05.10.26 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eiginkona Ronaldo eyddi færslu með falskri Ferguson-tilvitnun

Georgina hér með eiginmanni sínum, Cristiano Ronaldo.

Mynd: EPA

Sir Alex Ferguson.

Georgina Rodriguez, eiginkona Cristiano Ronaldo, eyddi færslu á Instagram eftir að hún deildi falskri tilvitnun sem var sögð vera eftir Sir Alex Ferguson.
Rodriguez hafði varið Ronaldo í deilum hans við Jorge Jesus, þjálfara portúgalska landsliðsins, og skrifaði meðal annars: „Ég veit ekki hvernig þessi maður getur borið nafn Krists.“
Fyrir neðan færsluna var mynd af Ferguson og tilvitnun sem átti að vera frá fyrrverandi stjóra Ronaldo hjá Manchester United.
„Ef Jorge Jesus vissi innst inni að hann ætlaði ekki að nota hann, hvers vegna kallaði hann hann þá upp? Til að sýna vald sitt? Það er ekki vald, það er óöryggi,“ sagði í tilvitnuninni sem var sögð frá Sir Alex.
Ferguson hefur hins vegar ekkert tjáð sig um deilur Ronaldo og Jesus og tilvitnunin virðist hafa verið búin til með gervigreind.
Rodriguez eyddi færslunni fljótlega eftir að hún birti hana, en hún hafði þá þegar verið séð af milljónum fylgjenda hennar.
Deilurnar hófust eftir að Ronaldo var settur á bekkinn í 2-1 sigri Portúgals gegn Noregi. Hann missti þar með af heilum leik með landsliðinu í fyrsta sinn í 18 ár, ef frá eru talin meiðsli og leikbönn. Ronaldo yfirgaf svo landsliðsverkefnið í fýlu.

???????? ????????????: Cristiano Ronaldo’s wife Georgina Rodríguez on IG with a message against JORGE JESUS:
— The Touchline | ???? (@TouchlineX) October 3, 2026
"I don’t know how this man can carry the name of Christ (Jesus)."
• She also shared a graphic quoting Sir Alex Ferguson:
“If Jorge Jesus knew in his heart that he had no intention of using him, then why did he call him up in the first place? To make a point? That is not authority, that is insecurity.”

Sir Alex Ferguson.

Mynd: EPA