Fotbolti.net
02.03.26 - 22:25
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Bitlausir Madrídingar töpuðu á Bernabeu - Eitt flottasta mark tímabilsins

Satriano fagnar stórkostlegu marki sínu

Satriano fagnar stórkostlegu marki sínu

Canon

Mynd: EPA

Real Madrid 0 - 1 Getafe
0-1 Martin Satriano ('39 )
Rautt spjald: ,Franco Mastantuono, Real Madrid ('90)Adrian Liso, Getafe ('90)
Spænska stórveldið Real Madrid tapaði óvænt fyrir nágrönnum sínum í Getafe, 1-0, á Santiago Bernabeu í La Liga á Spáni í kvöld og fóru þarna dýrmæt stig í súginn í titilbaráttunni.

Real Madrid var án margra sterkra lykilmanna á borð við Kylian Mbappe, sem hefur verið þeirra markahæsti maður á tímabilinu, og þá voru Jude Bellingham, Eder Militao og fleiri leikmenn fjarverandi.

Sigurmark Matrin Satriano var eitt af mörkum tímabilsins er hann tók hann viðstöðulaust á lofti og hamraði honum í samskeytin hægra megin undir lok fyrri hálfleiks.

Varnarleikur Getafe var þéttur en Real Madrid gat ekki kvartað yfir stöðunum sem leikmenn komu sér í. Þeir fengu urmul af þeim en þá vantaði leikmennina sem eru bestir í að klára þær stöður eins og Mbappe. Vini Jr klúðraði dauðafæri einn á móti marki og Arda Güler var nálægt því að skora eftir frábært einstaklingsframtak en inn vildi boltinn ekki.

Á lokamínútunum sá Franco Mastantuono rauða spjaldið fyrir að rífa kjaft við dómarann og stuttu síðar sá Adrian Liso, leikmaður Getafe, einnig rauða spjaldið sem var sérkennilegur misskilningur.

Liso fékk boltann inn fyrir vörnina og fékk að leika sér með hann áður en hann fór út í teiginn. Þá flautaði dómarann rangstöðu en Liso hélt að hann væri að flauta til leiksloka. Svo var ekki og uppskar Liso sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Sérstakt atvik en rétt eftir atvikið var leikurinn flautaður af og lokatölur 1-0 fyrir Getafe. Real Madrid varð af mikilvægum stigum, en það er í öðru sæti með 60 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona á meðan Getafe er í 11. sæti með 32 stig.
Spánn: Bitlausir Madrídingar töpuðu á Bernabeu - Eitt flottasta mark tímabilsins
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid9+1421
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Villarreal10+112
9Celta9+311
10Deportivo10011
11Osasuna9-811
12Racing Santander10-1111
13Levante9-210
14Elche10-310
15Athletic8-19
16Getafe9-69
17Vallecano9-89
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.