15.09.26 - 14:40
Fótbolti.net
Lúlli slær í gegn í Boltamömmum - „Klóraðu mér í kónginum elskan“
Milljóndollaraandlitið leikur sjálfan sig og fer á kostum
Auglýsing

Mynd: Boltamömmur/Skjáskot

„Segir kampavínstussan af Nesinu“

Mynd: Boltamömmur/Skjáskot

Mynd: Boltamömmur/Skjáskot
Lúðvík Jónasson, stundum kallaður Milljóndollaraandlitið, fer á kostum í sjónvarpsþáttunum Boltamömmum, sem voru frumsýndir í Sjónvarpi Símans í síðustu viku.
Lúlli er einn þekktasti stuðningsmaður Stjörnunnar og í þriðja þættinum, sem sýndur verður á morgun, fimmtudag, bregður honum fyrir í hlutverki foreldris barns í 5. flokki Stjörnunnar.
Sjáðu brot úr þættinum í sjónvarpinu hér að ofan

Þar á hann í orðljótum rifrildum við foreldra barna í Gróttu, öskrar á barnungan dómara og mígur rétt fyrir aftan áhorfendur meðan á leiknum stendur. Atriðin byggja á sönnum atburðum og því má segja að Lúlli leiki þar sjálfan sig.
Lúlli lætur allt flakka í þáttunum en meðal frasa sem hann lætur falla eru: „Klóraðu mér í kónginum elskan“ – „Segir kampavínstussan af Nesinu“
Boltamömmur er ný gamanþáttaröð og hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, leikkonu og handritshöfundar, en hugmyndin kviknaði út frá hennar eigin reynslu sem fótboltamamma. Þættirnir segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans þar sem dramatíkin, keppnisskapið og tilfinningarnar eru áberandi á hliðarlínunni.
Leikstjórn er í höndum Hannesar Þórs Halldórssonar og Hafsteins Gunnars Sigurðssonar. Handritið skrifa Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Sóli Hólm, Hafsteinn Gunnar, Lilja Nótt og Hannes Þór.
Með helstu hlutverk fara Kristín Þóra Haraldsdóttir, Lilja Nótt, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Hildur Vala Baldursdóttir, Anna Svava Knútsdóttir, Iðunn Ösp Hlynsdóttir, Ólafur Egilsson, Mikael Kaaber og Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi.