Góðgerðarleikur til styrktar UNICEF fer fram á AVIS vellinum í Laugardal klukkan 19:00 í kvöld.
Þar tekur Langó FC á móti Stjörnuliði UNICEF. Fimm strákar í 10. bekk í Langholtsskóla standa fyrir leiknum sem hluta af lokaverkefni sínu, þeir Steinþór Páll Atlason, Pétur Leví Thorsteinsson, Jonathan Victor Wall Gunnarsson, Styrmir Búi Baldursson og Emil Már Bergsson.

Þekkt nöfn verða í Stjörnuliði UNICEF, þar á meðal Kristófer Acox, Villi Neto, Bolli Már og Logi Páll. Þá mun Rikki G mun stýra liðinu.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn. Sjoppa verður á staðnum og UNICEF tekur einnig við frjálsum framlögum.