Daniel Farke, stjóri Leeds United á Englandi, ætlar líklega að áfrýja rauða spjaldinu sem hann fékk í 1-0 tapinu gegn Manchester City á dögunum.
Farke sá rauða spjaldið undir lok leiks fyrir litlar sakir en hann hljóp upp að dómaranum og urðaði einhverju að honum. Stuttu síðar sá hann rautt spjald.
Hann segir sjálfur að hann hafi ekki sagt neitt neikvætt við Peter Bankes, dómara leiksins, og að þetta sé allt byggt á misskilningi og að hann sé að íhuga að áfrýja spjaldinu.
„Ég skokkaði þangað og sagði ekki eitt slæmt orð eða blótsyrði. Ég vildi bara spyrja hann af hverju hann bætti ekki fleiri mínútum við leikinn. Hann talaði ekki við mig heldur reif bara upp rauða spjaldið.“
„Ég var ekkert sérstaklega ánægður með að hann hafi rifið fram rauða spjaldið og niðurlægt mig fyrir framan allan heiminn. Aðstoðarmennirnir voru meira að segja í áfalli yfir rauða spjaldinu. Þetta er ekki rétta leiðin til að vinna saman því ég ber svo ótrúlega mikla virðingu fyrir dómurum.“
„Ég held að þetta hafi ekki verið viljaverk hjá Peter. Hann las vitlaust í aðstæður, en ég veit alla vega að ég mun ekki skokka aftur,“ sagði Farke.
„Ég skal samt viðurkenna það að ég er ekki léttur eins og fiðrildi og lít ekkert út fyrir að vera svakalega sætur og ljúfur þegar ég er á skokkinu, en mér fannst þetta ekki verðskulda rautt spjald,“ sagði Farke.
Athugasemdir


