23.10.26 - 15:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viktor Bjarki hættir hjá Víkingi (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Bjarki Arnarsson, aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Víkings, mun eftir leik liðsins gegn Fram á morgun láta af störfum. Leikurinn er lokaleikur tímabilsins og kemur fram í tilkynningu Víkings að Viktor Bjarki sé að halda á nýjan vettvang.
Hann var í upphafi vikunnar orðaður við stöðu yfirmanns fótboltamála hjá Stjörnunni en hann vildi ekki ræða þær sögur við Fótbolta.net í gær.
Þær sögur hafa heyrst að Matthías Vilhjálmsson, sem hefur þjálfað í yngri flokkum Víkings síðasta árið, komi inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá Víkingi við brotthvarf Viktors Bjarka.

Úr tilkynningu Víkings
Viktor er uppalinn Víkingur og lék 126 leiki fyrir meistaraflokk félagsins. Árið 2006 var hann valinn besti leikmaður efstu deildar og íþróttamaður Víkings, og hann lék einnig sem atvinnumaður í Hollandi og Noregi.
Haustið 2023 sneri hann aftur í Víkina sem yfirþjálfari yngri flokka og í upphafi árs 2025 varð hann aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Síðan þá hefur liðið orðið Íslandsmeistari tvö ár í röð, 2025 og 2026, og átti Viktor stóran þátt í þeim árangri.
Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála:
„Það hefur verið mjög gott að vinna með Viktori. Hann er einstaklega vandaður maður og skilur eftir sig stórt skarð í þjálfarateyminu. Hans verður sárt saknað og ég efast ekki um að hann nær árangri í því sem hann tekur sér fyrir hendur næst. Ég þakka honum kærlega fyrir samstarfið og óska honum alls hins besta.“
Gangi þér vel Viktor og takk fyrir alla Hamingjuna.