Sadio Mane og Joel Matip snúa væntanlega aftur í byrjunarlið Liverpool sem mætir Ajax á Anfield í kvöld. Leikmennirnir byrjuðu ekki gegn Brighton en Mane kom af bekknum.
Mirror býst við því að Matip verði í miðverðinum með Fabinho.
Mirror býst við því að Matip verði í miðverðinum með Fabinho.
Neco Williams heldur áfram í hægri bakverðinum. Curtis Jones fann fyrir óþægindum á æfingu og spilaði ekki gegn Brighton en verður væntanlega á miðjunni í kvöld með Jordan Henderson og Giorginio Winaldum.
Mirror spáir því að Diogo Jota verði á bekknum og Liverpool verði með hina þrjá fræknu; Mane, Mohamed Salah og Roberto Firmino í fremstu víglínu.
Liverpool er með níu stig á toppi D-riðils, Ajax og Atalanta eru með sjö stig en Midtjylland er stigalaust.
Athugasemdir