Íslenska kvennalandsliðið á ærið verkefni fyrir höndum en stelpurnar mæta ríkjandi heimsmeisturum Spánar annað kvöld á Spáni og eiga svo leik gegn nýkrýndum Evrópumeisturum Englands á laugardaginn á Englandi.
Guðrún Arnardóttir er ein af lykilmönnum í íslenska liðinu hvernig leggst þetta verkefni í hana?
„Þetta leggst bara mjög vel í mig, þetta er auðvitað verðugir andstæðingar, þetta eru heims- og evrópumeistarar og þetta verður ekki auðvelt en það er samt gaman að fá að máta sig á móti þessum liðum og fá að spila þessa leiki. Þannig að þetta leggst bara mjög vel í mig og ég er bara spennt.“ Svaraði Guðrún
„Ótrúlega gaman að fá að hitta stelpurnar aftur, komið alveg bara hálft ár síðan við hittumst síðast þannig að við erum búin að vera þurfa catch upp á miklu og þurfa að spjalla. Manni þykir ótrúlega vænt um þessar stelpur og alltaf mjög gaman að koma hingað.“
„Það er náttúrlega bara auðvelt. Þú veist ég er varnarmaður af ástæðu. Mér finnst gaman að verjast og mér finnst gaman að því þegar við erum í þessu. Við erum varnarlega mjög sterkt lið í heild, allt frá fremsta til aftasta manns. Þannig það er bara gaman að fá að spila þessa leiki á móti þessum bestu liðum í heimi. Við vitum alveg að við þurfum að vera þéttar og við vitum alveg að við erum ekki að fara vinna þær í ball possession en á sama tíma einmitt eru ákveðin tækifæri fyrir okkur og sýna svolítið hvað við getum og hvað íslenska geðveikin getur tekið mikið fram í okkur.“
„Þær eru náttúrulega rosalega margar góðar. Miðjan þeirra er rosalega sterk, þær eru náttúrulega með bestu leikmenn í heimi þar. Mariona Caldentey er náttúrlega á kantinum líka, þannig já þetta verður eiginlega bara mjög vel spilandi lið með góðum leikmönnum í öllum stöðum. Það er erfitt kannski að pinpointa einhverja eina þegar þær eru með einhverjar 10 af 20 bestu leikmönnum heims þarna inn á.“
„Það þarf náttúrlega bara að vera þéttur varnarleikur, við erum búin að tala mikið um það að við þurfum að halda þeim í rauninni fyrir framan okkur og utan okkur, við hleypum þeim ekki inn í svæðin á milli okkar. Þær vilja mikið vera að taka þríhyrninga, þær vilja mikið spila sig í gegn þannig að við þurfum að vera öruggar í því. Að halda þeim fyrir framan okkur og vera aggressívar og kannski þú veist, láta þær svolítið finna fyrir því líkamlega að við erum líkamlega sterkt lið. Við erum baráttuglaðar og svona og á sama tíma þegar við vinnum boltann þurfum við að tryggja hann. Við þurfum að halda aðeins í hann, við getum ekki bara tapað boltanum um leið, heldur eru tækifæri til þess að halda í hann og sækja á þær. Þannig að það er bara svona eins og ég segi þéttur varnarleikur og gera vel þegar við vinnum boltann.“
Viðtalið í heild má finna í spilaranum hér að ofan























