Hjalti er KR-ingur en hefur einnig leikið með KV og Leikni R. á sínum ferli. Hann á að baki átta deildarleiki með KR en var leiktíðina 2019 og fyrri hluta tímabilsins 2020 að láni í Breiðholti.
Hann á 24 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands, þar af fjóra fyrir U21. Hann er í æfingahópi U21 sem æfir saman þessa dagana. Í dag sýnir Hjalti á sér hina hliðina.
Hann á 24 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Íslands, þar af fjóra fyrir U21. Hann er í æfingahópi U21 sem æfir saman þessa dagana. Í dag sýnir Hjalti á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Hjalti Sigurðsson
Gælunafn: Hjalli og Hjútli
Aldur: 20
Hjúskaparstaða: í sambandi
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 2018 fyrsti alvöru leikur
Uppáhalds drykkur: Kaffi
Uppáhalds matsölustaður: Zorbian hot
Hvernig bíl áttu: Ég er bara á rafmagns hlaupahjóli
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Æði, júrógarðurinn og Love Island, bara get ekki valið á milli
Uppáhalds tónlistarmaður: Áttan voru með yfirburði áður en þau hættu
Uppáhalds hlaðvarp: beint í bílinn
Fyndnasti Íslendingurinn: pétur jóhann
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Nutella, oreo og snickers
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: “Hvenær er mæting” frá Stefáni Geirs, hef fengið þessa spurningu nokkrum sinnum frá honum
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Ekki neinu sennilega
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Hudson-odoi var cheeky lad
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Rúnar, en annars mjög margir góðir sem hafa þjálfað mig
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Þreytt þegar Brynjólfur Andersen fer að dýfa sér og æsa menn upp, annars er hann ljúfmenni utan vallar
Sætasti sigurinn: Vinna Íslandsmótið í 2. flokki
Mestu vonbrigðin: komast ekki upp með Leikni 2019 og missa af Evrópusæti í fyrra
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Myndi taka Viðar Þór Sigurðsson, betur þekktur sem Viddi lukaku.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Sigurpáll Sören Ingólfsson (Spalli)
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Árni Elvar Árnason í málaragallanum
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: Hringdi í Samúel Má Kristinsson fyrir þessa spurningu en hann svaraði ekki þannig ég bara veit ekki
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Stefán Árni er rosalegur á Tinderinu, heyrði að hann var að kaupa Tinder Gold, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það
Uppáhalds staður á Íslandi: Ísbúð Huppu
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Viðbeinsbrotnaði og fékk rautt spjald á sama mómentinu í Rvk mótinu í fyrra. Ég hafði ekki hugmynd af rauða spjaldinu og frétti það þegar leikurinn var búinn
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: nei
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: Fylgist með úrslitakeppninni í körfu og handbolta
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike vapor
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: var og er skelfilegur í sundi
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég rann á hausinn beint fyrir framan stúkuna í fyrsta mfl leiknum á KR vellinum
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Tæki Tryggva Snæ Geirsson, Vuk Óskar og Elías Rafn Ólafsson. Þessi hópur er með góða greindarvísitölu þannig það er 100p að við myndum spjara okkur vel.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Hef aldrei fengið krampa
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Gaui Karra kemur mér sífellt á óvart, sérstaklega í samtölum við Ægi Jarl
Hverju laugstu síðast: Sagðist ætla klessann við Flóka en ég smjöraði hann
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: boltalaus hlaup
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Badda í Júrógarðinum hvort ég gæti fengið vinnu í garðinum, það væri alvöru veisla
Athugasemdir