Fotbolti.net
24.10.26 - 09:41
Brynjar Ingi Erluson

Kompany verður frá í nokkrar vikur

Vincent Kompany

Vincent Kompany

Canon

Mynd: EPA

Vincent Kompany, þjálfari Bayern München, verður frá störfum næstu vikurnar, en þetta staðfestir Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu.
Kompany hneig niður á æfingasvæði Bayern
TENGT EFNI

Kompany hneig niður á æfingasvæði Bayern

Kompany hneig niður á æfingasvæði Bæjara í gær og var fluttur í skyndi á sjúkrahús. Þar mun hann dvelja næstu daga, en ástand hans er sagt stöðugt.

Því hefur verið haldið fram að Kompany hafi sofið lítið að undanförnu og að mikið vinnuálag hafi tekið sinn toll. Hann er sagður hafa lagt svo mikla áherslu á starfið að hann hafi ekki gefið sér nægan tíma til að hvílast.

Kompany glímdi einnig við veirusýkingu í fæti á dögunum og var veikur í nokkra daga, en náði sér nægilega vel til að stýra Bayern gegn Arsenal í Meistaradeildinni.

Hann mætti síðan á æfingasvæðið í gær til að fylgjast með æfingu liðsins, en hneig þar niður.

Eberl hefur nú greint frá því að Kompany verði væntanlega útskrifaður af sjúkrahúsi á næstu dögum. Hann muni þó ekki snúa strax aftur á hliðarlínuna, enda þurfi hann tíma til að hvílast og safna kröftum áður en hann tekur aftur til starfa.

Aaron Danks, aðstoðarþjálfari Bayern, mun stýra liðinu á meðan Kompany er frá.

„Góðu fréttirnar eru þær að ástand hans er stöðugt. Þetta var auðvitað mjög erfitt augnablik fyrir okkur öll. Hann hneig niður á æfingasvæðinu í gær og er nú á sjúkrahúsi þar sem hann verður áfram næstu daga á meðan læknar reyna að komast að því hvað gerðist og rannsaka hann ítarlega.“

„Þetta minnir okkur enn og aftur á að fótboltinn er ekki það mikilvægasta í lífinu. Heilsan skiptir öllu máli og við óskum honum góðs bata,“
sagði Eberl meðal annars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.