Fotbolti.net
01.12.20 - 17:30
Enski boltinn

„Sýndarmennska og mjög góður leikþáttur hjá Jose Mourinho"

„Sýndarmennska og mjög góður leikþáttur hjá Jose Mourinho"
Canon

Mynd: Getty Images

„Þetta eru fyrirsjánlegustu úrslit ársins líklega," sagði Jóhann Skúli Jónsson í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í gær þegar rætt var um markalaust jafntefli Tottenham og Chelsea um helgina.
Jose Mourinho og lærisveinar hans eru ennþá á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir þessi úrslit.

„Jose Mourinho er skellihlægjandi og ánægður með þetta stig. Hann lyfti sér upp á toppinn og það er það eina sem hann hafði áhuga á ," sagði Gunnar Ormslev.

„Hann er kampakátur. Í viðtalinu eftir leik sagði hann að leikmennirnir væru ósáttir inn í klefa með að ná ekki í þrjú stig en það var sýndarmennska og mjög góður leikþáttur hjá Jose Mourinho."

Leikurinn um helgina var tíðindalítill en Tottenham ógnaði marki Chelesa lítið.

„Mourinho er skellihlægjandi. Það sást langbest í seinni hálfleikinn þegar þeir pökkuðu til baka. Hann heldur áfram að vinna með (Pierre-Emile) Hojberg og (Moussa) Sissoko nánast í hafsenta stöðunum þegar þeir eru ekki með boltann," sagði Gunnar.

Hér að neðan má hlusta á þátt gærdagsins. Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.

<b>Enski boltinn</b> - Mögnuð innkoma Cavani og reiður Klopp

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.