Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 13:13
Elvar Geir Magnússon
Sage í viðræðum við Palace
Pierre Sage, stjóri Lens.
Pierre Sage, stjóri Lens.
Mynd: EPA
Crystal Palace er í viðræðum við Pierre Sage, stjóra franska liðsins Lens. Palace er í stjóraleit til að finna mann í stað Oliver Glasner.

Andoni Iraola var efstur á óskalista Palace en hann er að hefja viðræður við Liverpool.

Steve Parish, stjórnarformaður Palace, leiðir leitina að næsta stjóra og hann ætlar að vanda til verka og skoða alla helstu kosti.

Sage er 47 ára og tók við Lens í júní í fyrra. Hann stýrði liðinu í annað sæti frönsku deildarinnar og þá vann liðið Nice í úrslitaleik franska bikarsins.

Glasner vann FA-bikarinn með Palace í fyrra og Sambandsdeildina á þessu tímabili. Hann tilkynnti í janúar að hann myndi yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.

Auk Sage er Palace með Frank Lampard stjóra Coventry, Kieran McKenna stjóra Ipswich, Dino Toppmöller fyrrum stjóra Eintracht Frankfurt, Thomas Frank fyrrum stjóra Tottenham og Sean Dyche á blaði.
Slapp
banner
banner