Fotbolti.net
01.12.20 - 06:00
Victor Pálsson

Suarez gæti spilað gegn Bayern

Suarez gæti spilað gegn Bayern
Canon

Mynd: Getty Images

Luis Suarez, leikmaður Atletico Madrid, gæti spilað með liðinu gegn Bayern Munchen síðar í kvöld.
Um er að ræða mikilvægan leik fyrir atletico í Meistaradeildini en Suarez hefur misst af síðustu leikjum vegna veikinda.

Leikmaðurinn greindist með kórónuveiruna í landsliðsverkefni með Úrúgvæ og hefur því ekki verið til taks.

Diego Simeone, stjóri Atletico, staðfesti það á blaðamannafundi í gær að Suarez gæti mögulega tekið þátt.

Framherjinn hefur staðið sig með prýði síðan hann kom frá Barcelona í sumar og skoraði fimm mörk í fyrstu sex deildarleikjunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.