings þann 21. apríl 2020. Þar munu etja kappi ríkjandi bikarmeistarar Víkings og Hetjur fortíðarinnar.

Úrvalslið leikmanna frá árunum 1980 til 2018 mun mæta ellefu manna byrjunarliði bikarmeistaranna sem Arnar Gunnlaugsson stillir upp. Úrvalsliðið var valið af stuðningsmönnum Víkings og verður kynnt á næstu dögum.

Kaupið miða og takið þátt í leiknum með okkur. Þannig er hægt að styðja við félagið okkar og auka líkurnar á að liðið muni berjast um þann stóra á komandi tímabili!

Miðar kosta á bilinu 1.000 til 10.000 kr., eftir því hversu náið þú vilt vera með okkur í leiknum.

Miðasala fer fram á tix.is - smelltu hér til að kaupa miða.

Athugasemdir
banner
banner