Fotbolti.net
05.10.26 - 12:08
Elvar Geir Magnússon

Tuchel segir enga áhættu hafa verið tekna með Scott - „Skil gremjuna“

Alex Scott í leiknum gegn Tékklandi á dögunum.

Alex Scott í leiknum gegn Tékklandi á dögunum.

Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, þvertekur fyrir að áhætta hafi verið tekin með því að láta Alex Scott spila gegn Króatíu um helgina.

Scott, sem er gríðarlega eftirsóttur miðjumaður Bournemouth, verður frá í sex til átta vikur vegna meiðsla í læri. Enskir fjölmiðlar segja hann hafa fundið fyrir óþægindum fyrir leikinn gegn Króatíu.
Alex Scott gæti verið frá í átta vikur
TENGT EFNI

Alex Scott gæti verið frá í átta vikur

„Við og læknateymið erum alltaf í samskiptum við leikmenn sem eru með okkur. Við deilum öllum upplýsingum. Ég skil gremju Bournemouth þar sem þeir missa lykilmann út. En ég get með hreinni samvisku að það var engin áhætta tekin af mér eða læknateyminu. Velferð leikmanna er alltaf í forgangi," segir Tuchel.

„Hann æfði að fullu fyrir leikinn gegn Króatíu og fékk grænt á að spila. Þegar við tókum eftir því að hann fann einhver óþægindi í leiknum spurðum við hann hvort hann vildi skiptingu en hann sagði nei. Eftir leikinn sagði hann að hann hefði getað spilað allan leikinn."

„Ég vorkenni honum að geta ekki spilað aftur gegn Tékklandi á morgun. Hann hefði örugglega byrjað leikinn."

Ezri Konsa fann fyrir óþægindum
England rúllaði yfir Króatíu 7-0 og mun mæta Tékklandi á morgun. Varnarmaðurinn Ezri Konsa, sem lék allan leikinn, hefur dregið sig úr hópnum og er kominn aftur til félagsliðs síns, Arsenal.

„Ezri fann fyrir óþægindum þegar hann kom í verkefnið og spilaði í gegnum þau gegn Spáni. Þau versnuðu aðeins og hann nær ekki leiknum gegn Tékklandi. Þetta er ekkert alvarlegt held ég en óþarfi að taka áhættu," segir Tuchel.
Ezri Konsa í leiknum gegn Spáni.

Ezri Konsa í leiknum gegn Spáni.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.