Fotbolti.net
02.03.26 - 17:15
Elvar Geir Magnússon

Tottenham hljóti að vera að íhuga að reka Tudor strax

Tottenham hljóti að vera að íhuga að reka Tudor strax
Canon

Mynd: EPA

„Þetta var slæmt undir stjórn Thomas Frank en Tottenham hefur án nokkurs vafa orðið verra í tveimur leikjum undir stjórn Tudor. Félagið þarf að taka ákvörðun ef liðið tapar líka gegn Crystal Palace á fimmtudag," skrifar Ian Ladyman, ritstjóri fótboltafrétta hjá Daily Mail.

Hann segir að Tottenham hljóti nú þegar verið að hugsa um að láta Igor Tudor taka pokann sinn.
„Hljómar þetta sem dramatísk og stór orð eftir tvo leiki? Það gerir það vissulega. En getur félagið látið þetta viðgangast áfram? Það hafa ekki verið ein einustu merki þess að Tudor sé að laga hlutina."

Þá gagnrýnir Ladyman stjórann fyrir að axla ekki ábyrgð heldur kenna öðrum um.

„Svona er þetta oft með bráðabirgðastjóra. Þeir vita að þeir verða ekki lengi í starfinu og finnst að þeir geti skotið á aðra án afleiðinga. Ef illa fer á fimmtudag verður að spyrja sig að því hvort ráðningin á Tudor bætist á langan lista yfir slæm mistök hjá Tottenham."

Tudor var ráðinn stjóri út tímabilið en Tottenham hefur tapað báðum leikjunum undir hans stjórn og er nú fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.