Fotbolti.net
02.03.26 - 14:56
Elvar Geir Magnússon

Tottenham kvartaði yfir samfélagsmiðlafærslu ensku úrvalsdeildarinnar

Enska úrvalsdeildin gerði grín að markverði Tottenham.

Enska úrvalsdeildin gerði grín að markverði Tottenham.

Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildin hefur eytt færslu á samfélagsmiðlinum X þar sem grín er gert að Guglielmo Vicario, markverði Tottenham.

Tottenham kvartaði yfir færslunni en þar var 13 sekúndna myndband af Vicario taka hörmulega aukaspyrnu sem endaði í markspyrnu hinumegin.

Í færslunni var broskall að gráta úr hlátri og skrifað við: 'Áhugaverð aukaspyrna frá Vicario' og svo 'úps'.

Tottenham hafði samband við ensku úrvalsdeildina og sagði þá skoðun sína að deildin ætti ekki að gera grín að eigin liðum og leikmönnum. Tottenham er aðeins fjórum stigulm frá fallsvæðinu eftir að hafa tapað 2-1 gegn Fulham í gær.

Tottenham hefur tapað fjórum leikjum í röð og er án sigurs í tíu deildarleikjum en liðið mætir Crystal Palace í vikunni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton7+1816
4Chelsea8+213
5Liverpool7+112
6Aston Villa8-311
7Brentford7+510
8Leeds7+310
9Everton8-110
10Ipswich Town8-410
11Hull City7+19
12Tottenham8-29
13Fulham8-28
14Newcastle7-48
15Man Utd707
16Crystal Palace7-87
17Bournemouth7-46
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.