02.03.26 - 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Fiorentina steinlá fyrir Udinese

Albert var í tapliði í kvöld

Mynd: EPA

Albert var í tapliði í kvöld

Mynd: EPA
Udinese 3 - 0 Fiorentina
1-0 Christian Kabasele ('10 )
2-0 Keinan Davis ('64 , víti)
3-0 Adam Buksa ('90 )
1-0 Christian Kabasele ('10 )
2-0 Keinan Davis ('64 , víti)
3-0 Adam Buksa ('90 )
Albert Guðmundsson og félagar hans í Fiorentina steinlágu fyrir Udinese, 3-0, í 27. umferð ítölsku deildarinnar í Údín í kvöld.
Landsliðsmaðurinn sneri aftur í byrjunarliðið tæpum mánuði frá því hann byrjaði síðast leik.
Fiorentina hefur verið í miklu veseni á þessari leiktíð og hélt það áfram í kvöld. Christian Kabasele skoraði með skalla eftir fyrirgjöf Nicolo Zaniolo á 11. mínútu.
Gestirnir fengu alveg færi til að skora. Rolando Mandragora fór illa með góðar stöður og þá fór Jack Harrison illa með gott skallafæri.
Í síðari hálfleiknum skoruðu heimamenn tvö til viðbótar. Keinan Davis skoraði af vítapunktinum eftir að Daniele Rugani braut af sér í teignum og þá skoraði Adam Buksa með laglegu marki undir lok leiks.
Skelfileg úrslit fyrir Fiorentina sem er með 24 stig í 16. sæti og aðeins markatala sem heldur liðinu fyrir ofan fallsæti, en Udinese er í 10. sæti með 35 stig.