Fotbolti.net
17.10.26 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aron Valur spáir í 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Aron Valur leikur í Skólanum á Sýn.

Aron Valur leikur í Skólanum á Sýn.

Canon

Mynd: Sýn

Spámaður
Það er áhugaverð umferð framundan í ensku úrvalsdeildinni. Hún byrjar núna í hádeginu þegar Chelsea heimsækir Everton.

Aron Valur Gunnlaugsson, handboltamaður og leikari, spáir í leikina að þessu sinni. Aron hefur undanfarið verið að gera það gott í sjónvarpsþáttunum Skólinn sem hægt eru í sýningu hjá Sýn.
Everton 2 - 3 Chelsea (11:30 í dag)
Þetta verður óvæntur markaleikur. Palmer setur tvö í grillið á Everton og Morgan Rogers klárar svo dæmið. Dewsbury-Hall og Barry verða á skotskónum hjá Everton. Barry þarf ekki nema sex færi til að setja eitt!

Brentford 0 - 3 Liverpool (14:00 í dag)
Ég held að Liverpool komi mörgum á óvart og mæti virkilega ákafir til leiks. Mér fannst þeir mikið betri gegn City í síðasta leik áður en Gravenberch fékk rauða spjaldið. Barcola verður enn og aftur á skotskónum og setur eitt, Van Dijk annað og Munoz það þriðja.

Fulham 2 - 1 Hull (14:00 í dag)
Líklega einn mest óspennandi leikur umferðarinnar, en Fulham tekur þetta 2-1. Gonzalo og King setja mörkin og gleðja þá sem eru með þá í Fantasy.

Man City 5 - 1 Ipswich (14:00 í dag)
Ég finn það í loftinu að þetta verði eitthver galin leikur. Segjum bara 5-1. Þeir sem þora að setja triple captain á Haaland verða heldur betur sáttir eftir þennan leik.

Newcastle 1 - 2 Aston Villa (16:30 í dag)
Þetta verður frábær leikur. Ég ætla að veðja á að Villa sæki öll þrjú stigin á erfiðan útivöll. Manzambi og Nicolas Jackson sjá um mörkin í 2–1 sigri.

Bournemouth 0 - 0 Sunderland (13:00 á morgun)
Þetta verður óvænt markalaust jafntefli. Maður býst við einhverju fjöri, en svo gerist nákvæmlega ekkert.

Brighton 3 - 1 Crystal Palace (13:00 á morgun)
Palace hefur verið að leka mörkum og ég held að það haldi áfram hér. Brighton gengur á lagið og vinnur 3-1.

Leeds 1 - 1 Man Utd (13:00 á morgun)
Það hefur ekki gengið nógu vel hjá United og ég sé þá ekki sækja sigur hér. Lisandro Martínez setur eitt fyrir United og Calvert-Lewin svarar fyrir Leeds. Lokatölur 1-1.

Nottingham Forest 0 - 1 Arsenal (15:30 á morgun)
Ég held að þetta verði ömurlegur leikur og leiðinlegur í alla staði. Arsenal finnur samt leið til að vinna. Gabriel skallar inn sigurmarkið eftir hornspyrnu á lokamínútunni. Það kemur líklega engum á óvart.

Tottenham 3 - 1 Coventry (19:00 á mánudag)
Lokaleikurinn verður svo óvæntur stemningsleikur. Það verður fjör og mörk og Tottenham klárar þetta með 3-1 sigri.

Fyrri spámenn:
Stefan Ljubicic (6 réttir)
Gaui Lýðs (5 réttir)
Dom Ankers (5 réttir)
Gunni Birgis (5 réttir)
Aron Snær (4 réttir)
Hjammi (4 réttir)
Bradley Barcola.

Bradley Barcola.

Canon

Mynd: EPA

Erling Haaland.

Erling Haaland.

Canon

Mynd: EPA

Skorar Lisandro Martinez?

Skorar Lisandro Martinez?

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.