Fotbolti.net
02.11.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tchouameni skaut í ungan aðdáanda - „Hann kann ekki að skjóta"

Tchouameni í baráttunni við Sergio Canales, leikmann Racing

Tchouameni í baráttunni við Sergio Canales, leikmann Racing

Canon

Mynd: EPA

Ungur aðdáandi Real Madrid varð fyrir því óláni að fá bolta í höfuðið eftir fast skot frá franska miðjumanninum Aurelien Tchouameni í 3-0 sigri liðsins á Racing Santander í gær.

Aðdáandinn fékk að fara í leikmannagöngin eftir leikinn og Tchouameni gaf honum áritaða treyju í sárabót.
Þá fékk hann að hitta fleiri leikmenn liðsins en Kylian Mbappe sló á létta strengi með honum.

„Þetta er Tchouameni að kenna. Hann kann ekki að skjóta," sagði Mbappe við aðdáandann.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.