Fotbolti.net
24.10.26 - 10:41
Brynjar Ingi Erluson

Arteta: Raya verður að spila á Spáni á einhverjum tímapunkti

Arteta: Raya verður að spila á Spáni á einhverjum tímapunkti
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, tekur undir með David Raya um að markvörðurinn eigi að spila á Spáni einn daginn, en hann hafði þó allt annað í huga en Raya.
Raya: Myndi elska að spila á Spáni
TENGT EFNI

Raya: Myndi elska að spila á Spáni

Raya sagði í tengslum við Meistaradeildina í vikunni að hann hefði mikinn áhuga á að spila í La Liga í framtíðinni.

Hann fór ungur að árum til Englands og fékk því aldrei tækifæri til að spila í La Liga, en það er eitthvað sem hann langar mikið að upplifa áður en ferlinum lýkur.

Raya er stuðningsmaður Real Madrid og hefur því lengi dreymt um að spila með félaginu.

Arteta var spurður út í ummæli Raya og tók undir með honum, en gat þó ekki stillt sig um að gera smá grín.

„Ég held að David (Raya) verði að spila á Spáni á einhverjum tímapunkti, á ströndinni með vinum sínum yfir sumarið. En næstu árin verður hann að spila hér með Arsenal,“ sagði Arteta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.