17.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Akureyrarliðin í harðri baráttu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það eru þrír leikir sem fara fram í Bestu deild karla í dag og hefst dagurinn í Keflavík þegar heimamenn taka á móti KR í efri hlutanum.
KR getur tryggt sér annað sæti deildarinnar með sigri á meðan Keflavík siglir lygnan sjó.
Liðin mætast í hádeginu, áður en Valur og Þór eiga heimaleiki í neðri hlutanum.
Valur tekur á móti KA og geta gestirnir frá Akureyri farið langleiðina með að tryggja sér áframhaldandi þátttöku í efstu deild með sigri, á meðan Valur siglir lygnan sjó.
Þór spilar svo við Stjörnuna og þarf á sigri að halda. Nýliðarnir eru í fallsæti sem stendur og geta hleypt gríðarlega mikilli spennu í lokaumferðina takist þeim að sigra í dag, gegn andstæðingum sem eru einungis að spila upp á stoltið.
Besta karla - Efri hluti
12:00 Keflavík-KR (HS Orku völlurinn)
Besta karla - Neðri hluti
13:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
14:00 Þór-Stjarnan (VÍS völlurinn)

| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Valur | 25 | -5 | 31 |
| 2 | Stjarnan | 25 | -12 | 31 |
| 3 | FH | 26 | -6 | 30 |
| 4 | KA | 25 | -10 | 26 |
| 5 | Þór | 25 | -33 | 24 |
| 6 | ÍBV | 26 | -14 | 22 |