Fotbolti.net
01.09.26 - 14:51
Kári Snorrason
Ítalski boltinn

Pape Matar Sarr til Juventus (Staðfest)

Pape Matar Sarr til Juventus (Staðfest)
Canon

Mynd: Juventus

Pape Matar Sarr er genginn í raðir Juventus á eins árs láni frá Tottenham. Juventus greiðir 2 milljónir evra til að fá Sarr að láni.

Félagið borgar 28 milljónir til viðbótar til að fá hann varanlega næsta sumar ef það nær Meistaradeildarsæti og Sarr tekur þátt í helming leikja liðsins í deildinni.
Sarr er 23 ára miðjumaður sem hefur spilað 141 leiki fyrir Tottenham, þar af 37 á síðustu leiktíð. Auk þess á hann 42 landsleiki að baki fyrir Senegal.

Juventus er sömuleiðis að ganga frá lánssamningi Nick Woltemade en Jonathan David er á leið til Atlético Madrid.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.